Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Árni oddviti: „Bull að um nauðgun sé að ræða! Að hafa ekki áhuga þýðir ekki að þú viljir ekki“

Árni oddviti: „Bull að um nauðgun sé að ræða! Að hafa ekki áhuga þýðir ekki að þú viljir ekki“

Frétt Mannlífs um mynd­band sem Óskar Steinn Jón­ínu­son Ómarsson gerði þar sem hann túlkar texta Ingós Veð­urguðs við lag hans „Fanney“ hefur vakið gríð­ar­lega athygli.

Í færsl­unni á Twitter-reikn­ingi Óskars þar sem hann birtir mynd­bandið segir hann að „vís­bend­ing­arnar voru þarna í lög­unum hans allan tím­ann… nei þýðir ekki „sann­færðu mig” btw“

Á Facebook-síðu Mannlífs þar sem frétt­inni um mynd­band Óskars var deilt gerði Árni Hjör­leifs­son, sem er odd­viti Skorra­dals­hrepps og fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Alþýðu­flokks­ins í Hafn­ar­firði um langt ára­bil – oft kall­aður Árni Krati – athuga­semd við frétt­ina sem fór ekki vel í marga.

Árni – sem er raf­virki að mennt – átti fyrstu athuga­semd­ina um frétt­ina og var hún svohljóð­andi:

„Hverslags bull er þetta, að um nauðgun sé að ræða, þó svo annar aðil­inn, hafi ekki endi­lega ein­hvern sér­stakan áhuga, er mað­ur­inn rugl­aður? Það að hafa ekki áhuga, þýðir ekki endi­lega að þú viljir ekki.“

Eydís bregst við orðum Árna: „Sið­ferð­is­kennd sýn­ist mér að vanti stór­lega í þennan mann.“

Og Sóley svarar líka odd­vit­anum Árna og segir að „þessi flotti strákur útskýrir þetta bara drullu vel og er hann þarna líka að tala um eitt lag sem Veð­urguð­inn samdi; ef þér finnst í lagi að stunda „kyn­líf“ með mann­eskju sem hefur ekki áhuga þá ertu að nauðga henni; alveg sama hvað þér finnst! það er nauðgun.“

Inn á völl­inn brýst þá Sig­hvatur Cassata með all­nokkrum gaura­gangi og lætur þetta flakka:

„Það er svo langt frá því að það heiti nauðgun…… Nauðgun er þegar annar aðiljin er tekin með VALDI……. Konur eiga það til að gera sig stórar með því að segja…. Ég Reið þessum og Þessum…… bara til að setja það í reynslu­bók­ina, ég hef heyrt fréttir af því….. og ekki bara fréttir heldur frá Fyrsta munni…..“

Segja má að Kristín taki undir með Árna og Sighvati með frekar sér­kenni­legri lík­ingu sem væg­ast sagt vakti litla kátínu í þræð­inum, en hún segir að „sumir láta sig hafa það að fara til dæmis í mat­ar­boð, þó þeir hafi ekki áhuga á því.“

Óskar Steinn.

Marteinn er fljótur til svars og spyr Kristínu hvort hún sé að „líkja mat­ar­boði við nauðgun?“

Karen er ekki heldur hrif­inn af „mat­ar­boðs“ lík­ingu Krist­ínar og kastar þessu fram: „Aahhh, já, alltaf þegar ein­hver sem ég hef ekki áhuga á að ríða, suðar í mér, þá hugsa ég alltaf.. Ææ, þetta er bara eins og að fara í mat­ar­boð“ og bætir við: „Nei, þetta er ekki einu sinni ögn sam­bæri­legt!“

Ljóst er, og eðli­legt, að ekki eru allir sam­mála í umræðum um erfið sam­fé­lags­mál eins til dæmis mál Ingós Veð­urguðs. En sé tekið mið af öllum þeim fjölda sem skrifar athuga­semdir við frétt­ina um mynd­band Óskars þá er það þó deg­inum ljós­ara að þeir eru langtum fleiri sem taka undir með honum en ekki þegar Óskar spyr og svarar:

„Hvað heitir það þegar önnur mann­eskjan vill ekki ríða en hin mann­eskjan þrýstir á hana með skila­boðum um að þykj­ast vilja það!?“ – „Nauðgun, það heitir nauðgun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ