Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hugi Halldórsson hættur: „Takk fyrir mig, þetta var rússibani“

Hugi Halldórsson hættur: „Takk fyrir mig, þetta var rússibani“

Hugi Hall­dórs­son, einn þátta­stjórn­enda í sport-hlað­varps­þátt­unum vin­sælu The Mike Show, hefur ákveðið að hætta í þætt­inum vin­sæla.

Hugi komst hressi­lega í frétt­irnar í haust eftir að hafa látið vafasöm ummæli falla um Hönnu Björgu Vil­hjálms­dóttur í þætt­inum:

„Svar KSÍ við pistli frá konu með lykla­borð, hún veit ekk­ert um íþróttir. Hún skrifar pistil og KSÍ ákveður tíu dögum seinna að vakna 9:30 og svara henni.“

Hugi tók á sínum málum eins og maður og baðst inni­lega afsök­unar á áður­nefndum ummælum.

Þátt­ur­inn fékk á sig harða gagn­rýni í kjöl­farið og hafa sumir styrkt­ar­að­ilar þátt­anna dregið sig úr sam­starf­inu.

Ekki er hægt að full­yrða að ummæli Huga hafi skaðað þátt­inn svo mikið að hann hafi átt engan kost annan en að hætta svo þátt­ur­inn fengið að lifa áfram, en það er hins vegar frekar lík­legt.

Hugi segir umræð­una und­an­farið hafa opnað augu hans fyrir þeirri eitr­uðu karl­mennsku­menn­ingu sem ríki innan knatt­spyrnu­sam­fé­lags­ins á Íslandi.

Eitruð fót­bolta­karl­mennska

Í þætt­inum sem kom út þann 20. ágúst var farið hörðum orðum um pistla sem bar­áttu­konan Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir hafði skrifað til að vekja athygli á stöðu kyn­ferð­is­brota­mála innan KSÍ, en í kjöl­farið sagði for­maður sam­bands­ins, Guðni Bergsson, af sér störfum sem og öll stjórn KSÍ.

Arnar Sæberg Jónsson, verk­efna­stjóri hjá Reykja­vík­ur­borg, skrif­aði bein­skeytta færslu um The Mike Show og umfjöllun þeirra um Hönnu Björgu á Twitter og í kjöl­farið hafði annar not­andi á Twitter, Valþór Pét­urs­son, sam­band við styrkt­ar­að­ila þátt­anna, og fékk þau svör að hvorki Domino’s né Coca–Cola ætli sér að styrkja þætt­ina áfram.

Hugi birti yfir­lýs­ingu á Twitter vegna máls­ins þar sem hann harmar ummæli sín, taki þau til sín og ætli hann að læra af mál­inu:

„Und­an­farið hefur gengið yfir umræða á sam­fé­lags­miðlum eftir ummæli sem ég lét falla í hlað­varps­þætti. Ég baðst strax afsök­unar á ummælum mínum og sá á eftir þeim, mér urðu á mis­tök.

Ég hef alist upp í og verið við­loð­inn þennan eitr­aða karl­mennsku­heim fót­bolt­ans allt mitt líf. Án þess að gera mér grein fyrir því þá hef ég sam­of­ist menn­ing­unni sem þar ríkir.

Und­an­farið hefur sam­fé­lags­leg umræða opnað augu mín fyrir því hvernig raun­veru­leik­inn er og hversu eitr­aður þessi heimur er. Þetta þarf að breyt­ast. Við þurfum að end­ur­hugsa allt það við­horf sem mætir bæði stúlkum og drengjum í íþróttum.

Ég er 4 barna faðir og er t.d. stutt síðan 6 ára gömul dóttir mín þurfi að berj­ast með kjafti og klóm fyrir jafn­rétti á fót­bolta­vell­inum. Þannig viljum við ekki hafa það og það er nauð­syn­legt að breyta þessu. Ég stend alltaf með þolendum og for­dæmi hvers­konar ofbeldi. Heim­ur­inn þarf að breyt­ast, hann mun breyt­ast og ég ætla að byrja á mér. Dominos sagði skilið við þátt­inn fyrir nokkru síðan, ætla að færa sig yfir í Dr. Football. Ég skil og virði ákvörðun CCEP, hins vegar finnst mér mik­il­vægt að við kennum þá list að ná sáttum og sam­þykkja ein­lægar fyr­ir­gefn­ing­ar­beiðnir. Hvernig ætlum við að breyta þess­ari menn­ingu eða heim­inum til hins betra ef við getum ekki tekið fyr­ir­gefn­ing­ar­beiðnum? Í þessu máli skipta kost­un­ar­að­ilar mig engu máli, þetta er per­sónu­legt, ég ætla að ein­beita mér að því að verða betri mann­eskja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ