Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Verjandi Angjelin krefst þess að honum verði ekki refsað fyrir morðið á Armando

Verjandi Angjelin krefst þess að honum verði ekki refsað fyrir morðið á Armando

Verjandi Angjelin Sterkaj í Rauða­gerð­is­mál­inu, sem hefur einn játað sök, krefst þess í grein­ar­gerð til Hér­aðs­dóms Reykja­víkur að Angjelin verði ekki dæmdur til refs­ingar fyrir morðið á Armando Beqiri – sem hann skaut níu sinnum.

Verj­and­inn segir að morðið hafi verið örþrifa­ráð föður; föður sem hafi verið hótað líf­láti af mönnum sem lög­regla telur að teng­ist skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Hótanir þeirra hafi beinst bæði að honum sem og syni hans.

Frétta­stofa RÚV óskaði eftir þessum grein­ar­gerðum um leið og þær voru lagðar fram, en tafir urðu á því að verj­endur sam­þykktu að þær yrðu afhentar, en dóm­ari rak á eftir því í rétt­ar­hald­inu í vik­unni og þær hafa nú borist RÚV.

Angjelin Sterkaj gaf skýrslu fyrir dómi síð­asta mánu­dag og þótt skýrslutakan hafi staðið í nærri þrjár klukku­stundir gefur grein­ar­gerðin skýr­ari mynd af vörn hans í þessu hræði­lega máli.

Þar kemur meðal ann­ars fram að Armando og félagi hans hafi hótað honum ef hann aðstoð­aði þá ekki við að rukka Anton Kristin Þór­ar­ins­son, sem sat um tíma í gæslu­varð­haldi vegna máls­ins, um tíu millj­ónir króna.

Anton gaf skýrslu fyrir hér­aðs­dómi í vik­unni og kann­að­ist ekki við að hafa átt í úti­stöðum við Armando og þaðan af síður að Armando og félagi hans hafi ætlað að inn­heimta skuld.

Anton hefur verið grun­aður um að vera umsvifa­mik­ill í und­ir­heimum og í byrjun árs var gögnum úr við­kvæmri lög­reglu­rann­sókn lekið á netið, sem bentu til þess að hann hefði verið upp­lýs­inga­gjafi lög­reglu.

Verjandi Angjelin segir í áður­nefndri grein­ar­gerð að skjól­stæð­ingur hans hafi keypt sér byssu sem hann hafi hafi haft á sér öllum stundum.

Í grein­ar­gerð­inni er síðan vitnað til ummæla Margeirs Sveins­sonar á blaða­manna­fundi í mars  þar sem hann var spurður hvort hann teldi að Armando tengd­ist skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Margeir sagði á fund­inum að hann teldi svo vera en þegar hann kom fyrir hér­aðs­dóm í vik­unni neit­aði hann að svara frek­ari spurn­ingum um það mál til að vernda rann­sókn­ar­hags­muni.

Engu að síður telur Verjandi Angjelin að gögn máls­ins styðji tengsl Armando við skipu­lögð glæpa­sam­tök; nefnir að svört minn­is­bök hafi fund­ist á heim­ili hans, þar sem finna mátti skulda­lista og þá séu til gögn um að hann hafi verið að selja fíkni­efni.

Þá er í grein­ar­gerð­inni vitnað til ummæla ekkju Armando um að hún hafi orðið vör við deilur milli hópa í dyra­varða­starf­semi, en Armando rak dyra­varða­fyr­ir­tæki.

Verj­and­inn segir Angjelin hafa þekkt hugs­un­ar­gang Armando og sam­verka­manna hans sem hafi hótað að drepa hann og son hans. Því hafi hann talið þessa menn hættu­lega; að gögn máls­ins bentu til þess að þetta hafi ekki verið ein­hver væn­i­sýki hjá honum.

Verj­and­inn segir að Angjelin hafi ætlað að leysa málin þegar hann fór til fundar við Armando laug­ar­dag­inn 13. febr­úar. Hann tók með sér byssu ef svo færi að hann þyrfti að verja sig.

Þegar þeir hitt­ust hafi Armando rokið í átt að Angjelin með líf­láts­hót­unum og hann þá áttað sig á því end­an­lega að Armando myndi standa við hót­anir sínar um að drepa hann og son hans. Angjelin hafi því ekki séð annan kost í stöð­unni en að skjóta Armando.

Rétt­ar­meina­fræð­ingur sem gaf skýrslu fyrir dómi sagði að Angjelin hefði verið minnst metra frá Armando þegar hann skaut hann níu sinnum. Þá bendir margt til þess að Armando hafi verið skot­inn í bakið.

Verj­and­inn undr­ast að ákæru­valdið hafi ekki orðið við ítrek­uðum óskum um að fá aðgang að þeim síma­gögnum sem lög­reglan hafi lagt hald á hjá Armando og félögum.  Þar gætu verið að finna vera upp­lýs­ingar sem geti varpað skýr­ara ljósi á aðdrag­anda þess að Armando var myrtur og hvers vegna Angjelin taldi sig þurfa að hitta Armando einan.

Því er sömu­leiðis hafnað að aðrir sak­born­ingar í mál­inu hafi getað vitað eða séð fyrir að Angjelin myndi fremja þann verknað sem hann er ákærður fyrir.

Í grein­ar­gerð­inni er vikið að rann­sókn lög­regl­unnar og það er meðal ann­ars gagn­rýnt að lög­reglan skyldi aldrei hafa tekið mið af þeim mögu­leika að mann­drápið kynni að hafa verið ein­hvers konar örþrifa­ráð manns sem staf­aði ógn af Armando og þeim skipu­lögðu glæpa­sam­tökum sem hann gæti hafa tengst.

Þá telur verj­and­inn vís­bend­ingar um að lög­reglan hafi ekki gætt hlut­leysis við rann­sókn máls­ins og neitun eða þögn ákæru­valds­ins um að afhenda eða afla ýmissa gagna leiði til vafa um hvað hafi gerst á bak við tjöldin; einnig að túlkun í mál­inu hafi verið veru­lega ábóta­vant og hún sé á vissum stöðum hrein­lega röng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ