Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Lára svikamiðill: „Hafi ég játað þá hefur það verið í örvilnan og uppgjöf – Ég var viti mínu fjær”

Lára svikamiðill: „Hafi ég játað þá hefur það verið í örvilnan og uppgjöf – Ég var viti mínu fjær”

Íslend­ingar hafa löngum verið þekktir fyrir áhuga sinn á hinu yfir­nátt­úru­lega og hefur fjöldi miðla haft þann starfa að tengja land­ann við hina látnu. Á fyrri hluta síð­ustu aldar var gríð­ar­legur áhugi um alls kyns spír­i­tísma, ekki aðeins hér á landi, heldur um all­ann hinn vest­ræna heim. Biðlistar voru á fundi hinna þekkt­ari miðla.

Látin börn og tístandi fuglar

Einn alfræg­asti mið­ill Íslands var Ingi­björg Lára Ágústs­dóttir, sem vann það sér meðal ann­ars til frægðar að vera eini ein­stak­lingur Íslands­sög­unnar sem sak­felld hefur verið fyrir svika­miðlun. Auk þess var fyrr­var­andi eig­in­maður hennar dæmdur svo og tveir ást­menn.

Lára, sem var fædd árið 1899, var þjóð­þekkt fyrir „mið­ils­hæfi­leika” sína sem hún sagð­ist hafa upp­götvað 18 ára að aldri. Funda­menn stóðu á önd­inni þegar „systir Clementia”, kom fram í gegnum Lári þegar hún féll í „trans” en fjöldi ann­arra aðila birt­ist, látin börn og ást­vinir auk þess sem fuglar áttu til að fljúga um funda­her­bergið, tísta og syngja,“ segir í for­síðu­grein Alþýðu­blaðs­ins eftir mið­ils­fund hjá Láru árið 1934. Þar þótt­ist Lára hafa fallið í dá og og lík­amn­ingur hafði skotið upp koll­inum, lík­amn­ingur í gervi brúðu sem eig­in­maður Láru hafði útbúið.

Vék heimsstyrjöldinni af forsíðum blaðanna

Lára varð það þekkt að hún gat rukkað veg­lega inn á hvern fund, heilar þrjár krónur, en fund­irnir voru venju­lega sóttir af 10-20 manns. Talið er að hún hafi efn­ast veru­lega þau ár sem hún „miðl­aði” að handan. „Það, sem gerð­ist á fund­unum var þetta: Lík­amn­inga­fyr­ir­brigði, afholdg­un­ar­fyr­ir­brigði, skygni­lýs­ingar, útfrymi, sam­töl, bréfa­skriftir o. fl., allt „yfir­nátt­úr­legt“ með frú Láru sem miðil og ýmsa stjórn­endur,“ sagði síðar í frétt Alþýðu­blaðs­ins. Hún flutti enn­fremur raddir frá látnum ást­vinum og sendi skila­boð til ann­arra um að koma í gegnum radd­irnar.

Þann 26. októ­ber árið 1940 vann Lára það sér til frægðar að víkja heims­styrj­öld­inni síð­ari af for­síðu dag­blað­anna þegar Alþýðu­blaðið birti frétt um að Sigurður Magn­ús­son, kenn­ari og lög­reglu­maður, hefði afhjúpað svik Láru. Lára hafði lengi talið honum trú um að hún væri í sam­bandi við látna konu hans, Önnu Guð­munds­dóttur, en þau hjón höfðu verið mikið áhug­fólk um spír­it­isma, Anna sál­uga hafði ávallt verið þess full­viss að um að Lára væri svik­ari.

Sveik þúsundir Íslendinga

„Rann­sak­aði hann lengi allar aðstæður og var loks tal­inn vera orð­inn svo „góður fund­ar­maður“, að hann fékk að sitja í stól nr. 1, þ.e. næsta stól frú­ar­innar, þegar á fundi stóð,“ segir frétt­inni Alþýðu­blaðs­ins. Ekki kom Anna fram þar sem Lára sagði hana „kvef­aða”. Það sem Lára vissi ekki var að Sigurður hafði mætt nokkru fyrr á funda­stað og rann­sakað hann hátt og lágt en mikið rökkur var við­haft á fund­unum svo vart sá til. Eftir nokkra leit fann hann böggul undir skáp og var í honum gard­ínu­efni yst en stór gas­slæða þar fyrir innan. Sýndi Sigurður örðum funda­gestum pakk­ann og bað þau að leggja sér vel í minni, hvernig um hann væri búið. Lét hann pakk­ann síðan með sömu ummerkjum undir skáp­inn, en þó þannig að rétt sá á hann.

Eftir fund­inn opn­aði Sigurður skáp­inn og fann þá þessa sömu gard­ínu á öðrum stað. Þótti sannað að þessi gard­ína hafi verið notuð í svikin. Kristján nokkur bólstr­ari í London við­ur­kenndi síðar að hafa útvegað frú Láru gard­ín­una. Frétt­inni lauk á þeim orðum að það væri land­hreinsun að svik frú Láru hafi loks­ins verið afhjúpuð en talið er að hún hafi svikið þús­undir Íslend­inga.

„Allir miðlar geðbilaðir“

Játaði Lára svikin og var dregin fyrir dóm í kjöl­farið. Ísland stóð á önd­inni af spenn­ingi og urðu meira að segja til þess að Nóbels­verð­launa­skáldið Halldór Laxness sá sig knúnan til að tjá sig um málið í í Tímariti Máls og menn­ingar og sagði þar meðal ann­ars: „Þekktur geð­veikra­læknir kvað hafa haft þau orð í gamni og alvöru um anda­trú, að ekki séu aðeins allir miðlar geð­bil­aðir, heldur séu einnig allir, sem hafa til­hneig­ingu til að fara á mið­ils­fund að ein­hverju leyti geð­bil­aðir líka. Í ljósi þeirrar þekk­ingar, sem nútím­inn á yfir að ráða, má nátt­úr­lega segja eitt­hvað svipað um allan trúar­á­huga á okkar dögum, þ.e.a.s. ef hann er ekki algerð venju­trú.

Lára hlaut eins árs dóm fyrir svik sín í Lands­rétti, Þor­bergur Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi eig­in­maður hennar fékk 6 mán­aða fang­elsi og ást­menn­irnir Kristján Ingvar Krist­jáns­son og Óskar Þórir Guð­munds­son 4 mán­aða skil­orðs­bundna dóma hvor.

Hæsti­réttur mild­aði alla dómana, Lára fékk sex mán­aða fang­elsi, Kristján og Óskar tvo mán­uði hvor en Þor­bergur þurfti að sitja sinn dóm vegna fyrri afbrota.

„Viljlaust tæki sem auðvelt er að misnota“

Lára flutti síðar til Akueyrar þar sem hún gekk aftur í hjóna­band. Hún tjáði sig einu sinni um málið, tveimur ára­tugum síðar þegar hún sagð­ist sjálf ekki hafa vitað hvað gerð­ist eða ekki gerst. „Í mið­ils­svefni gefur maður sig algjör­lega á vald öflum, sem maður ekki þekkir og veit ekki sjálfur hvað ger­ist. Sjálf er ég þá vilja­laust tæki, sem auð­velt er að mis­nota, ef óvand­aðir eiga í hlut. Hafi ég játað, eins og sagt er, að ég hafi gjört, þá hefur það verið í örvilnan og upp­gjöf, þar sem ég var svo að segja viti mínu fjær”.

Lára lést árið 1971.

Bak­sýnispeg­ill­inn er end­ur­birtur. Höfundur: Guðrún Gyða Eyþórs Árna­dóttir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ