Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þú ert líklega að nota of mörg efni í þrif – Gættu þín í frumskógi hreinsiefnanna

Þú ert líklega að nota of mörg efni í þrif – Gættu þín í frumskógi hreinsiefnanna

Eflaust eru margir sam­mála um að vilja minnka magn efna sem notuð eru til þrifa á heim­il­inu, enda hefur með­vit­und um skað­leg efni í hinum ýmsu vörum vaxið tölu­vert síð­ustu ár.

Það þarf ekki annað en að ganga inn á hreinsi­efna­ganga kjör­búða til að sjá að úrval hreinsi- og þrifa­efna í dag er bein­línis orðið að frum­skógi. Fram­boðið virð­ist enda­laust og til eru efni fyrir allt mögu­legt og ómögu­legt. Margir eru með skáp smekk­fullan af alls­konar efnum sem þeir nota sjaldan eða aldrei. Mörg þeirra hreinsi­efna sem seld eru í búðum geta verið skað­leg heilsu okkar og umhverfi.

Sé fólki annt um heils­una og umhverfið er ágætis hug­mynd að lesa vel inni­halds­lýs­ingu á umbúðum hreinsi­efna og kynna sér efnin sem þar er að finna. Til þess að spara tíma er hægt að leita uppi vörur með góðum og gildum umhverf­is­vott­unum, eins og svans­vott­un­inni.

Ekki nota edik á hvað sem er

Gömul þrifa­ráð á borð við notkun ediks og mat­ar­sóda til heim­il­is­þrifa eru góð og gild fyrir ákveðna hluti, en hafa ber í huga að ekki má nota edik á hvað sem er, vegna sýrunnar í því. Mik­il­vægt er því að kynna sér vel úr hvaða efni þeir fletir sem þrífa á eru. Það er til dæmis harð­bannað að nota ein­hvers­konar ediks­blöndu á granít- eða nátt­úru­stein.

Uppþvottalögur fær í flestan sjó

Það er ekki á allra vit­orði, en gamli góði upp­þvotta­lög­ur­inn getur komið í stað­inn fyrir ansi mörg hreinsi­efni í þrifa­skápnum. Upp­þvotta­lögur er fitu­leysandi, en er vatns­leys­an­legur og skilur því ekki eftir sig skán eða sölt. Hann er líka ekki svo sterkur að hann valdi skaða.

Fyrir utan borð­búnað má nota upp­þvotta­lög sem aðal­hreinsi­efni á ansi margt, til dæmis:

Eld­hús­bekki, sama hver efni­við­ur­inn er

Spegla

Vaska

Sturtur & böð

Blönd­un­ar­tæki

Glugga

Gólf

Bletti í fötum og annarri efna­vöru

Við þrif á speglum, svo dæmi sé tekið, er best að blanda örlitlum upp­þvotta­legi við vatn í úða­brúsa, spreyja á speg­il­inn og pússa svo með gler­klút eða örtrefjatu­sku. Önnur aðferð er að setja dálítið vatn í tusk­una og dropa af upp­þvotta­legi, skrúbba svo og pússa yfir speg­il­inn með þurri örtrefjatu­sku.

Þess ber þó að geta að upp­þvotta­lögur er ekki það sama og upp­þvotta­lögur. Mik­il­vægt er að hann sé mjög virkur, en gæða­munur fer ekki á milli mála þegar mis­virkar vörur eru próf­aðar. Það er vissu­lega hægt að kaupa góðan upp­þvotta­lög í kjör­búðum, mis­góðan þó, en í sölu- og dreif­ing­ar­fyr­ir­tækjum á borð við Rekstr­ar­vörur er lík­legra að finna virk og vottuð efni. Hafa ber einnig í huga að því virk­ari sem efnin eru – þeim mun minna þarf af þeim í hverja notkun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ