Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Páll Bergþórsson, 98 ára, flutti eldmessu: „Mestu máli skiptir að fara vel með okkar dýrmætu jörð“

Páll Bergþórsson, 98 ára, flutti eldmessu: „Mestu máli skiptir að fara vel með okkar dýrmætu jörð“
Páll Berg­þórs­son er 98 ára. Hann hugsar til fram­tíðar. Mynd: Facebook

„Allar hugs­andi verur velta fyrir sér fram­tíð­inni, hvort sem þær eru tíu ára og langar til að verða stærri, eða hund­rað ára og velta fyrir sér jarð­ar­för sinni,“ sagði Páll Berg­þórs­son, fyrr­ver­andi veð­ur­stofu­stjóri, í sam­sæti vegna 98 ára afmælis síns þar sem hann fluttui sann­kall­aða eld­messu. Páll er einn af virt­ustu fræði­manna á sviði veð­ur­fræði. Hann hefur haldið úti veð­ur­spám frá því hann hætti störfum fyrir rúmum 30 árum. Honum eru umhverf­is­málin hug­leikin.„En fyrir hugs­andi mann­verur skiptir það líka máli hvað ger­ist miklu seinna, jafn­vel hvenær ísöldin byrjar eða hvenær hún hættir eftir svo sem 80 þús­und ár. Það er það síð­asta sem ég hef verið að velta fyrir mér áður en ég nálg­ast hund­rað árin“.Páll segir að árið 2015 hafi margir farið að ótt­ast of mikil hlý­indi og eld­hættu í gróðri jarðar. Á sama tíma fari þó senni­lega olía, gas og kol að eyð­ast með tím­anum, enda æski­legt að minnka notkun þeirra.

Þá þarf að virkja hóflega

„Þá þarf að virkja hóf­lega aðrar orku­lindir eins og henta þykir vegna loft­hita, svo sem sól­skinið og vindana, en nýt­ing þeirrar orku með raf­væð­ingu þarf að aukast þegar ísöldin fer að sýna sig. Vetni kemur þar líka mjög til greina sem ný orku­lind. Upptaka þess­ara nýju orku­linda ætti að geta dregið úr hörku ísald­ar­innar,“ sagði Páll.Hann er með ráð til mann­kyns til að kom­ast í gegnum næstu ísöld.

„Mann­fækkun verður þó senni­lega mikil með því tíma­bili vegna fækk­andi fæð­inga, þó að fóst­ur­eyð­ingum kunni að fækka með tím­anum. Þá þarf að ástunda hag­sýni og sparnað, með því að auka ræktun græn­metis og ávaxta og stunda hóf­legar veiðar í vötnum, ám og höfum hita­belt­is­ins, en þar verða helstu heim­kynni mann­kyns á ísöld­inni. Öðru lífi en manns­ins þarf svo að sinna eftir mætti og aðstæðum á hverjum tíma. Brott­kast mat­væla og ann­arra nauð­synja ætti þá eins og endranær að forð­ast, bæði í fyr­ir­tækjum og á heim­ilum“.

Páll sem nálg­ast það að verða 100 ára rýnir inn í fram­tíð­ina.„Eftir þá breyti­lega kóln­andi ísöld, allt að því í 100 þús­und ár, tekur vænt­an­lega við hröð hlýnun og mann­fjölgun, og stutt en lang­þráð hlý­skeið jarðar líkt og það sem nú stendur yfir. En í þessum flóknu og stundum erf­iðu málum þarf að verða frið­sam­leg sam­búð mann­kyns­ins með sem mestu jafn­rétti og sam­vinnu ein­stak­linga og þjóða, ef vel á að fara. Því mark­miði er hægt að fara að sinna strax í dag. Það sem meira máli skiptir nú en nokkru sinni er að fara vel með okkar dýr­mætu jörð, eftir því sem vit okkar og kraftar leyfa.Ég óska ykkur inni­lega allra heilla,“ sagði afmæl­is­barnið.Erindi Páls var birt á Facebooksíðu hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ