Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Finnur ósáttur við ræðu Katrínar Jakobsdóttur: „Ég er reiður ef ég á að vera hrein­skilinn“

Finnur ósáttur við ræðu Katrínar Jakobsdóttur: „Ég er reiður ef ég á að vera hrein­skilinn“

Lofts­lags­full­rúi Ungra umhverf­is­sinna og einn skipu­leggj­enda Lofts­lags­verk­falls­ins, hinn 19 ára gamli Finnur Ri­cart, seg­ist hafa orðið fyrir mjög miklum von­brigðum með ræðu Katrínar Jak­obs­dóttur for­sætis­ráð­herra á COP26 í há­deg­inu í dag.

„Ég er bara smá reiður ef ég á að vera hrein­skil­inn. For­sætis­ráð­herra nefndi í upp­hafi ræð­unnar að vís­indin séu skýr­ari en nokkru sinni fyrr og að við séum að sjá neyðar­á­stand skap­ast um allan heim. En samt vilja stjórn­völd ekki lýsa yfir neyðar­á­standi í lofts­lags­málum á Ís­landi og mark­miðin sem Katrín sagði síðan frá beint á eftir eru ekki ná­lægt því að vera full­nægj­andi í sam­hengi við vís­indin sem hún vísar í,“ segir hann og bætir við að heim­ur­inn þurfi að draga saman losun um 50 pró­sent fyrir 2030 til að halda hlýnun jarðar innan 1.5 gráðu; en sam­kvæmt upp­færðu lands­fram­lagi Ís­lands með ESB verður Ís­landi lík­lega út­hlutað um 40% sam­drætti.

„Það bara gengur ekki að rík þjóð í for­rétt­inda­stöðu, sem Ís­land er, sé með lægra mark­mið heldur en það sem meðal­tal heims­ins þarf að vera,“ segir Finnur og heldur áfram:

„Ég er staddur hérna fyrir hönd ungs fólks á Ís­landi og það veldur ein­fald­lega von­brigðum að heyra hvað stjórn­völd segj­ast vera að gera mikið og flott miðað við það sem er í raun og veru verið að gera, eða öllu heldur ekki verið að gera. Til dæmis nefndi For­sætis­ráð­herra nýju Orca stöð Cli­meworks sem var ný­verið tekin í notkun, en stjórn­völd eru ekki að styðja nægi­lega nóg við kol­efnis­förg­unar og förg­unar verk­efni og fyrir utan það þurfum við að gera allt sem við getum til að draga úr losun fyrst, áður en við leggjum allt okkar traust í svona tækni­lausnir.“

Bætir við:

„Síðan vísar Katrín í bók Andra Snæs og talar um mikil­vægi þess að hugsa um fram­tíðar­kyn­slóðir, en ég er nokkuð viss um að það sem Andri Snær myndi gera til að tryggja líf­væna fram­tíð þess­ara fram­tíðar­kyn­slóða væri mun meira og metn­aðar­fyllra en það sem stjórn­völd eru að gera. Ég myndi vilja sjá stjórn­völd hlusta meira á það sem við unga fólkið höfum að segja og setja sér mark­mið í takt við þau vís­indi sem þau vísa sjálf í,“ segir þessi bráð­efni­legi og eld­klári piltur.

Heimild: Frétta­blaðið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ