Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Amma Hugrúnar Birtu sem keppir í Miss World var Ungfrú Reykjavík 1959: „Ég var algjör íþróttaálfur“

Amma Hugrúnar Birtu sem keppir í Miss World var Ungfrú Reykjavík 1959: „Ég var algjör íþróttaálfur“
Hugrún Birta Egils­dóttir

Hugrún Birta Egils­dóttir, sem starfar sem snyrti­vöru­ráð­gjafi hjá Nathan og Olsen og er í und­ir­bún­ings­námi fyrir mark­aðs­fræði við Háskóla Íslands, mun í des­em­ber verða full­trúi Íslands í Miss World og verður keppnin haldin í Puerto Rico. „Und­ur­bún­ing­ur­inn felst í því að hlúa að sér and­lega og lík­am­lega. Und­ir­bún­ing­ur­inn er krefj­andi verk­efni sem ég upp­lifi sem þrosk­andi og skemmti­legt ferli,“ segir Hugrún Birta. „Miss World stendur fyrir svo fal­legt mál­efni og er aðal­á­hersla starf­semi Miss World á góð­gerð­ar­störf og hafa sam­tökin „Beauty With A Purpose“, sem Julia Morley, eig­andi og for­stjóri Miss World, stofn­aði árið 1972, safnað og styrkt bág­stödd börn um allan heim. Það að fá tæki­færi til þess að vinna með þeirra starf­semi er meg­in­á­stæða fyrir áhuga mínum í Miss World. Það er mik­ill heiður að fá að vera full­trúi lands míns í Miss World 2021 og fá tæki­færi til þess að kynna fal­lega landið okkar, ísland.“

Hugrún Birta er spurð hvað feg­urð sé í huga hennar. „Fegurð fyrir mér er ljósið sem við berum öll innra með okkur og deilum með öðrum. Fegurðin kemur innan frá sem gefur okkur kleift að fagna fjöl­breyti­leik­anum og njóta þess að vera þau sem við kjósum að vera. Með góðu við­horfi og góðri sjálfs­mynd getum við styrkt okkur sem ein­stak­linga og mótað okkur sjálf.“

Fegurð fyrir mér er ljósið sem við berum öll innra með okkur og deilum með öðrum.

Hugrún Birta hefur í gegnum árin tekið þátt í nokkrum feg­urð­ar­sam­keppnum og segir að ynd­is­leg saga sé þar á bak við. „Ég ólst upp við sögur af móð­ur­ömmu minni, Ester Garð­ars­dóttur, sem sigr­aði keppn­ina Ungfrú Reykja­vík árið 1959. Hún samdi um að fá pen­ing í stað flug­miða sem var í verð­laun. Pen­ing­inn not­aði hún svo til þess að kom­ast inn í ljós­mæðra­skól­ann. Seinna meir tók hún á móti mér í heim­inn og hefur saga hennar til mennt­unar veitt mér inn­blástur og mótað mína sýn á feg­urð­ar­sam­keppnir,“ segir Hugrún Birta sem tók þátt í Universe Iceland 2019 og var í kjöl­farið send út í alþjóð­lega feg­urð­ar­sam­keppni í Póllandi, Miss Supranational. Þar komst hún í úrslit og hlaut tit­il­inn Miss Supra Model of Europe.
Hvað þarf full­trúi Íslands í feg­urð­ar­sam­keppnum að hafa til brunns að bera?
„Vera hún sjálf, vita fyrir hvað hún stendur og getað miðlað af visku sinni.“

Hugrún hefur starfað sem fyr­ir­sæta und­an­farin ár og segir að bolt­inn hafi farið að rúlla með til­komu sam­fé­lags­miðla og þá stækk­aði tengsla­netið.

Hvernig er hennar eigin stíll? „Ég myndi lýsa mínum stíl sem klass­ískum og íslensk hönnun er í miklu upp­á­haldi. Mér finnst kjólar og fatn­aður með skýr­skotun í ísland sér­stak­lega áhuga­verður.“

Vera hún sjálf, vita fyrir hvað hún stendur og getað miðlað af visku sinni.

Að berskjalda okkur sjálf

„Ég var algjör íþrótta­álfur þegar ég var krakki og æfði fót­bolta, fim­leika, sund og frjálsar íþróttir.“ Hún ólst upp í ýmsum hverfum borg­ar­innar og hafði sem barn reynslu af erf­iðum aðstæðum, bæði vegna fátækar og ein­eltis.
„Ég lít svo á að þau verk­efni sem hafa mætt mér á veg­ferð minni hafa svo sann­ar­lega sam­verkað mér til góðs; sem ein­stak­lingur kom­andi úr aðstæðum sem þessum veit ég og skil ég spor þeirra ein­stak­linga og þá ser­stak­lega barna.“

Hún fyr­ir­gaf síðar ger­end­unum. Hvaða máli skiptir það fyrir hana?
„Við veljum líðan okkar dag hvern með ákvörð­unum okkar, stórum og smáum. Með því hvernig við hugsum, hvernig við kjósum að eyða tím­anum, hvernig við bregð­umst við því sem upp á kemur, hvaða mat við kjósum að næra okkur með, hvernig við kjósum að klæða okkur og hvaða hliðar við veljum að sýna. Jafnvel minnstu ákvarð­anir, sem oft virð­ast ekki skipta neinu máli, eiga sinn þátt í hvernig dagar okkar verða.“

Við veljum líðan okkar dag hvern með ákvörð­unum okkar, stórum og smáum.

En hvað hefur hún lært varð­andi að upp­lifa fátækt og vera lögð í ein­elti?
„Að ber­skjalda okkur sjálf er okkar helsta styrk­leika­merki.“ Þetta mót­aði hana sem ein­stak­ling. „Ég er sá ein­stak­lingur sem ég er í dag út frá því hvernig ég kýs að lifa líf­inu,“ segir hún og nefnir gildi sín og við­horf í því sam­bandi.

Hugrún Birta er spurð hvað fólk þurfi að gera þegar það verður vitni að ein­elti? „Aukin sjálfs­vit­und felst í að auka þekk­ingu á sínum innri manni og vera með­vit­aður um hegðun sína, þarfir, skap­ferli, til­finn­ingar og gild­is­mat.“

Lífið er dýrmæt gjöf

Hugrún Birta er önnum kafin en fyrir utan að vera nemi, starfa sem fyr­ir­sæta, vera kærasta Ásgeirs Trausta tón­list­ar­manns þá hefur hún áhuga á úti­veru, hreyf­ingu, fjall­göngum, fjöl­sku­yldan er ofar­lega á blaði sem og ferða­lög og það að kynn­ast ólíkri menn­ingu. Svo eru and­leg mál­efni á meðal áhuga­mála.

Þ ETTA ERU VERKEFNI SEM VIÐ ÞURFUM SVO AÐ LEYSA ÚR OG ÚTHEIMTIR ÞAÐ BÆÐI HUGREKKI OG VISKU.

Hvernig er lífs­stíll­inn?
„Ég til­einka mér afar heil­brigðan lífs­stíl og legg mikla áherslu á úti­veru, hreyf­ingu og að rækta sjálfið.
Okkur er gefin dýr­mæt gjöf – lífið sjálft. Um leið er okkur fengið verk­efni í hendur; að lifa inni­halds­ríku lífi og gæða það merk­ingu. Enginn gerir það fyrir okkur nema við sjálf og eng­inn hefur lofað okkur því að það væri auð­velt. Lífið er alls konar og það eru alls kyns verk­efni sem verða á vegi okkar. Þetta eru verk­efni sem við þurfum svo að leysa úr og útheimtir það bæði hug­rekki og visku. Að ná tökum á sjálfum sér er ekki eitt verk­efni sem við vinnum í ein­ungis einu sinni á lífs­leið­inni heldur erum við í stöðugri mótun.“

Þ
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ