Fjögurra ára strákur hjálpaði systur sinni að gera lokaverkefni í uppeldisfræði. Nú er komin út barnabók eftir systkinin.

Júlíu Hrönn Hjálmarsdóttur vantaði efni í lokaverkefni í uppeldisfræði til stúdentspróf og bað því fjögurra ára litla bróður sinn, þann yngsta í sex manna systkinahópi, að segja sér sögu. Úr varð sagan Ævintýri músadrekans. Júlia Hrönn myndskreytti söguna sjálf og fékk verkefnið topp einkunn.

Eftir útskriftina, fór móðir þeirra, Ragna Júlíusdóttir á stúfana með handritið og reyndi að fá söguna útgefna. Að lokum beit bókaútgáfan Leó á agnið og út er komin bókin.
Júlia Hrönn er 25 ára og stundar nám við Háskóla Íslands, í uppeldis og menntunarfræði en bróðir hennar, Gunnar Elís er fjögurra ára og stundar nám við leikskólann Tjarnarás í Hafnarfirði. Móðir þeirra segir að Júlía hafi teiknað frá því að hún gat haldið á penna og að Gunnar sé sögumaður að Guðs náð.

Verður að teljast öruggt að Gunnar Elís sé einn yngsti barnabókahöfundur landsins, þótt víðar væri leitað.































Athugasemdir