Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Hér er feitt fólk tákn fyrir óhlýðna borgara sem kjósa eigin hvatir umfram samfélagslega skyldu“

„Hér er feitt fólk tákn fyrir óhlýðna borgara sem kjósa eigin hvatir umfram samfélagslega skyldu“
Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir

Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir félags­ráð­gjafi og for­maður Samtaka um lík­ams­virð­ingu er ákveðin kona og alls ófeimin að tjá skoð­anir sínar:

Hún veltir því aðeins fyrir sér „af hverju fólk lætur sig hafa „grín“ um holda­far sitt? Athugið, ég er ekki að tala fyrir Sveppa eða gera honum upp upp­lifun heldur tala almennt út frá því sem við vitum um þetta ferli.“

Tara segir að „við búum í sam­fé­lagi sem ein­kenn­ist af „healt­hism.“ Þetta hug­tak var búið til í þeim til­gangi að lýsa press­unni á ein­stak­linga að vinna að því dag og nótt að hámarka heilsu sína. Þessi hug­mynda­fræði hefur síðan skapað „wellness-brans­ann“ eins og hann leggur sig í dag með öllum sínum kúrum – skottu­lækn­ingum og gróða­sjón­ar­miðum. „Healt­hism“ hefur einnig gert það að verkum að við for­dæmum fólk sem tekur ekki þátt í þess­ari veg­ferð með rest­inni af sam­fé­lag­inu; við álítum það ekki vera að standa sína sam­fé­lags­legu „plikt“ með því að hámarka heil­brigði, fram­leiðni og gæta þess að verða ekki „baggi“ á heil­brigð­is­kerf­inu.“

Hún segir að í nútíma­sam­fé­lagi sé feitt fólk tákn­mynd fyrir hinn óhlýðna borg­ara sem kýs eigin hvatir umfram sið­ferð­is­lega og sam­fé­lags­lega skyldu sína. For­dæm­ingin fyrir það sé óum­deil­an­leg enda eru „fitu­for­dómar með algeng­ustu teg­undum for­dóma.

Upp úr þessu verða svo til hug­tökin um góðu feitu­boll­una – „good fatty“ – og slæmu feitu­boll­una – „bad fatty.“ „Góða“ feita­bollan veit að hún er ekki að standa sig og reynir allt sem hún getur til að snúa því við. Hún er alltaf fyrri til að segja frá því hvað hún er óheil­brigð og mik­ill aum­ingi, hún tekur þátt í öllum kúr­unum, eyðir ómældum tíma í rækt­inni og er alltaf að reyna að grenn­ast til að geta orðið full­gildur borg­ari og spara sam­fé­lag­inu fjár­muni.“

Og Tara bætir við:

„Nei, hún er kannski ekki í „optimal“ formi en hún er þó með­vituð um það og er að reyna að snúa því við. Með því að tala opin­skátt um það sem hún er að gera í þeirri við­leitni sinni er hún jafn­framt að biðja um synda­af­lausn. Og það virkar. Með því að gera þetta öðl­ast hún aukið sam­þykki frá sam­fé­lag­inu. Hún hlýðir reglum sam­fé­lags­ins að ein­hverju leyti og á skilið smá „kúdos“ fyrir það.“

En „slæma“ feita­bollan gefur hins­vegar skít í sam­fé­lags­legu regl­urnar. Hún er ekki að reyna að grenna sig, hún læð­ist ekki með­fram veggjum og hún ögrar jafn­vel „status quo-inu“ með að fá sér ham­borg­ara á almanna­færi,“ og hún klæðir sig í „föt sem þykja ekki „flatt­er­ing“ og meira að segja ögrandi fyrir hennar lík­ama. Mögulega er henni sama um feit­leika sinn og jafn­vel drýgir hún alvar­leg­ustu synd­ina; að vera stolt af honum. Hún þver­brýtur allar regl­urnar um hvernig skuli vera sam­fé­lags­lega gildur borg­ari og fyrir það á hún alla útskúfun­ina skilið.“

Tara nefnir dæmi:

„Eitt dæmi um þetta er ann­ars­vegar þegar fyrrum feitt fólk talar opin­ber­lega um hvernig það fór að því að grenn­ast og hins vegar þegar ég tala opin­ber­lega um að vera stolt feit kona. Fólkið sem „gerði eitt­hvað í sínum málum“ hlýtur vel­þóknun sam­fé­lags­ins. Ég er hins vegar svo kol­klikkuð að það þarf að henda mér hið snarasta upp á geð­deild. Það á ekki að hleypa mér í fjöl­miðla enda greini­lega fár­veik kona sem þarf á fag­að­stoð að halda. Og ég er að hvetja annað fólk til að verða jafn veikt og ég og þar með baggi á heil­brigð­is­kerf­inu. Ég er „public enemy no 1.“

Hún segir einnig að „flest feitt fólk eru góðar feita­bollur; það er full­kom­lega skilj­an­legt. Það er nógu erfitt að vera feitur í fitu­hatandi sam­fé­lagi þó þú gerir ekki illt verra með því að hafna leiðum að sam­fé­lags­legu sam­þykki. Að vera góð feita­bolla er einnig merki um að þú hafir inn­rætt með þér fitu­for­dómana; þú virki­lega trúir því að þú sért ekki jafn rétthá mann­eskja og grannt fólk. Og þess vegna áttu allt grínið um holda­far þitt skilið, sama hvað það særir. Þú komst þér á þennan stað sjálft – þú verður bara að díla við þetta. Þegar við bæt­ist eitruð karl­mennska þar sem er krafa á þig að „taka þetta á kass­ann“ og hætta þessu væli ann­ars verð­urðu fyrir útskúfun frá vina­hópnum hvað ertu þá að fara að gera? Nú, auð­vitað seg­irðu ekk­ert!“

Hún segir að „þú meira að segja tekur stolt við við­ur­nefnum og enda­lausum skotum tengdum holda­fari þínu. Það er þín staða innan hóps­ins og hún þýðir alla­vega að þú ert partur af honum en ekki utan hans. Þú tekur kannski fullan þátt í þessu og gerir grín að holda­fari þínu.“

Einnig að „self depreciating“ húmor er bara leið fyrir þig til að vera fyrri til með áreitið til að minnka áhrifin. En auð­vitað hefur þetta samt áhrif á þig. Þó að eitt komment geri það kannski ekki safn­ast þau smátt saman og það hefur áhrif á það hvernig þú upp­lifir þig og lík­ama þinn; það hefur áhrif á skynjað virði þitt innan sam­fé­lags­ins. Sam­fé­lagið allt ásamt vinum og vanda­fólki segir þér að þú sért minna virði vegna holda­fars þíns og þú trúir því. Afleið­ingar þess eru gígantískar fyrir heil­brigði þitt og vel­ferð þína.“

Bætir við:

„Ef þú tekur þátt í þessu ertu að festa þetta stig­veldi eftir holda­fari í sessi og þú ert að miðla því til fólks­ins í kringum þig, þar á meðal barn­anna þinna, sem alast upp við að trúa því líka. Næst þegar þú ætlar að verja „sak­laust grín“ um hold­ar­far hugs­aðu þig tvisvar um, því hvað ertu að gera fólk­inu sem þér þykir vænt um? Hvað ertu að gera sjálfum þér? Og gerðu svo betur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ