Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Rekstrartap Torgs ehf 689 milljónir: Frá 2018 hefur lestur Frétta­­blaðs­ins dalað 39 sinn­­um

Rekstrartap Torgs ehf 689 milljónir: Frá 2018 hefur lestur Frétta­­blaðs­ins dalað 39 sinn­­um

Vef­mið­ill­inn Kjarninn greinir frá því að rekstr­ar­tap Torgs ehf., útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins, Hring­braut­ar, DV og tengdra miðla, var 688,7 millj­ónir króna í fyrra, en árið áður var rekstr­ar­tap félags­ins 197,3 millj­ónir króna; því nemur sam­eig­in­legt rekstr­ar­tap þess á tveimur árum 886 millj­ónum króna.

Þá segir einnig að þegar vaxta­gjöldum vegna lána sem Torg hefur þurft að borga af og geng­is­mun er bætt við kemur í ljós að tap af reglu­legri starf­semi fyrir skatta var 750 millj­ónir króna á síð­asta ári.

Komið hefur fram að áður í Frétta­blað­inu að Torg hefði tapað um 600 millj­ónum króna á árinu 2020. Fyr­ir­tækið/félagið Torg er í eigu tveggja félaga; HFB-77 ehf og Hof­garða ehf. Eigandi Hofgarða ehf er fjár­festir­inn Helgi Magn­ús­son; hann á 82 pró­sent í Hof­görðum ehf. Að auki er Helgi stjórn­ar­for­maður Torgs, en aðrir eig­endur þess eru Sig­urður Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Hring­brautar og við­skipta­fé­lagi Helga til margra ára, Jón G. Þór­is­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, og Guð­­­­­mundur Örn Jóhanns­­­­­son, fyrr­ver­andi sjón­­­­­varps­­­­­stjóri Hring­brautar og nú fram­­­­­kvæmda­­­­­stjóri sölu, mark­aðs­­­­­­mála og dag­­­­­­skrár­­­­­­gerðar hjá Torg­i.

Þessi hópur manna keypti Torg fyrir tveimur árum og var kaup­verðið trún­að­ar­mál; en í árs­reikn­ingi HFB-77 ehf. fyrir árið 2019 má sjá að það félag keypti hluta­bréf fyrir 592,5 millj­­­ónir króna á því ári. Torg var og er eina þekkta eign félags­ins.

Bent er á að hlutafé í Torgi var aukið um 600 millj­ónir króna í lok síð­asta árs og að skuldir við tengdan aðila voru auk þess 440 millj­ónir króna um ára­mót – en voru engar í byrjun árs 2020. Sam­an­lagt juk­ust skuldir við tengda aðila, eig­endur Torgs, og hlutafé um rúman millj­arð króna á síð­asta ári.

Í fyrra var gengið frá kaupum á DV og tengdum miðlum frá Frjálsri fjöl­miðl­un; félags sem er skráð í eigu Sig­urðar G. Guð­jóns­sonar lög­manns, en var alla tíð fjár­magnað með vaxta­lausum lánum frá fjár­fest­inga­fé­lagi Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­son­ar.

Þá er vert að geta þess að frá því að Frjáls fjöl­miðlun eign­að­ist miðl­anna síðla árs 2017 og þangað til að þeir voru seldir til Torgs í apríl 2020 tap­aði útgáfu­fé­lagið 745 millj­ónum króna.

En Torg greiddi samt sem áður 300 millj­ónir króna fyrir miðl­anna – en sam­kvæmt árs­reikn­ingi voru 100 millj­ónir króna greiddar með fjár­munum úr rekstr­inum og 200 millj­ónir króna með nýjum lang­tíma­lán­um; Frjáls fjöl­miðlun virð­ist hafa lánað að minnsta kosti 150 millj­ónir króna af þeirri upp­hæð í formi selj­enda­láns, en eina fasta­fjár­muna­eign þess félags er skulda­bréf upp á þá tölu sem varð til í fyrra.

Eins og staðan er í dag þá er flagg­skipið í útgáfu Torgs Frétta­blað­ið, en útgáfu­dögum þess var fækkað úr sex í fimm á viku í fyrra.

Lestur Frétta­blaðs­ins, sem er frídreift í átta­tíu þús­und ein­tökum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Akur­eyri, mæld­ist 31 pró­sent í síð­asta mán­uði og hefur lest­ur­inn dalað jafnt og þétt und­an­farin ár; en í apríl 2007 var hann 65,2 pró­sent og hélst yfir 50 pró­sent þangað til í des­em­ber 2015. Síðla sum­ars 2018 fór lest­ur­inn svo undir 40 pró­sent í fyrsta sinn og stefnir nú undir 30 pró­sent á næstu mán­uð­um, en frá byrjun árs 2018 hefur lestur Frétta­­blaðs­ins auk­ist á milli mán­aða í 6 skipti en dalað 39 sinn­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ