Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Skandalar stjórnmálamanna fyrr og síðar: – Grænar baunir, lögbann og ölvunarakstur

Skandalar stjórnmálamanna fyrr og síðar: – Grænar baunir, lögbann og ölvunarakstur

Ýmis mál virð­ast ávallt skjóta upp koll­inum í aðdrag­anda kosn­inga. Sum þeirra er hægt að flokka sem hneyksli; skandala sem jafn­vel geta haft áhrif á úrslit kosn­inga. Alltaf virð­ist eitt­hvað vera um svo­kall­aðar póli­tískar smjör­klípur, önnur mál varða alvar­legar upp­ljóstr­anir og sum eru nán­ast kómísk. Hér á eftir verður farið yfir nokkur hneyksl­is­mál sem eiga það sam­eig­in­legt að hafa komið upp nálægt kosn­ingum.

Kristrún Frosta­dóttir

Kaupaukagreiðslur Kristrúnar Frostadóttur – grunsamlegt eða pólitísk smjörklípa?

Nú nokkrum dögum fyrir kosn­ing­arnar haustið 2021 birt­ist pist­ill í Við­skipta­blað­inu þar sem því er haldið fram að Kristrún Frosta­dóttir, von­ar­stjarna og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður hafi fengið tugi millj­óna úr kaupauka­greiðslum hjá Kviku banka, en Kristrún var aðal­hag­fræð­ingur bank­ans þar til hún ákvað nýverið að snúa sér að stjórn­málum og fara í fram­boð. Við­skipta­blaðið setti þar fjár­fest­ingu Kristrúnar í Kviku banka í sam­hengi við rann­sókn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á Kaupauka­kerfi Kviku.

Kristrún hefur vísað þessum mála­til­bún­aði öllum til föð­ur­hús­anna.

Hún hefur gefið frá sér yfir­lýs­ingu þess efnis að um sé að ræða fjár­fest­ingu í Kviku banka sem öllu starfs­fólki þar hafi boð­ist að taka þátt í á sínum tíma. Hennar fjár­fest­ing hafi verið gerð með eigin sparifé og hún hafi falið í sér áhættu eins og aðrar fjár­fest­ingar. Hefðu hluta­bréf í Kviku banka staðið í stað eða lækkað hefðu hún og maður hennar tapað pen­ing­unum. Kvika hafi hins­vegar vaxið á þeim árum sem hún starf­aði þar og fjár­fest­ingin því reynst gjöful. Kristrún áréttar í yfir­lýs­ingu vegna máls­ins að hún hafi ekki fengið krónu í kaupauka­greiðslu frá Kviku banka og að fjár­fest­ing hennar komi rann­sókn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á kaupauka­greiðslum Kviku ekk­ert við.

Um sé að ræða bragð frá Við­skipta­blað­inu og Morg­un­blað­inu og lík­lega sam­an­tekin ráð til að koma höggi á hana.

„Síðast þegar ég vissi mega fleiri en Sjálf­stæð­is­menn taka þátt á hluta­bréfa­mark­aði,“ segir Kristrún í yfir­lýs­ingu sinni.

Stein­grímur Her­manns­son

Steingrímur og grænu baunirnir

Árið 1987 var Stein­grímur Her­manns­son for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, alþing­is­maður og fram­kvæmda­stjóri Rann­sókna­ráðs. Þetta sama ár, fyrir Alþing­is­kosn­ingar, keypti Stein­grímur grænar baunir ásamt öðru mat­ar­kyns fyrir Surts­eyj­ar­fé­lagið, sem hann gegndi for­mennsku í. Reikn­ingur vegna þess­ara kaupa fannst svo í bók­haldi Rann­sókna­ráðs, en þar voru grænu baun­irnar skráðar sem við­hald á bif­reið Rann­sókna­ráðs.

Mál þetta er gjarnan afgreitt sem stormur í vatns­glasi, jafn­vel dálítið kómískur stormur. Það sem fylgir þó ekki alltaf sög­unni er að ýmsir höfðu sett út á fjár­mál Rann­sókna­ráðs á meðan Stein­grímur var fram­kvæmda­stjóri þess. Fjár­út­látin þóttu óeðli­lega mikil og fjöldi utan­lands­ferða sem greiddar voru af Rann­sókna­ráði úr hófi. Þetta skrif­aði Þor­steinn Sæmunds­son til dæmis tölu­vert um árið 1971. Rík­is­end­ur­skoðun gerði einnig athuga­semdir við fjár­reiður Rann­sókna­ráðs vegna árs­ins 1969 á fjórtán blað­síðum.

Stein­grímur Her­manns­son kall­aði grænu­bauna­málið „ótrú­lega lélegt póli­tískt klám­högg“.

Mynd/skjá­skot: RÚV

Lögbann Stundarinnar

Þann 16. októ­ber árið 2017 sam­þykkti Sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík að leggja lög­bann á umfjall­anir Stund­ar­innar. Þetta átti við um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Það var þrotabú Glitnis sem krafð­ist lög­banns­ins, en þetta var ein­ungis um tveimur vikum fyrir kom­andi Alþing­is­kosn­ingar.

Fréttir Stund­ar­innar um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar og sam­skipti hans við Glitni í aðdrag­anda hruns­ins voru unnin af fjöl­miðl­inum upp úr gögnum sem bár­ust innan úr Glitni, í sam­starfi við Reykja­vík Media og breska blaðið Guardian.

Fjallað var um hvernig Bjarni hafi selt allar eignir sínar, fyrir rúm­lega 50 millj­ónir króna, í Sjóði 9 í Glitni dag­ana 2. – 6. októ­ber árið 2008 og með því komið í veg fyrir að hann tap­aði pen­ingum í banka­hrun­inu dag­ana á eftir. Sömu­leiðis hafi hann upp­lýst fram­kvæmda­stjóra hjá Glitni um vinnu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í hrun­inu. Einnig björg­uðu ætt­ingjar Bjarna háum fjár­hæðum með sama hætti.

Á þessum tíma var Bjarni alþing­is­maður og hafði því aðgang að upp­lýs­ingum um stöðu Glitnis, en hann hafði setið fundi um slæma stöðu bank­ans og fjár­mála­kerf­is­ins. Sömu­leiðis hafi Bjarni selt hluta­bréf sín í Glitni í febr­úar 2008 – en salan hófst ein­ungis tveimur dögum eftir að hann fund­aði með banka­stjóra Glitnis.

Glitnir HoldCo krafð­ist þess að Stund­inni yrði gert að afhenda gögn sem umfjöllun mið­ils­ins byggði á, láta af umfjöllun sinni og eyða öllum fréttum sem birst höfðu um málið á vef fjöl­mið­ils­ins. Glitnir HoldCo til­kynnti Fjár­mála­eft­ir­lit­inu einnig um brot á banka­leynd með frétta­flutn­ingnum.

Það var ekki fyrr en 22. mars árið 2019 að mál­inu lauk með fulln­að­ar­sigri Stund­ar­innar og Reykja­vík Media fyrir Hæsta­rétti.

Birgir Dýrfjörð

Alþýðuflokkurinn leggur ekki til atlögu

Mannlíf sló á þráð­inn til Birgis Dýrfjörð. Birgir er ýmsum kunn­ugur, en hann er með­limur í flokks­stjórn og stjórn full­trúa­ráðs Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, fyrrum vara­þing­maður fyrir Alþýðu­flokk­inn, með­limur í Alþýðu­flokknum um ára­bil og for­maður Ungra jafn­að­ar­manna á árum áður. Hann lum­aði meðal ann­ars á sögu úr bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í Hafn­ar­firði frá árinu 1958.

Birgir lýsir því að það hafi verið mik­ill hiti í kosn­ing­unum og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sótt mjög fast að. Mjótt var á munum milli Alþýðu­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks. Birgir segir frá því hvernig efsti maður á lista hjá Sjálf­stæð­is­flokknum hafi rekið verslun í bænum á þessum tíma.

„Og síðan kemur það upp að menn þykj­ast hafa sönnur fyrir því að versl­unin hafi stolið undan sölu­skatti. Þá var ekki vask­ur­inn kom­inn, kerfi sem passar sig sjálft, og menn töldu að það væri hægt að leggja á borðið að hann hafi stolið undan sölu­skatti,“ segir Birgir.

Ef þetta hefði reynst satt hefði það vit­an­lega farið mjög illa með kosn­inga­bar­áttu Sjálf­stæð­is­manna, hefði málið ratað til almenn­ings. Birgir segir að senni­lega hafi þetta verið á mið­viku­degi eða fimmtu­degi fyrir kosn­ingar.

„Bara rétt ofan í kosn­ingar og hefði þá farið í blað og verið borið í hvert hús í bænum í Hafn­ar­firði,“ segir Birgir.

Birgir lýsir því hvernig hann hafi á þessum tíma verið for­maður Ungra jafn­að­ar­manna og því verið staddur á fundi þar sem verið var að leggja loka­hönd á síð­ustu atriðin fyrir kosn­ing­arnar. Alþýðu­blaðið í Hafn­ar­firði hafi átt að koma út annað hvort dag­inn eftir eða einum degi síðar – sem­sagt eins nálægt kosn­ingum og hægt var. Hann segir þá mál versl­un­ar­eig­and­ans og for­ystu­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bænum hafa komið upp. Á fund­inum hafi Emil Jónsson, for­ingi Alþýðu­flokks­ins, verið staddur og hann hafi farið að spyrja út í málið. Emil hafi viljað vita hvenær blaðið og þar með fréttin ætti að koma út og fékk það svar að einn dagur yrði á milli útgáfu blaðs­ins og kosn­ing­anna.

„Og þá segir Emil: „við getum ekki birt þetta“ og það hrukku nú eig­in­lega allir við. Hvað veldur? „Maðurinn hefur enga mögu­leika á að svara fyrir sig. Þetta er svo stutt. Við getum ekki birt þetta,“ sagði hann. Þetta situr svo­lítið í mér. Ég bar mikla virð­ingu fyrir Emil, mjög mikla, og hafði dálítið mikið saman við hann að sælda. En ég varð fyrir ógur­legum von­brigðum þarna eins og allir hinir. Þarna gátum við tekið hel­vítis íhaldið í nefið,“ segir Birgir og hlær.

„Heyrðu þá kemur bara yfir­for­ing­inn og segir: „Við getum ekki birt þetta. Bara getum það ekki. Maðurinn hefur engin tæki­færi til að svara fyrir sig.“ Þetta var svona öfugur skandall.“

Svo fór að Alþýðu­flokk­ur­inn fékk 40,7 pró­sent fylgi í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum, á móti 41,9 pró­senti Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Mynd / Hallur Karlsson

Eyþór Arnalds ók á staur

Árið 2006 var Eyþór Arnalds efstur á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í Árborg. Í maí sendi Eyþór frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagð­ist mundu draga sig út úr kosn­inga­bar­átt­unni. Ástæðan var sú að nótt­ina áður hafði hann verið tek­inn fyrir ölv­un­arakstur. Eyþór sagði að næði hann kjöri í Árborg myndi hann taka sér frí frá störfum sem bæj­ar­full­trúi meðan á máli hans stæði. Hann ætl­aði sér einnig að fara í áfeng­is­með­ferð.

Eyþór svar­aði fyr­ir­spurnum frétta­manna á þann veg að hann hafi verið í sex­tugs­af­mæli þar sem hann hafi drukkið vín með mat. Síðan hafi hann ekið á staur. Eyþór sagð­ist þá hafa vikið úr bíl­stjóra­sæt­inu og far­þeg­inn tekið við akstr­inum. Lög­reglan hafi svo stöðvað þau í Ártúns­brekku. Þegar lög­reglan stöðv­aði þau kvaðst Eyþór ekki hafa náð að til­kynna atvikið.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­reglu höfðu Eyþór og unnusta hans bæði verið ölvuð. Eftir að hafa ekið á staur­inn hafi þau flúið af vett­vangi en vegna til­kynn­ingar veg­far­anda hafi þau náðst í Ártúns­brekku. Eyþór var sagður hafa gist fanga­geymslur en að honum hafi verið sleppt morg­un­inn eftir þegar játn­ing lá fyrir.

Ágúst Ólafur Ágústs­son

Ágúst Ólafur og uppstillinganefndin

Í byrjun þessa kosn­inga­árs, 2021, urðu nokkrar deilur innan Sam­fylk­ing­ar­innar um upp­röðun á lista flokks­ins. Deil­urnar sner­ust um veru Ágústs Ólafs Ágústs­sonar þing­manns á lista flokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar.

Ágúst Ólafur sótt­ist eftir 2. sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík-Suður. Upp­still­inga­nefnd flokks­ins ákvað að verða ekki við ósk hans og veita honum ekki bar­áttu­sæti á lista, eftir að hafa greitt um það atkvæði – fjögur atkvæði á móti þremur. Í kjöl­farið ákvað Ágúst Ólafur að taka sér ekki sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar.

Ágúst Ólafur fór í des­em­ber árið 2019 í tveggja mán­aða ólaunað leyfi frá þing­störfum eftir að hafa verið veitt áminn­ing af trún­að­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar. Áminn­ingin var veitt eftir að blaða­konan Bára Huld Beck upp­lýsti nefnd­ina um kyn­ferð­is­lega áreitni og nið­ur­læg­ingu sem hún varð fyrir af hendi Ágústs Ólafs.

Ágúst Ólafur lengdi leyfið að tveimur mán­uðum liðnum og sótti áfeng­is­með­ferð hjá SÁÁ.

Töluvert ósætti bloss­aði upp innan stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar vegna útskúf­unar Ágústs Ólafs. Sumir vildu meina að þarna færi flokk­ur­inn illa að ráði sínu, því fylgi hans hefði mælst mjög gott í Reykja­vík-suður undir stjórn Ágústs Ólafs, í skoð­ana­könnun Gallup. Aðrir voru á því að í ljósi fyrr­nefnds máls ætti hann ekki heima svo ofar­lega á lista flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ