Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Dimmur dagur í íslenskri íþróttasögu: „Þurftum að fara út að borða með danska liðinu um kvöldið“

Dimmur dagur í íslenskri íþróttasögu: „Þurftum að fara út að borða með danska liðinu um kvöldið“

23. ágúst árið 1967 var dimmur dagur í íslenskri íþrótta­sögu. Raunar svo dimmur, að ólík­legt er að hann muni nokkurn tíma gleym­ast.

Þetta var dag­ur­inn þegar danska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu hrein­lega át það íslenska með kjafti og klóm – með fjórtán mörkum gegn tveimur.

Leik­ur­inn fór fram á Idræt­spar­ken í Kaup­manna­höfn, en umfjöllun Morg­un­blaðs­ins dag­inn eftir leik­inn hófst á orð­unum:

„Íslenzka lands­liðið var leikið sundur og saman af hratt­leik­andi dönsku lands­liði, sem ger­sigr­aði með fjórtán mörkum gegn tveim.“

Fyrsta mark á fjórðu mínútu og ekki aftur snúið

Leik­ur­inn var Dönum í vil strax í upp­hafi. Mótherjar okkar og frændur skor­uðu sitt fyrsta mark á fjórðu mín­útu leiks­ins, en það var John Steen Olsen sem kom þeim yfir.

Það liðu ein­ungis þrjár mín­útur þar til Finn Laudrup jók mun­inn í 2-0. Næstu mörk komu á 13., 15., 28. og 40. mín­útu. Íslenska liðið var marka­laust allan fyrri hálf­leik­inn og staðan í hálf­leik því 6-0.

Það var hins­vegar í seinni hálf­leik að Helgi Númason minnk­aði mun­inn í 6-1 með fyrsta marki Íslands á 51. mín­útu. Það liðu þó ein­ungis nokkrar mín­útur þar til Ulrik Le Fevre skor­aði sjö­unda mark Dan­merkur og á 60. mín­útu kom svo átt­unda markið, Íslend­ingum til mik­illar skelf­ingar.

Mörkin héldu áfram að hrúg­ast inn hjá Dönum, en eftir níunda markið á 61. mín­útu tóku Íslend­ingar miðju og sáu þá loks örlítið til sólar.

Það var Hermann Gunn­ars­son, fót­bolta- og sjón­varps­mað­ur­inn ást­sæli, sem keyrði fram völl­inn og kom bolt­anum fim­lega í mark Dana. Þarna var staðan því orðin 9-2, á 62. mín­útu leiks­ins.

Íslenska liðið sá ekki fleiri sól­ar­geisla þennan leik­inn. Enn áttu eftir að bæt­ast við fimm mörk frá Dönum, en þau röð­uð­ust inn þar til Finn Laudrup full­komn­aði nið­ur­læg­ingu Íslend­inga með fjórt­ánda mark­inu á 85. mín­útu.

Þetta er stærsta tap í sögu íslenska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta hingað til. Áfallið var algjört.

Björgvin Schram, þáver­andi for­maður KSÍ, var ómyrkur í máli í við­tali við Vísi dag­inn eftir leik­inn:

„Ég er næstum orð­laus. Leikur þessi lagð­ist mjög illa í mig þegar í byrjun og ég bjóst við að Danir myndu sigra með 4-5 marka mun. En að þeir skor­uðu 14 mörk tekur út yfir allan þjófa­bálk. Lið sem hefur fengið á sig sex mörk í fyrri hálf­leik hefur ekki leyfi til að fá á sig átta í þeim síð­ari.“ Björgvin sagði einnig að úrslitin væru mesta hneyksli íslenskrar íþrótta­sögu.

Raunar er það svo að þessi martraða­kenndi leikur er oft rifj­aður upp þegar Íslend­ingar og Danir mæt­ast á fót­bolta­vell­inum.

„Við leikmennirnir vorum virkilega sigurvissir“

Hermann Gunn­ars­son heit­inn, eða Hemmi Gunn eins og hann var yfir­leitt kall­aður, var einn fremsti knatt­spyrnu­maður Íslands um ára­bil, áður en hann lagði skóna á hill­una og sneri sér að vinnu í fjöl­miðlum. Það kemur því kannski ekki á óvart að það hafi verið Hemmi heit­inn sem skor­aði annað þess­ara tveggja íslensku marka í leiknum gegn Dönum árið 1967.

Í við­tali við Frétta­blaðið árið 2006 sagði Hemmi að liðið hefði getað sloppið betur ef það hefði ákveðið að hanga í vörn. Það hafi hins­vegar ein­fald­lega ekki verið hugs­un­ar­háttur íslenska liðs­ins á þessum tíma.

Hemmi var ein­ungis tví­tugur þegar leik­ur­inn fór fram og ein skærasta stjarna liðs­ins. Liðinu hafði raunar gengið nokkuð vel í leikj­unum á undan viður­eign­inni við Dani. Það hafði naum­lega tapað fyrir Svíum á Norð­ur­landa­móti U-23 lands­liða og verið nálægt því að kom­ast á Ólymp­íu­leik­ana í Mexíkó.

Hemmi sagði í við­tal­inu við Frétta­blaðið að stemn­ingin hefði verið góð og að þarna hafi svo sann­ar­lega átt að taka Danina í nefið.

„Við leik­menn­irnir vorum virki­lega sig­ur­vissir og eftir á að hyggja voru það okkar stærstu mis­tök,“ sagði Hemmi hlæj­andi í við­tal­inu, eins og honum einum var lagið.

„Þetta var nátt­úru­lega ein­stakt lið sem Danir voru með á þessum tíma, skipað ein­tómum snill­ingum þar sem fremstur fór í flokki Finn Laudrup,“ sagði Hemmi, en það var einmitt Finn Laudrup sem skor­aði þrennu í leiknum og síð­asta markið áður en leik­ur­inn var flaut­aður af. Auk þess lagði Daninn knái upp fleiri mörk.

Ógæfan dundi yfir þegar Elmar rotaðist

Hemmi sagði frá því í við­tal­inu hvernig óheppni íslenska liðs­ins hafi strax skollið á, bók­staf­lega, í klef­anum fyrir leik. Bak­vörð­ur­inn Jóhannes Atlason var þar að leika sér með bolta, sem venju­lega væri ekki í frá­sögur fær­andi. Nema að í þessu til­felli féll Jóhannes við og skall beint á höfuð Elmars Geirs­sonar, sem átti að vera í byrj­un­ar­lið­inu. Það fór ekki betur en svo að Elmar stein­rot­að­ist og gat ekki spilað leik­inn.

„Þetta gaf tón­inn að því sem koma skyldi,“ sagði Hemmi. „Þeir rúll­uðu yfir okkur frá fyrstu mín­útu og við áttum við algjört ofurefli að etja.“

Hemmi sagði þó að markið lang­þráða sem hann skor­aði í kjöl­far níunda marks danska liðs­ins hafi verið eitt besta markið á hans ferli, þrumu­skot langt utan af velli sem hafn­aði í horni danska marks­ins.

„Við fögn­uðum eins og við hefðum verið að tryggja okkur heims­meist­ara­tit­il­inn. Ég man að Eyleifur Haf­steins­son fyr­ir­liði kom hlaup­andi til mín og lét þau fleygu orð falla: „Strákar, nú tökum við á því. Þeir eru gjör­sam­lega búnir á því,“ sagði Hemmi þegar hann rifj­aði upp þessa mik­il­vægu stund í leiknum.

Eins og frægt er orðið voru Danirnir hins­vegar langt frá því að vera búnir á því og áttu eftir að halda áfram að raða inn mörkum.

Þurftu að fara út að borða með danska liðinu

„Við vorum nátt­úru­lega algjör­lega miður okkar eftir leik­inn og ekki bætti úr skák að við þurftum að fara út að borða með danska lið­inu um kvöldið. Stemn­ingin þar var sér­stök, svo ekki sé meira sagt,“ sagði Hemmi í sam­tal­inu við Frétta­blaðið.

Hemmi horfði samt jákvæðum augum til þessa sögu­lega dags í íslenskri fót­bolta­sögu. Hann sagð­ist aldrei hefðu viljað sleppa því að taka þátt í leiknum.

„Þetta var mjög skemmti­leg reynsla sem skilur eftir sig margar minn­ingar og mér þykir mjög gaman að hafa tekið þátt í þessu. Svo er ég nátt­úru­lega mjög stoltur af því að hafa skorað helm­ing marka íslenska liðs­ins,“ sagði Hemmi heit­inn, jákvæður og léttur í bragði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ