Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Gísli á Uppsölum varð frægur eftir heimsókn Ómars: Einbúinn sem hafði hvorki vatn né rafmagn.

Gísli á Uppsölum varð frægur eftir heimsókn Ómars: Einbúinn sem hafði hvorki vatn né rafmagn.

Gísli Októví­anus Gíslason, betur þekktur sem Gísli á Uppsölum, varð þjóð­þekktur eftir heim­sókn sem hann fékk frá Ómari Ragn­ars­syni. Áður hafði reyndar Árni Johnsen blaða­maður tekið við­tal við hann fyrir Morg­un­blaðið en það fékk ekki sömu athygli og við­tal Ómars.
Gísli fædd­ist 29. októ­ber 1907. Faðir Gísla, Gísli Svein­björns­son, dó þegar hann var aðeins lít­ill drengur, eða níu ára gam­all.
Bjó Gísli um nokk­urt skeið með móður sinni, Gíslínu, og þremur bræðrum að Uppsölum.

Gísli var ein­búi og bóndi í Selárdal á Vest­fjörðum. Enn hafa ekki feng­ist svör við því hvers vegna hann ein­angr­að­ist. Lík­leg­ast þykir að Gísli hafi ann­að­hvort ein­angrað sig sjálfur eða honum útskúfað úr sam­fé­lag­inu fyrir það eitt að vera öðru­vísi en flest fólk.
Eitt er þó vitað og það er að Gísli hafi ekki verið ánægður með aðstæð­urnar sem hann bjó við. Þá hafi Gísli fundið til ein­mana­leika þar sem hann bjó, einn á afskekktum stað ár eftir ár.

Ómar Ragn­ars­son heim­sótti Gísla í Stiklu­þætti. Þátt­ur­inn var frum­sýndur á jóla­dag árið 1981 og vakti hann mikil við­brögð. Fólki fannst það ýmist hafa fengið inn­sýn í for­tíð­ina og séð hvernig fólk hefði búið áður fyrr eða varð gríð­ar­lega ósátt og mis­boðið.
Einn þeirra sem gagn­rýndi þátt­inn var Þorbjörn Brodda­son, pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands.
Sagði hann þátt­inn vera „Ómars versta axar­skaft“, og furð­aði sig á því að fólk hrif­ist af þætt­inum.
„Þarna er maður sem er hrein­lega fatl­aður, utan­veltu og veit ekk­ert hvaðan á sig stendur veðrið. Þá kemur allt í einu ein­hver maður að sunnan með græjur og eltir hann um túnið og hann hrökkl­að­ist undan honum eins og sært dýr. Mér fannst þetta óskap­lega sorg­legt,“ sagði Þorbjörn.

Gísli bjó við afskap­lega slæmar og erf­iðar aðstæður. Hafði hann hvorki raf­magn né renn­andi vatn og sagði hann sjálfur í þætt­inum að dimmt væri frá nóv­em­ber til mars eða apríl.
Þá sótti hann vatn í læk­inn og slátr­aði lömbum sjálfum sér til matar.
Í bænum þar sem Gísli bjó mátti sjá hina ýmsu muni sem voru orðnir afskap­lega lúnir. Þá var hann með orgel sem hann aðeins spil­aði á þegar birta var næg. Í rúmi hans var sauð­ar­gæra sem hélt á honum hita. Ljóst er að Gísli hafði þurft að þola marga harða og kalda vetur í þessum aðstæðum en hann hit­aði bæinn upp með því að kveikja eld.

Ólafur Gíslason, á Neðribæ, og Ásta, kona hans, höfðu hvað mest sam­neyti við Gísla.
„Þetta er hans lífsmáti og það er svo teygj­an­legt hug­tak hvað er eðli­legt og hvað ekki,“ sagði Ásta við Ómar er hann spurði út í nágranna þeirra.

Gísli hugs­aði vel um kind­urnar sínar. Fór hann út í öllum veðrum, gaf þeim hey og missti þar aldrei dag úr. Þá rak hann þær út og inn úr fjár­hús­inu allt árið um kring. Eitt sinn átti Gísli belju en voru tíu ár síðan hún dó þegar Ómar heim­sótti hann.
Hann sagð­ist prjóna og lesa á dag­inn ef hann var ekki að sinna kind­unum.

Gísli á Uppsölum lést á gaml­árs­dag, 31. des­em­ber árið 1986. Bærinn lagð­ist í eyði í kjöl­farið. Þá hafa fjöl­margir gert sér ferð að bænum til þess að berja stað­inn augum.

Hægt er að sjá þátt Ómars um Gísla á Uppsölum á Youtube.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ