Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ágústa Sverrisdóttir: „Óskar er með ólæknandi krabbamein – Þetta er búið að dreifa sér“

Ágústa Sverrisdóttir: „Óskar er með ólæknandi krabbamein – Þetta er búið að dreifa sér“
Ágústa Sverr­is­dóttir

„Hann er með ólækn­andi krabba­mein. Við fengum að vita það í lok sept­em­ber.“

Þögn

„Þetta er búið að dreifa sér.“

Þetta segir Ágústa Sverr­is­dóttir en eig­in­maður hennar, Óskar Gústaf Ingj­aldur Ólafsson, sem er 39 ára, greind­ist með ristil­krabba­mein 7. des­em­ber í fyrra. Á morgun verður akkúrat eitt ár liðið.

„Des­em­ber­mán­uður í fyrra fór svo­lítið í óvissu af því að það eru allir þessir rauðu dagar í des­em­ber, frí hjá læknum og svona. Á Þor­láks­messu fór hann í seg­u­l­ómun þar sem lifrin var skoðuð betur. Okkur var sagt að taka því rólega um jólin en það var erfitt. Við vorum í mik­illi óvissu sem er ekki alveg það besta yfir hátíð­arnar. 4. jan­úar fengum við svo að vita að það sem hafði áður sést á tölvu­sneið­mynd reynd­ist vera krabba­mein sem dreifst hafði í lifr­ina.“ Óskar byrj­aði í geisla­með­ferð í lok jan­úar og segir Ágústa að hann hafi farið 25 sinnum í geisla. Svo tóku lyfja­með­ferðir við og fór hann á þriggja vikna fresti í lyfja­gjafir. Þá voru það mynda­tökur inn á milli.

4. jan­úar fengum við svo að vita að það sem hafði áður sést á tölvu­sneið­mynd reynd­ist vera krabba­mein sem dreifst hafði í lifr­ina

Í júní fór hann í aðgerð þar sem hluti af lifr­inni var tek­inn og segir Ágústa að það hafi verið stærri partur af lifr­inni en haldið var í fyrstu. „Sú aðgerð gekk vel og var talað um að Óskar þyrfti að bíða í fimm vikur til að jafna sig áður en hann gæti farið í aðra aðgerð þar sem taka átti æxlið í ristl­inum. Svo var sum­ar­frí hjá skurð­læknum og við fjöl­skyldan fórum vestur á firði og vorum hjá for­eldrum hans í góðu yfir­læti,“ segir Ágústa en Óskar er frá Suð­ur­eyri í Súg­anda­firði. Hjónin hafa búið á Eyr­ar­bakka síðan árið 2014.

„Í lok ágúst hné Óskar niður inni á bað­her­berg­inu og kom ég að honum með­vit­und­ar­lausum. Hann var fluttur á sjúkra­hús í Reykja­vík og kom í ljós að hann var með stóra blóð­tappa í báðum lungum. Það var tekin ákvörðun á staðnum þegar við vorum á slysó að gerð væri þræð­ing og var farið í gegnum nár­ann og náð hand­virkt í stærstu tapp­ana og svo áttu blóð­þynn­ing­ar­lyf að vinna á rest­inni. Ég sat á meðan í her­bergi fyrir aðstand­endur og var farin að skipu­leggja jarð­ar­för­ina í hug­anum. Ég vissi ekk­ert hvernig þetta gengi og var búið að segja við mig að það gæti komið blæð­ing hvar sem er í lík­am­anum og þess vegna í heil­anum og þá fór maður að hugsa um verstu mögu­legu útkomu.“

Hann var fluttur á sjúkra­hús í Reykja­vík og kom í ljós að hann var með stóra blóð­tappa í báðum lungum

Aðgerðin gekk vel og fékk Ágústa að hitta mann­inn sinn á gjör­gæslu­deild þar sem hann lá í tvo daga. Hann var síðan færður á lungna­deild þar sem hann lá í átta daga og má geta þess að á þeim tíma kom upp Covid-smit á deild­inni en hann smit­að­ist þó ekki.

Hjónin gerðu svo ráð fyrir að Óskar færi í aðgerð­ina á ristl­inum þremur mán­uðum eftir blóð­tapp­ann. Ágústa segir að í lok sept­em­ber hafi þeim verið til­kynnt að krabba­meinið hefði dreift sér í eitla nálægt nýrum. Einn þeirra væri of nálægt stórri slagæð til að hægt væri að skera þetta í burtu.

„Lækn­ir­inn sagði að aðgerðin á ristl­inum væri hættu­leg og af því að þeir gætu ekki tekið allt vildu þeir ekki fram­kvæma aðgerð­ina og töldu sig ekki vera að gera Óskari neinn greiða með að fram­kvæma hana. Það væri líka mikil hætta á að hann fengi blóð­tappa aftur. Þá var það úr sög­unni. Þetta var því­lík blaut tuska í and­litið. Maður veit ekki hvað maður á að gera við svona upp­lýs­ingar. Við töl­uðum nokkrum dögum síðar við krabba­meinslyfja­lækn­inn sem útskýrði þetta betur fyrir okkur og sagði að fólk í þess­ari stöðu gæti alveg átt gott líf en það væri ekki hægt að segja til um neinn tíma sem eftir væri.“

Óskar fór á líkn­andi með­ferð og fær lyfja­gjöf á tveggja vikna fresti. „Lyfin hægja á krabba­meins­fru­munum og halda þessu í skefjum. Hversu lengi er svo per­sónu­bundið en það verður aldrei hægt að lækna hann og ekki skera þetta í burtu.“

Óskar fór á líkn­andi með­ferð og fær lyfja­gjöf á tveggja vikna fresti

Áfallastreituröskun

Ágústa seg­ist lengi hafa verið kvíða­mann­eskja en að kvíð­inn hafi auk­ist eftir að Óskar greind­ist með krabba­meinið og að hún sé búin að glíma við áfallastreituröskun eftir að hún fann hann með­vit­und­ar­lausan á bað­her­berg­is­gólf­inu vegna blóð­tapp­anna.

„Þetta er búinn að vera rosa­legur til­finn­inga­rús­sí­bani. Þetta er allt búið að reyna á. Stundum átta ég mig ekki á því hvernig mér líður en á sama tíma er ég að leita mér hjálpar. Við fáum aðstoð hjá Ljósinu og Krafti þar sem við höfum talað við gott fag­fólk sem þar starfar. Þjón­ustan sem við sækjum er ekki bara tengd Óskari. Við höfum bæði sótt þar við­töl – þá helst í gegnum fjar­funda­búnað. Það er stundum eins og ég fyllist miklum krafti og eins og ég fái eitt­hvað „boozt” sem ýtir mér áfram þegar ég þarf að redda og gera.“

Stundum átta ég mig ekki á því hvernig mér líður en á sama tíma er ég að leita mér hjálpar

Ágústa segir að hún hafi áður fyrr verið feimin en að þessi reynsla hafi kennt sér að þora. „Maður þarf líka að vera ákveð­inn og tala við starfs­fólk ýmissa stofn­ana eins og sjúkra­húsa og ég þarf að hringja og fylgja eftir hlutum. Ég er farin að vera svo­lítið meira á hnef­anum.“ Hjónin eiga fjög­urra ára gamlan son og segir Ágústa að hann taki eftir að for­eldrum hans líði öðru­vísi en áður og að pabbi hans finnur oft til auk þess sem hann er búinn að vera mikið á sjúkra­húsi. „Við getum ekki útskýrt þetta fyrir honum nema upp að vissu marki og fáum við hjálp við það frá fag­fólki hvernig best sé að útskýra þetta fyrir honum en við eigum ekki að halda þessu leyndu fyrir honum. Börn skilja og skynja miklu meira en maður heldur. Þetta mun alltaf hafa áhrif á son okkar sama hversu mörg ár hann á með pabba sínum. Það þarf ekki að gera merki­lega hluti til að búa til minn­ingar.“

Sonur þeirra hefur spurt að ýmsu sem teng­ist veik­ind­unum. „Hann spurði pabba sinn um dag­inn hvort hann hafi dottið út af því að hann hefði verið með Covid. Það er svo mikið verið að tala um Covid í þjóð­fé­lag­inu, eðli­lega.“

Hann spurði pabba sinn um dag­inn hvort hann hafi dottið út af því að hann hefði verið með Covid

Ágústa og Óskar giftu sig 21. des­em­ber í fyrra. „Við höfðum talað um það áður að gifta okkur en við gerðum það svo í flýti; við ákváðum það þá um morg­un­inn. 21. des­em­ber er afmæli­dagur mömmu og ég hringdi í hana og spurði hvort hún vildi koma austur og verða vottur fyrir okkur. Það skiptir máli að hafa þessa hluti í lagi papp­írs­lega séð til að vera með allt á hreinu ef illa færi. Á þessum tíma­punkti vissum við ekki mikið um stöðu sjúk­dóms­ins. Við getum haldið brúð­kaups­veislu seinna en það þarf ekk­ert endi­lega að halda veislu. Við fengum okkur pítsu um kvöldið á veit­inga­stað.“

Óskar hafði í mörg ár unnið sem örygg­is­vörður hjá Securitas og segir Ágústa að hann hafi nokkrum mán­uðum áður en hann greind­ist verið sagt upp vegna skipu­lags­breyt­inga og var hann atvinnu­laus þegar hann greind­ist. Ágústa vinnur hálfan dag­inn á leik­skóla á Stokks­eyri. „Ég er búin að vera mikið frá vinnu vegna sjúkra­leyfis. Ég er byrjuð að mæta aðeins meira en ég næ ekk­ert að sofa mikið á nótt­unni. Að minnsta kosti ekki neinn gæða­svefn. Ég hef oft fengið martraðir eftir að Óskar greind­ist. Ég er enda­laust þreytt.“

Nágranni hjón­anna stakk upp á að hafin yrði söfnun vegna þeirra og geta þeir sem vilja styrkja hjónin á þessum erf­iðu tímum lagt þeim þannig lið.

Kt.: 190688 2089

Reikningsnúmer: 0325 26 203

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu