Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Erlingur hataði félagsskapinn „Stelpur sem spiluðu fótbolta voru „ljótar lesbíur“’

Erlingur hataði félagsskapinn „Stelpur sem spiluðu fótbolta voru „ljótar lesbíur“’

„Ég hætti áður en tíma­bilið byrj­aði, ástæðan var sú að ég hataði hverja ein­ustu sek­úndu í þessum félags­skap“.

Þetta skrifar Erlingur Ein­ars­son á Twitter reikn­ingi sínum í gær um þá menn­ingu sem hann upp­lifði þegar hann spil­aði fót­bolta. „Ég spil­aði einu sinni fót­bolta. Þráður“

Erlingur segir að hann, líkt og svo margir krakkar hafi elskað að spila fót­bolta.
Þar sem hann bjó í sveit hafi tæki­færi til þess að spila “alvöru“ fót­bolta verið af skornum skammti þar til á ung­lingsár var komið. „Þegar ég var 15 ára mætti lið frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu á svæðið og ég fékk að æfa með þeim, ég var ekk­ert sér­lega góður en kúlt­úr­inn virk­aði skemmti­legur“.

Í fram­hald­inu flutti Erlingur í bæinn, fór í mennta­skóla og æfði með öðru liði á svæð­inu.
„Það voru margir efni­legir leik­menn í lið­inu, alla­vega einn sem spil­aði seinna með lands­lið­inu og margir sem komust í úrvals­deild­ina“.
Erlingur seg­ist ekki hafa verið með þeim bestu í lið­inu en gat hann spilað með B-liði.
„Lagði upp tvö, þrjú mörk í æfinga­leikjum og lærði hratt að spila betri vörn til að gera spilað bak­vörð og kant­stöðu.“
„Ég hætti áður en tíma­bilið byrj­aði, ástæðan var sú að ég hataði hverja  ein­ustu sek­úndu í þessum félags­skap. Hver ein­asta æfing var yfir­full af ofbeld­is­blæt­is­fylltri karl­rembu, það var hreytt þreyttum les­bíu og kyn­ferðis “brönd­urum“ í stelpulið sem æfðu á undan okkur,  og bún­ings­her­bergið, jesús.

Erlingur lýsir hegðun og and­anum sem var í klef­anum en eru lýs­ing­arnar slá­andi.
„Þegar það var ekki verið að stæra sig af kyn­ferð­is­legum yfir­burðum sínum var blautum hand­klæðum smellt í rass­inn á þeim sem “klikk­uðu“ á ein­hverju á æfingum, hraunað yfir hitt kynið, hómó­fóbían á fullu auð­vitað, og allt eftir því.“

Reynsla hans eftir síð­ustu æfing­una með lið­inu situr enn í Erlingi, 23 árum síðar, en mætti hann aldrei aftur á æfingu eftir atvikið.
„Þá var því lýst yfir af “leið­togum“ liðs­ins að það væri hefð að sá sem skor­aði fyrsta markið yrði “verð­laun­aður“ með því að restin af lið­inu myndi fróa sér yfir hann í klef­anum eftir leik, og þeir sem tækju ekki þátt yrði sjálfum “refsað“ með nákvæm­lega sama hætti. Ég mætti aldrei aftur á æfingu.“

Erlingur veit ekki hvert fram­haldið var og hvort þetta hafi bara verið svo­kallað “locker room talk“.
Hann bætir við að þessi lífs­reynsla hafi sagt honum að það sé, og hafi verið lengi ban­eitruð karl­mennska í Íslenskum fót­bolta.

„Þetta voru ungir strákar, 15, 16, 17 ára. Þeir lærðu þetta ein­hvers staðar. Frá eldri leik­mönnum.“
„Stelpur sem spil­uðu fót­bolta voru “ljótar les­b­íur“. Hommar yrðu barðir ef þeir lætu sjá sig í klef­anum með fót­boltaliði. Og ef þú værir ekki “með“ í stemn­ing­unni yrði níðst á þér“.

Erlingur segir það barna­legt við­horf að halda að þessi við­horf og fram­koma myndi ein­ungis eiga sér stað í klef­anum.
„Hvað ef þeir fengju svo allt í einu fullt af pen­ing plús aðdáun pöp­uls­ins í ofaná­lag, af því þeir voru góðir í fót­bolta (þar sem þeir lærðu þessa heims­sýn)? Þrjú gisk.“

Nokkrum árum síðar seg­ist Erlingur hafa verið að þjóna til borðs á loka­hófi Úrvals­deildar og orðið þar vitni að sama talsmáta og við­horfum er hann lýsir að ofan.

„Þess vegna á ég ekki erfitt með að trúa þolendum.“

Erlingur við­ur­kennir að hann hafi sjálfur sagt ósmekk­lega brand­ara á sínum yngri árum sem hann skammist sín fyrir í dag.
Hann furðar sig á hvers vegna eng­inn sagði neitt við þess­ari hegðun.
„Af hverju lét ég mig bara hverfa? Einfalda svarið er: ég var ekki nógu hug­rakkur. Flókna svarið er vafið inn í blöndu hóp­þrýst­ings, kvíða, and­legrar sjálfs­varnar og sam­fé­lags­norma. Það eru þessi sam­fé­lags­norm sem þarf að takast á við“.
Skrifar Erlingur undir lokin að þetta sé verk­efni sem þurfi að vinna saman.
„Við getum hjálpað hvort öðru að vera hug­rökk og aðeins með því að standa með þolendum sam­tíð­ans og for­tíð­ar­innar getum við fækkað þolendum fram­tíð­ar­innar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ