Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Þorbjörg er sorgmædd vegna bókar morðingja sonar síns: „Hann er ekki hérna til að svara fyrir sig.“

Þorbjörg er sorgmædd vegna bókar morðingja sonar síns: „Hann er ekki hérna til að svara fyrir sig.“

Þorbjörg Finn­boga­dóttir, móðir Magnúsar Freys Svein­björns­sonar heit­ins sem árið 2002 varð fyrir hrotta­legri lík­ams­árás sem dró hann til dauða, er miður sín yfir bók sem kom nýverið út. Höfundur bók­ar­innar er annar mann­anna sem varð syni hennar að bana.

Baldur Freyr Ein­ars­son var árið 2003 dæmdur í þriggja ára fang­elsi fyrir að verða Magnúsi Frey að bana. Baldur hefur nú gefið út ævi­sögu sína, þar sem hann meðal ann­ars lýsir árásinni á Magnús Frey.

Segir lýsingar ekki passa við dóm Hæstaréttar

Magnús Freyr var rétt kom­inn yfir tví­tugt þegar menn­irnir tveir ollu dauða hans með hinni grimmi­legu árás.

Þorbjörg segir í sam­tali við Mannlíf að lýs­ingar Baldurs Freys af árásinni séu ekki í sam­ræmi við raun­veru­leik­ann.

„Það er kafli í bók­inni þar sem hann lýsir því þegar þeir lenda saman og segir að strák­ur­inn minn hafi byrjað, sem er ekki rétt. Hann lýsir slags­mál­unum og hvað hann er að hugsa á meðan hann er að slást við hann, þannig að þetta er bara eins og að lesa ein­hverja krimma­sögu. Þetta er allt önnur lýs­ing heldur en ef þú lest hæsta­rétt­ar­dóm­inn um þetta mál. Hann er allt öðru­vísi.

Mín upp­lifun er að hann sé að yfir­færa þennan verknað yfir á þol­and­ann. Þeir voru tveir sem réð­ust á hann og hann nefnir að það hafi verið hinn sem veitti honum bana­höggið, sem er bara ekk­ert vitað. En það var Baldur sem barði meira á honum.“

Finnst hann hvítþvo sjálfan sig

Í dómi Hæsta­réttar segir að ljóst hafi verið sam­kvæmt fram­burði vitna að til­efni árásar Baldurs á Magnús Frey hafi verið smá­vægi­legt. Eftir að Baldur hafi verið dreg­inn ofan af Magnúsi hafi hann kallað til félaga sinna um að veit­ast að honum og það hafi verið þá sem hinn mað­ur­inn bland­aði sér í árás­ina og réð­ist á Magnús.

Baldur er í dómnum sagður hafa slegið Magnús Frey mörg hnefa­högg í höf­uðið, veitt honum högg með höfð­inu og sparkað með hné í höfuð honum og eftir að Magnús Freyr hafi fallið í jörð­ina hafi Baldur sparkað marg­sinnis af afli í höfuð hans með hné og fæti.

Þorbjörg segir að sér finn­ist Baldur vera að koma sér undan ábyrgð, að hann sé að hvít­þvo sjálfan sig með því að segja frá hlut­unum með þeim hætti sem hann gerir.

„Miðað við að mað­ur­inn sé með söfnuð, hann seg­ist vera að hjálpa ógæfu­mönnum og þyk­ist vera búinn að vinna úr öllum sínum málum, þá finnst mér þetta voða skrýtið. Hann hefði getað skrifað ævi­sögu um sína lífs­reynslu án þess að segja í smá­at­riðum hvernig þetta var. Hann hefði getað sagst hafa orðið manni að bana án þess að fara svona ofan í þetta.

Þorbjörg Finn­boga­dóttir

Afturhvarf í sorgarferlið

Þorbjörg seg­ist vera búin að eiga mjög erfitt síðan bókin kom út og hún las lýs­ingar Baldurs. Hún hafi í raun farið til baka í sorg­ar­ferlið.

„Maðurinn minn spurði mig hvort ég ætl­aði að fara í vinnu. Ég verð nú bara að sjá hvað ég end­ist, en ég er alla­vega komin í vinn­una.“

Hún segir að sér finn­ist Baldur bara eiga að lifa sínu eigin lífi „og ekki vera að aug­lýsa þetta svona út um allar trissur.“ Henni þyki afar erfitt að þurfa að sjá and­litið á honum núna framan á bóka­kápum í öllum mögu­legum versl­unum.

Á sínum tíma þurfti Þorbjörg að eiga ein­hver sam­skipti við Baldur. Hún segir hann meðal ann­ars hafa reynt að prútta miska­bæt­urnar niður, en að öðru leyti muni hún lítið eftir sam­skipt­unum. Sú djúpa sorg og áfall sem hún var í á þeim tíma hafi orðið til þess að allt sé dálítið óljóst í minn­ing­unni.

„Það er svo­lítið þannig í sorg­inni hjá mér, að ég man hlut­ina svona óljóst. Það virð­ist hafa lok­ast fyrir þetta bara.“

Hún seg­ist upp­lifa að með skrif­unum sé Baldur að van­virða minn­ingu sonar hennar.

„Hann er að því. Mér finnst það. Og hann er ekki hérna til að svara fyrir sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ