Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Vera segir martröðina blasa við og vill aðgerðir strax í loftslagsmálum: „Það er núna eða aldrei“

Vera segir martröðina blasa við og vill aðgerðir strax í loftslagsmálum: „Það er núna eða aldrei“
Vera Knúts­dóttir

„Þessi skýrsla er nátt­úr­lega okkar versta martröð í raun­inni vegna þess að hún sýnir svart á hvítu að aðgerð­irnar sem hafa verið teknar eru ekki nóg og það þarf að ganga miklu lengra,“ segir Vera Knúts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Félags Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi.

Kolsvört skýrsla sér­fræði­hóps milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar (IPCC) var kynnt í vik­unni en vegna los­unar manna á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum eiga sér stað alvar­lega lofts­lags­breyt­ingar. Öfgar í veð­ur­fari svo sem miklar rign­ingar og hita­bylgjur og þurrkar verða tíð­ari sem þýða ham­farir. Í skýrsl­unni kemur fram að lausnir séu mögu­legar.

„Það er ekki lengur hægt að hafa lofts­lags­málin sem póli­tískt mál; þetta er ekki lengur spurn­ing um póli­tík. Þetta er í raun­inni spurn­ing um áfram­hald­andi lífs­gæði mann­kyns og í raun­inni hvort mann­kynið muni lifa af þær hörm­ungar sem við erum að kalla yfir okkur með allri okkar mengun og ásókn á land­gæði og sjáv­ar­gæði.“

Nú eða aldrei

Vera segir að nú sé tím­inn. „Það er núna eða aldrei. Það er bara að duga eða drep­ast. Það eru kosn­ingar fram undan á Íslandi og það er mik­il­vægt að allir flokk­arnir setji sér mjög skýra stefnu í sjálf­bærni sem snúi ekki bara að lofts­lags­málum vegna þess að sjálf­bærni er ekki bara lofts­lags­málin. Þetta tvinn­ast allt saman. Það er í raun­inni ekki hægt að vinna gegn lofts­lags­málum án þess að vinna að sjálf­bærri þróun og þá koma að sjálf­sögðu inn í þetta líka mann­rétt­indi, félags- og efna­hags­leg staða fólks, líf og heilsa og svo nátt­úr­lega hag­kerfið. Það er bara spurn­ing hvort hag­kerfið sem við búum við í dag sé í raun­inni í stakk búið til að takast á við þetta. Er hægt að hafa hag­vöxt og sjálf­bærni á sama tíma? Þetta er eitt­hvað sem margir velta upp.“

Félag Sam­ein­uðu þjóð­anna er með­fram­leið­andi að sjón­varps­þátt­unum „Hvað höfum við gert?“ og „Hvað getum við gert?“ „Í þeim þáttum má sjá þær fjöl­mörgu lausnir sem eru fyrir hendi og það þarf bara að hafa dug og þor og hætta að hugsa í fjög­urra ára kjör­tíma­bilum. Það verða ein­hverjir að fórna sínum póli­tíska ferli fyrir fram­tíð­ina. Það á ekk­ert bara við á Íslandi. Íslend­ingar þurfa að sjálf­sögðu að spýta í lóf­ana og gera sitt til þess að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Íslend­ingar þurfa líka að vera leið­andi í umræð­unni. Ísland hefur nefni­lega mörg tæki­færi á sviði umhverf­is­mála. Við erum með þrjá skóla innan GRÓ sem er þekk­ing­ar­mið­stöð þró­un­ar­sam­vinnu sem starfar undir merkjum Menn­ing­ar­mála­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNESCO). Þeir eru Sjáv­ar­út­vegs­skóli Þró­un­ar­sam­vinnu­mið­stöðvar UNESCO, Land­græðslu­skóla Sam­ein­uðu þjóð­anna og Jarð­hita­skóla Sam­ein­uðu þjóð­anna. Það er frá­bær leið í þró­un­ar­sam­vinnu að efla og styrkja þekk­ing­una í fátæk­ari ríkjum heims en líka á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna og þá geta Íslend­ingar beitt sér þótt við séum fámenn þjóð. Það sást með setu Íslands í mann­réttinda­ráð­inu að við höfðum þar sterka rödd og að við þurfum ekki að vera feimin við að taka mál­efni föstum tökum og berj­ast fyrir þeim. Við þurfum nátt­úr­lega að taka til heima fyrir og passa okkur á að vera góð fyr­ir­mynd.“

Íslend­ingar þurfa að sjálf­sögðu að spýta í lóf­ana og gera sitt til þess að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Vera er með B.A. gráðu í stjórn­mála­fræði frá Háskóla Íslands og M.A. gráðu í öryggis- og varn­ar­mála­fræðum frá Georgetown háskóla. Hún hafði starfað hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum erlendis í þrjú ár áður en hún tók við stöðu fram­kvæmda­stjóra Félags Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi árið 2016 en hún vann hjá UNICEF í Sómalíu og UNRWA (Palest­ínu­flótta­manna­að­stoð­inni) í Líbanon.

Störf hennar í þessum löndum höfðu áhrif á hana.

„Ég sá hvað lífið er raun­veru­lega ótrú­lega auð­velt á Íslandi. Ég ætla ekki að gera lítið úr fólki sem upp­lifir Ísland ekki þannig en auð­vitað eru alltaf ein­hverjir sem hafa það mjög erfitt. Hlut­irnir á Íslandi eru bara mun ein­fald­ari heldur en til dæmis í þessum löndum svo sem hvað varðar aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu og námi og það að ná sér í gott inter­net. Það ríkir mikil efn­is­hyggja hjá okkur en ekki til dæmis í Sómalíu.“ Vera nefnir nægju­semi íbúa þar og segir að Íslend­ingar mættu vera nýtn­ari og minnka neysl­una. „Úrgangur heims­ins er nátt­úr­lega bara afleið­ing neyslu. Það lærði ég.“

Vera varð á þessum árum vitni að ýmsu sem fæstir Íslend­ingar upp­lifa. „Það var erfitt þegar ég fór að vinna hjá UNICEF í Sómalíu. Hálfum mán­uði áður en ég hóf þar störf hafði verið gerð sprengju­árás á rútu starfs­manna UNICEF sem flutti starfs­fólk á milli skrif­stof­unnar og gisti­stað­ar­ins. Fjórir lét­ust og enn fleiri slös­uð­ust. Sam­ein­uðu þjóð­irnar eru skot­mark og þetta gerð­ist fyrir starfs­menn UNICEF, Barna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem talað er um í örygg­is­fræð­unum að sé við­kvæm­asta skot­markið.“

Vera hóf þarna störf á meðal syrgj­andi sam­starfs­manna og þar sem hún þekkti ekki fórn­ar­lömbin fékk hún það verk­efni að afhenda fjöl­skyldum þeirra sund­ur­skotin seðla­veski þeirra og blóð­uga pen­inga sem í þeim voru.

Vera hitti ást­ina í lífi sínu í Líbanon og eru þau gift. Hann er frá Írak, heitir Seerwan Shawqi og starfar sem örygg­is­full­trúi hjá UNMAS þar í landi. Þau eiga tvær dætur, tveggja og fjög­urra ára, og í fyrra fékk Seerwan íslenskan rík­is­borg­ara­rétt og er því með tvö­faldan rík­is­borg­ara­rétt í dag. Vera flutti til Íslands þegar hún tók við starfi fram­kvæmda­stjóra Félags Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi og hefur Seerwan því komið af og til til lands­ins til að hitta fjöl­skyldu sína.

Hálfum mán­uði áður en ég hóf þar störf hafði verið gerð sprengju­árás á rútu starfs­manna UNICEF

Vera vill breyta til. Hún saum­aði sem barn og ung­lingur og byrj­aði á því aftur í fæð­ing­ar­or­lofi. Það varð til þess að áhug­inn kvikn­aði og varð svo mik­ill að hún setti á stofn vef­verslun, litlamusin.is, þar sem hún selur efni sem hún flytur inn auk þess sem hún sér­saumar barna­föt eftir pönt­unum. Þetta hefur gengið það vel að hún ætlar að fara í árs­leyfi frá Félagi SÞ og ein­beita sér að þessu nýja ævin­týri og í haust ætlar hún auk þess að bjóða upp á dömu­fatnað.

„Mér fannst vanta líf­ræn efni, sjálf­bæra vefn­að­ar­vöru, þegar ég fór að sauma í fæð­ing­ar­or­lof­inu þannig að ég fór að flytja inn efni. Svo fór þetta að vinda upp á sig og fór að sauma föt og selja. Ég hugsa út í hvaðan fötin mín koma og hverjir bjuggu þau til þannig að ég er farin að sauma næstum því öll mín föt sjálf. Ég vil geta boðið upp á eins sjálf­bæran fatnað og hægt er á Íslandi og eitt­hvað sem fólki líður vel í.“

Bómullin er tínd í Indlandi og efnin eru fram­leidd á Evrópu. „Ég er með sænska, finnska, hol­lenska og þýska hönnun.“

Dömu­fatn­að­ur­inn verður seldur undir merk­inu Er Design og mun Vera leggja áherslu á að sér­sauma fyrir hvern við­skipta­vin. „Stundum er erfitt að finna flík sem hentar af því að það eru ekki allir eins vaxnir. Ég hef verið að dútla mér við að breyta sniðum og teikna upp mín eigin og svo verð ég með eigin hönnun á efnum; þetta er reyndar ekki mín hönnun þannig lagað heldur hönnun sem var gerð fyrir mig eftir mínum óskum þannig að mynstrin verða ein­stök fyrir mína hönnun. Þetta verður allt úr líf­rænni bóm­ull og þegar um gervi­efni er að ræða verða þau með vottun. Áherslan verður á „slow fas­hion“ vegna þess að tísku­iðn­að­ur­inn er nátt­úr­lega stór­meng­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ