Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Stærsta augnablik Rakelar: „Þegar ég sætti mig loks við það að ég væri samkynhneigð“

Stærsta augnablik Rakelar: „Þegar ég sætti mig loks við það að ég væri samkynhneigð“

Mynd­list­ar­konan færa, Rakel Tóm­as­dóttir, er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Óhætt er að segja að Rakel hafi vakið mikla athygli fyrir verk sín, allt frá því að hún hélt sína fyrstu sýn­ingu árið 2018. Auk teikn­inga og mál­verka, hefur Rakel meðal ann­ars gefið út dag­bækur, skissu­bók og lista­verka­bók, sem geymir verk eftir hana og veitir inn­sýn inn í líf lista­manns­ins. Hægt er að skoða verk Rakelar inn á vefnum rakeltomas.com.
Mannlíf komst að því að Röntgen er upp­á­halds skemmti­staður Rakelar, hún drekkur ekki gos og hennar mesta gleði var þegar hún vann Norð­ur­landa- og Evr­ópu­meist­ara­titil í hóp­fim­leikum.

Fjöl­skyldu­hagir? Þriðja hjólið í nokkrum frá­bærum sam­böndum.

Menntun/atvinna? Lærði graf­íska hönnun í LHÍ en vinn í dag sem mynd­lista­kona og let­ur­hönn­uður með smá grafík inn á milli.

Upp­á­halds Sjón­varps­efni? Þessa dag­ana er það allt sem teng­ist kosn­ing­unum, en aðra tíma árs­ins er það allt sem Shonda Rhimes gefur frá sér.

Leikari? Cate Blanchet

Rit­höf­undur? Julie Houts, hún er reyndar aðal­lega teikn­ari, en blandar saman teikn­ingum og texta mjög skemmti­lega í því sem hún gerir.

Bók eða bíó? Bíó, hryll­ings­myndir eru glæ­nýtt áhuga­mál.

Besti matur? Sushi í góðum félags­skap.

Kók eða Pepsí? Hvorugt, hef aldrei drukkið gos. Þegar ég var lítil var það af því að mér fannst búbblurnar stinga í tung­una, en í dag af því ég byrj­aði aldrei.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Lem­bongan sem er lítil eyja við Balí. Fór þangað fyrir tveimur árum og leið eins og ég væri mætt inn í póst­kort. Finnur ekki tær­ari sjó til að kafa í og það að horfa ofan á kór­al­rif af brim­bretti er minn­ing sem gleym­ist seint.

Hvað er skemmti­legt? Ferðast, sörfa, snjó­bretti, kynn­ast nýju fólki, upp­lifa nýja hluti og eiga rauð­vínstrúnó með vin­konum sem þekkja mann betur en maður sjálfur.

Hvað er leið­in­legt? Að bíða.

Hvaða flokkur? Það breyt­ist milli daga … og vina­hópa.

Hvaða skemmti­staður? Röntgen, mitt annað heim­ili.

Kostir? Metn­að­ar­full, opin og tek hlut­unum ekki of alvar­lega

Lestir? Óþol­in­mæði og frest­un­ar­árátta. Tvenna sem fer ekk­ert sér­stak­lega vel saman.

Hver er fynd­inn? Torfi litli bróðir minn, sér­stak­lega þegar hann er svangur og pirr­aður.

Hver er leið­in­legur? Ókunnugi mað­ur­inn sem starði á mig eins og dýr í búri í gegnum glugg­ann á studi­oinu mínu um dag­inn.

Trúir þú á drauga? Já, en bara góða drauga, það að trúa á vonda drauga er algjör óþarfi.

Stærsta augna­blikið? Ætli það hafi ekki verið augna­blikið þegar ég sætti mig loks­ins við það að ég væri sam­kyn­hneigð, lítið augna­blik sem hafði svo ótrú­lega stór og marg­þætt áhrif á allt lífið eftir það.

Mestu von­brigðin? Þegar Selma vann ekki Eurovision 1999.

Hver er draum­ur­inn? Að búa til þannig líf að ég geti verið frjáls til að elta alla draumana, hverjir sem þeir eru á hverjum tíma fyrir sig.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Sýningin mín “Hvar ertu?” sem ég hélt í ágúst og allt sem tengd­ist henni.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Alls ekki, það væri glatað ef maður væri búin að ná öllum mark­mið­unum í líf­inu, þegar maður nær mark­miði býr maður bara til nýtt.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Æj nei, allt sem mér finnst fyndið er svona had-to-be-there dæmi.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Ísland er lítið, les­bíu-sam­fé­lagið enn minna, það býður upp á alls­konar vand­ræða­leg augna­blik.

Sorg­leg­asta stundin? Það er alltaf sorg­leg­ast að missa fólk, hvort sem mann­eskjan fellur frá eða fer úr líf­inu manns af öðrum ástæðum.

Mesta gleðin? Það toppar ekk­ert að vinna Norð­ur­landa- eða Evr­ópu­meist­ara­titil í hóp­fim­leikum. Sig­ur­víman og að deila því með bestu vin­konum sínum er gleði sem er ekki hægt að lýsa.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Að lifa líf­inu lif­andi og njóta þess á meðan, mynda fal­leg sam­bönd og fylgja hjart­anu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ