Í morgun sendi Amnesty International á Íslandi átak til ríkisstjórnar Íslands og biður fylgendur sína að gera slíkt hið sama. Ákallið snýr að afgönskum flóttamönnum og loforði ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur um móttöku þeirra.
Segir á heimasíðu Amnesty International á Íslandi, að þrátt fyrir loforð talibana um umbætur frá fyrri stjórnartíð sinni, eftir að þeir náðu aftur völdum 15. ágúst síðastliðinn, hvað varðar kvenréttindi, tjáningafrelsi og fleira í þeim dúr, hafi þeir bersýnilega brotið þau loforð. „Íslandsdeild Amnesty International kallar eftir að íslensk stjórnvöld veki athygli á ástandinu í Afganistan hvar sem tækifæri gefst, beiti sér fyrir að komið verði á fót sjálfstæðri rannsóknarsendinefnd (e. Fact Finding Mission) og standi við gefin loforð um móttöku afgansks flóttafólks á Íslandi.“
Í ákallinu á heimasíðu Íslandsdeildarinnar má sjá upptalningu á fjöldi mannréttindabrota sem talibanar hafa stundað undanfarna mánuði á saklausum borgurum Afganistan og er þar vitnað í nýja rannsóknarskýrslu Amnesty International, Alþjóðamannréttindasamtakanna og Alþjóðastofnunar gegn pyntingum. Eru meðlimir samtakanna hvattir til að senda staðlað bréf, sem finna má á heimasíðunni, til stjórnvalda og setja þannig pressu á þau.
„Þörf er á víðtækum, alþjóðlegum og öflugum aðgerðum til að berjast gegn grófum og kerfisbundnum mannréttindabrotum sem eiga sér nú stað í auknum mæli í Afganistan eftir yfirtöku talibana. Íslensk stjórnvöld brugðust kröftuglega við í orði en betur má ef duga skal.“































Athugasemdir