Hræðilegt atvik átti sér stað í leik Stjörnunnar og Fram í Olís-deild kvenna í gærkvöld.
þá leið skyndilega yfir Sigurjón Friðbjörn Björnsson, aðstoðarþjálfara Stjörnunnar, en liðið tók á móti Fram í Olís-deild kvenna í handbolta.
Atvikið átti sér stað um miðbik fyrri hálfleiks, en sem betur fer rankaði hann þó fljótt við sér.
Sigurjón fór með sjúkrabílnum beint upp á sjúkrahús. Þar gekkst hann undir rannsóknir.
Fram bar sigur úr býtum, 26-25, en lið Stjörnunnar var meira að hugsa um líðan Sigurbjörns að leik loknum.































Athugasemdir