Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Oddviti Garðabæjarlistans: „Óásættanlegt að farið sé á skjön við lög um opinber innkaup“

Oddviti Garðabæjarlistans: „Óásættanlegt að farið sé á skjön við lög um opinber innkaup“
Gunnar Ein­ars­son bæj­ar­stjóri Garð­an­bær og Björg Fenger for­seti bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar

Mannlíf hefur einn fjöl­miðla fjallað um spill­ingu sem virð­ist ríkja í bæj­ar­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ og varðar sér­stak­lega tvennt:

Annars vegar klúður varð­andi hina svoköll­uðu „Millj­arða­höll“ sem er knatt­spyrnu­hús sem kost­aði fimm millj­arða króna en er með of lága loft­hæð til að hægt sé að leika þar í efstu deildum karla og kvenna í knatt­spyrnu og þar af leið­andi lands­leiki líka.

Hins vegar aug­ljós hags­muna­tengsl for­seta bæj­ar­stjórnar meiri­hlut­ans í Garðabæ, Bjargar Fenger, sem fékk samn­ing frá Garðabæ án almenns útboðs til fyr­ir­tækis sem er að stórum hluta í eigu hennar, Terra – áður Gáma­þjón­ustan.

Garða­bæj­ar­list­inn er leiddur af Söru Dögg Svan­hild­ar­dóttur og hefur hún og félagar hennar í Garða­bæj­ar­list­anum ítrekað bent á það sem þau vilja meina að séu óeðli­legir stjórn­un­ar­hættir; þar sem keypt þjón­usta hefur ítrekað ekki verið boðin út sem skyldi, fyrr en Garða­bæj­ar­list­inn kall­aði eftir aðgerðum, þegar úttekt á stjórn­sýslu stað­festi þá gagn­rýni enn frekar:

Sara Dögg.

„Því kom það veru­lega á óvart þegar lagður var fram samn­ingur til sam­þykktar um leigu/kaup á fær­an­legum ein­gingum frá Terra ehf án útboðs. En slík vinnu­brögð eru ekki til þess fallin að auka traust eða trú­verð­ug­leika að vandað sé til verka þegar farið er með skattfé íbúa sveit­ar­fé­lags­ins,“ segir Sara Dögg og bætir við:

„Við fáum ekki annað séð en að farið sé á svig við lög um opin­ber inn­kaup með því að bjóða ekki út leigu og/eða kaup á fær­an­legum ein­ingum sem rísa eiga í haust sem ung­barna­leik­skóli. Svör bæj­ar­stjóra hingað til hafa verið mis­vísandi um leið­ina sem ákveðið var að fara þegar gengið var til samn­inga við Terra ehf án útboðs.“

Sara Dögg lagði fram eft­ir­far­andi bókun á fundi í bæj­ar­ráði í vik­unni:

„Fram­komin svör eru í hróplegu ósam­ræmi við bókun meiri­hlut­ans frá 6. júlí síð­ast­liðnum, en  þar er full­yrt að leiga á „fast­eign eins og þeirri sem hér um ræðir“ sé und­an­skilin gild­is­sviði laga um opin­ber inn­kaup. Nú er ljóst að það er rangt, því hér er ekki um að ræða „fast­eign“ í skiln­ingi laga heldur lausafé – það er vöru. Lög um opin­ber inn­kaup eiga því við og skýr útboðs­skylda hvílir á Garðabæ,“ segir Sara Dögg og bætir við:

„Í 3. mgr. 4. gr. laga um opin­ber inn­kaup er skýrt kveðið á um þá samn­inga sem lögin taka til, meðal ann­ars vörusamn­inga sem hafa að mark­miði kaup eða leigu, með eða án kaupréttar. Útil­okað er að 39. gr. um samn­ings­kaup án útboðs­auglýsinga eigi hér við. Garða­bæj­ar­list­inn harmar að ekki hafi verið brugð­ist fyrr við þeirri gríðar­legu vöntun á leikskólaplássi í Garðabæ sem blasað hefur við í langan tíma. Þá teljum við einnig óásætt­an­legt að farið sé á skjön við lög um opin­ber inn­kaup. Markmið með þeim lögum er meðal ann­ars að tryggja jafn­ræði fyr­ir­tækja og stuðla að hag­kvæmni í opin­berum rekstri með virkri sam­keppni.“

Hún nefnir einnig að „Garða­bæj­ar­list­inn kall­aði eftir upp­bygg­ing­aráætlun síðasta haust og að brugð­ist yrði strax við skorti á leikskólaplássi. Ef það hefði verið gert þá væri Garðbær ekki að vand­ræð­ast með leigu og/eða kaupum á 27 fær­an­legum húsaein­ingum þar sem lög og reglur eru snið­gengin. Við þurfum að standa fag­lega að verki, sjá íbúaþróun fyrir og vera tilbúin með þjónust­una sem búið er að lofa verði fyrir hendi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við