Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sex af sjö lifðu við illan leik eftir hetjulega björgun: „Geta ekkert gert var algjörlega ömurlegt“

Sex af sjö lifðu við illan leik eftir hetjulega björgun: „Geta ekkert gert var algjörlega ömurlegt“

Hetjuleg fram­ganga björg­un­ar­fólks og her­manna banda­ríska varn­ar­liðs­ins varð til þess að sex skip­verjum var bjargað við illan leik í Vöðlavík á Aust­fjörðum. Þrátt fyrir mik­inn hetju­skap náð­ist ekki að bjarga einum úr áhöfn­inni og varð mann­skað­inn til þess að Land­helg­is­gæslan fékk öfl­ugri björg­un­ar­þyrlur til sín.

Vöðlavík er sunnan við Gerpi, austasta odda lands­ins milli Eski­fjarðar og Norð­fjarðar. Þann 18. des­em­ber 1993 strand­aði rækju­bát­ur­inn Bergvík VE í vík­inni og gekk afar illa að draga bát­inn á flot aftur, þrátt fyrir aðstoð gæsl­unnar við verkið. Fyrir vikið var björg­un­ar­skip trygg­inga­fé­lag­anna sent á vett­vang, björg­un­ar­skipið Goðinn sem komið hafði að björgun yfir 50 skipa und­an­farna þrjá ára­tugi. Hina örlaga­ríku nótt, 10. jan­úar 1994, var því miður röðin komin að björgun Goðans.

Hörmuleg sjó­slys hafa orðið við Vöðlavík á liðnum árum. Mörgum er enn í minni björg­un­ara­frekið árið 1994, þegar tókst að bjarga sex skip­verjum af brú­ar­þaki Goðans við afar erf­iðar aðstæður með aðstoð tveggja þyrlna frá banda­ríska sjó­hernum. Ölduhæð var um 8-9 metrar þegar verst lét.

Löng bið

Í fjör­unni í Vöðla­vík­inni horfðu björg­un­ar­sveit­ar­menn á þegar Goðinn fékk á sig mikil brot. Sævar Guð­jóns­son björg­un­ar­sveit­ar­maður var á staðnum og horfði upp á þegar stýri­maður skips­ins fórst sam­stundis. „Allir brú­ar­glugga í brúnni brotna og báðar hurð­irnar aft­urúr og þar ferst stýri­mað­ur­inn; hann fer út með þessum brotum. Þeir missa stýri og öll sigl­inga­tæki og öll neyð­ar­tæki úr brúnni þannig að þeir gátu bara við­hafst í björg­un­ar­göllum í klefa aftan við brúnna til svona tíu um morg­un­inn. Að vera staddur 250-300 metra frá sex mönnum að berj­ast fyrir lífi sínu og að geta ekk­ert gert var algjör­lega ömur­legt og biðin eftir þyrl­unum var löng.“

Skips­brots­menn þurftu að forða sér upp á brú­ar­bak um sama leyti og féll að. Þeir bundu sig við skor­stein­inn þar sem brot­sjór gekk yfir þá. Í sam­tali við RÚV lýsti yfir­vél­stjóri Goðans, Níels Hansen, upp­lifun sinni:

„Við stóðum í ein­tómum brotum þarna, alveg stans­laustum brotum í þessa sex klukku­tíma eð hvað það var. Við vissum það að eftir að björg­un­ar­menn­irnir koma ofan á sand­inn að það yrði þeirra fyrsta verk að biða um þyrlur því það væri von­laust verk að bjarga af sjó eða landi.“

Ómar Sig­tryggs­son var vél­stjóri á Goðanum þegar skipið fórst. Við skulum gefa honum orðið þegar hann lýsti upp­lifun sinni í við­tali við Sjó­manna­blaðið:

„Ég var á vakt­inni niðri í vél­ar­rúmi þegar fyrra brotið skall á skip­inu, við það brotn­uðu glugg­a­rnir í brúnni bak­borðs­megin og skipið myrkvað­ist. Skömmu seinna kom annað brot og við það kom meiri sjór í vél­ar­rúmið og tals­verður sjór kom á raf­magns­töfl­una, sem sló út með það sama. Þá ákváðum við að koma okkur upp í klefa tii Krist­jáns, en þangað voru strák­arnir komnir,“ segir Ómar og heldur áfram:

„Við klæddum okkur í galla og biðum rólegir uppi. Rúðurnar í klef­anum brotn­uðu og því komst sjór inn. Við reyndum að láta bekk fyrir götin og við það dró aðeins úr sjó­gang­inum inn í klef­ann. Við gátum verið í klef­anum í þó nokkurn tíma og gall­arnir héldu á okkur hita, þannig að okkur leið alveg ágæt­lega.“

Ómar segir ljóst að eng­inn skip­verj­anna hefði átt mögu­leika án björg­un­ar­gall­anna. „Nei, við hefðum aldrei átt mögu­leika án þeirra. Bæði héldu þeir á okkur hita og félaga­lín­urnar gerðu okkur kleift að binda okkur fasta. Þetta voru ógur­leg átök sem skelltu okkur til og frá og sviptu undan okkur fót­unum án þess að við fengjum nokkuð að gert, öldu­hæðin var allt að tíu metrar og þung­inn gíf­ur­legur.Auðvitað von­að­ist maður eftir björgun, en það gat eng­inn gert neitt; strák­arnir í landi gerðu allt sem í þeirra valdi stóð, en gátu bara ekk­ert gert.“

Hetjur hersins

Slysið Vöðlavík mörgum enn í fersku minni. Kristján Sveins­son var skip­stjóri á Goðanum þegar slysið varð og hann segir að það hafi fyllt skip­verj­ana von þegar þeir fréttu af þyrlum á leið­inni. Þrátt fyrir aftaka­veður þennan dag lögðu tvær þyrlur varn­ar­liðs­ins af stað ásamt lít­illi þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar.

Þyrlurnar tóku elds­neyti á Höfn og kom sú fyrri í Vöðlavík upp úr klukkan þrjú, rétt fyrir myrkur eftir um fimm tíma ferða­lag. Þeirra beið erfitt verk­efni að hífa sex menn, tvo í einu, í mik­illi ókyrrð. Tveir af skip­brots­mönnum voru veikir og þurftu á sjúkra­hús. Flugmenn á þyrl­unum ætl­uðu með þá til Egils­staða en lentu í ógöngum og voru heppnir að brot­lenda ekki annarri þyrl­unni í Mjóa­fjarð­ar­heiði. Þeir leituð að ljósum og lentu á fyrsta bíla­stæði sem þeir sáu sem reynd­ist vera við kaup­fé­lagið í Nes­kaup­stað.

Sævar björg­un­ar­maður, sem var 24 ára gam­all þennan örlaga­ríka slys­dag í Vöðlavík, segir björg­un­ina eitt það erf­ið­asta sem hann hafði upp­lifað. „Þetta er eini dag­ur­inn í lífi mínu sem mig lang­ar ekki að lifa aft­ur,“ sagði Sæv­ar.

Hvar er Vöðlavík? 

Vöðlavík hét áður Krossa­vík og var þar búseta fram til 1970. Auk þess var búið á Kross­nesi til 1944 en það stendur við opið haf. Um er að ræða eyði­vík sunnan Gerpis þar sem áður var fjöldi bæja. Mikil og skemmti­leg sand­fjara er í vík­inni. Til Vöðla­víkur er jeppa­vegur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ