Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hitastigið gæti fallið um 12 gráður – Halldór haffræðingur: „Myndi ekki gera Ísland óbyggilegt“

Hitastigið gæti fallið um 12 gráður – Halldór haffræðingur: „Myndi ekki gera Ísland óbyggilegt“
Mynd. Skjáskot/RÚV

Golfstraum­ur­inn sem sendir hlýtt vatn í gegnum Atl­ants­haf er að missa kraft og er heims­ins stærsta varma­dæla við það að bresta vegna hnatt­rænnar hlýn­unar. Ef golfstraum­ur­inn missir kraft gæti það haft alvar­legar afleið­ingar fyrir hita­stig í Norður-Evrópu.

Haf­fræð­ing­ur­inn Halldór Björns­son segir að þó svo að nýlegar rann­sóknir sýni fram á að hægt hefur á lóð­réttum og köldum haf­straumum sem streyma frá Norð­ur­pólnum til suð­urs, sé ótíma­bært að full­yrða að þetta verði til þess að hinn hlýi Golfstraumur hverfi.

„En í fyrsta lagi þá er Golfstraum­ur­inn ekki að hverfa og í öðru lagi, þó að þessi straumur hryndi, þá myndi það breyta Golfstraumnum eitt­hvað en það myndi ekki gera Ísland óbyggi­legt,“ segir Halldór í við­tali við RÚV.

Hnattræn hlýnun hefur orðið til þess að styrkur golfstraumsins hefur minnkað

Í vís­inda­tíma­rit­inu Nature birt­ist rann­sókn árið 2018 sem segir frá bráðnun inn­lands­íss­ins hefur orðið til þess að styrkur Golfstraums­ins hefur minnkað og hefur ekki verið minni í 1.600 ár.

Fræði­menn telja að haf­straum­ur­inn gæti misst allt að helm­ingi styrk síns fram til árs­ins 2100. Gerist það gæti Golfstraum­ur­inn minnkað svo mikið að það kólni veru­lega í allri Norður-Evrópu.

Norður-Evrópu nýtur góðs af golfstraumnum

Golfstraum­ur­inn er hluti af sam­hang­andi kerfi haf­strauma sem er að finna í öllum úthöfum – einnig nefnt „thermo­haline circulation“ eða AMOC á ensku (Atlantic Mer­i­dional Over­turn­ing Circulation).

AMOC-færi­bandið sér meðal ann­ars um að hlýr sjór og veður er flutt til norð­aust­ur­hluta BNA og norð­vest­ur­hluta Evrópu.

Ísland er t.d. stað­sett álíka norð­ar­lega og norð­ur­hluti Hud­son­flóa í Kanada þar sem lofts­lag er langtum kald­ara.

Hvað er Golfstraumurinn?

Golfstraum­ur­inn er upp­runn­inn er skammt norðan við mið­baug í vest­lægum haf­straumum sem fara um Karí­ba­haf, inn í Mexík­óflóa og út um Flór­ídasund. Hann fer norður með aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna, en á um 40° norð­lægrar breiddar sveigir hann austur yfir Atl­ants­hafið og tekur hluti hans stefn­una að ströndum Vestur-Evrópu.

Annar hluti hans fer í suð­austur með­fram ströndum Vestur-Afríku, uns hann fer svo inn í Karí­ba­hafið aftur. Sá hluti sem tekur stefn­una á Vestur-Evrópu klofnar svo aftur við Fær­eyja­hrygg, önnur kvíslin fer vestur með Íslandi en hin norður með Noregi. Þaðan fer hluti hans í Barents­haf en meg­in­hlut­inn norður með vest­ur­strönd Sval­barða, þar sem áhrifa Golfstraums­ins gætir vart lengur vegna kulda.

Golfstraum­ur­inn er öfl­ug­asti haf­straumur jarðar og rétt eins og neð­an­sjáv­ar­flutn­inga­lest fer hann í gegnum Atl­ants­haf með hraða sem nemur allt að 9 km/klst.

Uppgufun á hlýjum sjónum sér til þess að hér á Íslandi eru vetur mildir miðað við hversu norð­ar­lega við erum stödd.

„Hið kalda hjarta úthafanna“

Í íshaf­inu við aust­ur­strönd Græn­lands kólnar vatnið í haf­straum­inum. Kaldur sjór er þyngri en hlýr og sekkur hann því niður til botns við Grænland og rennur síðan aftur í átt að mið­baug.

Þessi mek­an­ismi er einnig nefndur „Græn­lands­dælan“ eða „Hið kalda hjarta úthaf­anna“ og er mik­il­vægur þáttur í því að við­halda haf­straumum úthaf­anna – þar með talið Golfstraum­inum.

Samkvæmt rann­sókn­inni í Nature er það í Græn­lands­dæl­unni svo­kall­aðri þar sem golfstraum­ur­inn lendir í vanda.

Hitastigið gæti fallið um 12 gráður yfir vetrarlag

Græn­lands­dælan pumpar ekki kalda vatn­inu til baka með sama krafti og áður. Þetta sýna rann­sóknir sem fræði­menn hafa gert á djúp­hafs­seti í haf­inu.

Orsökin er einkum sú að hnatt­ræn hlýnun hefur aukið magn bráðn­andi inn­lands­íss í kringum Grænland.

Ferska vatnið frá inn­lands­ísnum þynnir út seltuna í Golfstraumnum og gerir kalda vatnið eðl­is­létt­ara þannig að það getur legið á yfir­borð­inu en sekkur ekki jafn djúpt og áður.

Það að vatnið sekkur niður virkar eins og öflug „dæla“ sem við­heldur stórum haf­straumum með hlýjum yfir­borðs­straumi til norð­urs og kald­ari og dýpri straumi til suð­urs.

Þar sem hnatt­ræn hlýnun leiðir til meiri bráðn­unar á inn­landsís dregur aukið magn af fersku leys­ing­ar­vatni úr krafti dæl­unnar og dregur þannig úr hringrás haf­strauma eins og til dæmis Golfstraums­ins.

„Núver­andi lofts­lags­líkön segja ekki fyrir um að Golfstraum­ur­inn muni alveg hverfa. Vandinn er bara að við vitum ekki heldur með vissu að slíkt ger­ist ekki. Hættan er til­tölu­lega lítil en afleið­ing­arnar af því yrðu gríð­ar­legar“, sagði dr. David Thornalley við Uni­versity College London í sam­tali við The Guardian árið 2018.

Ef Golfstraum­ur­inn mun alveg bresta gæti hita­stig í norð­ur­hluta Noregs og Sví­þjóðar og hér á Íslandi, fallið niður um allt að tólf gráður um vetur.

Í suð­ur­hluta Skand­in­avíu ásamt Írlandi og Skotlandi gæti hita­stigið fallið um allt að 5 og 10 gráður um vetur.

Það er þó eitt sem má ylja sér við ef þessar ham­farir verða að raun­veru­leika. Samkvæmt lík­ani fræði­manna yfir lofts­lag í Skand­in­avíu eftir hrun Golfstraums­ins munum við fá mun meiri sól og umtals­vert minni rign­ingu.

Heim­ildir:

David J. R. Thornalley. 2018, 11. apríl. Anomalously weak Labrador Sea convection and Atlantic over­turn­ing during the past 150 years. Nature. Slóðin.

Kristín Sig­urð­ar­dóttir. 2021, 7. mars. Golfstraum­ur­inn er ekki að hverfa. Frétta­stofa RÚV. Slóðin.

L. Caesar. 2018, 11. apríl. Observed finger­print of a weakening Atlantic Ocean over­turn­ing circulation. Nature. Slóðin.

Wikipedia

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ