Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Bragi fór á kosningaskrifstofu Davíðs Oddssonar: „Þarna sá ég nýja hlið á þessum seníla brjálæðing“

Bragi fór á kosningaskrifstofu Davíðs Oddssonar: „Þarna sá ég nýja hlið á þessum seníla brjálæðing“
Bragi á góðri stundu Mynd: Ari Eldjárn

Bragi Páll Sig­urð­ars­son sjó­maður, rit­höf­undur, ljóð­skáld, pistla­höf­undur, já bara almennur penni, gaf nýverið út sína aðra skáld­sögu. Skáldsagan, sem ber hið skemmti­lega nafn Arnaldur Ind­riða­son deyr, hefur verið að skríða upp met­sölu­listana. Mannlíf ákvað að bjalla á rit­höf­und­inn frum­lega og heyra í honum hljóðið. 

Það þekkja flestir þennan rauð­hærða og sniðuga mann með Sideshow Bob greiðsl­una en hver er hann, í raun?

„Það er hægt að svara þess­ari spurn­ingu á nokkra vegu. Það fyrsta sem kemur til mín er að svara henni á þann hátt sem búddistar líta á mann­eskj­una; Að ég er alheim­ur­inn að upp­lifa sig í formi spen­dýrs sem kallað er Bragi Páll. Eitt and­lit á mörgum og allt það, en þetta er lík­lega ekki aðgengi­lega, auð­melt­an­lega svarið. Á yfir­borð­inu, akkúrat þessa dag­ana, er Bragi Páll fyrst og fremst faðir og kær­asti, og fag­lega séð rit­höf­undur, sjó­maður og pistla­höf­undur. Fyrst og fremst lít ég bara á mig sem mann­eskju sem er að reyna að valda sem minnstum skaða í mínu nán­asta umhverfi, reyna að skila börn­unum mínum af mér sem betra fólki en ég er sjálfur. Ég hef eytt tals­verðum tíma og orku í að taka púslið sem sjálfið mitt er í sundur, og taka minna mark á því sem brotin sem eftir sitja hafa að segja, og finnst þess­vegna pínu erfitt að svara þess­ari spurn­ingu heið­ar­lega, en þetta var í það minnsta til­raun til þess.“

Það var og. En allt og allir eiga sér upp­haf. Og upp­haf Braga Páls var á Stykk­is­hólmi. Hvernig var að alast þar upp?

„Það að vera barn í Stykk­is­hólmi í átt­unni var dásam­legt. Friðsælt og fal­legt. Vinir mínir áttu allir heima í næstu húsum, Jón Magnús, Elín Ragna og Kiddó. Ég flyt að vísu ungur, rétt fyrir fimm ára ald­ur­inn, úr bænum, þegar for­eldrar mínir skilja. En ég var dug­legur að fara vestur, pabbi býr þarna enn, og heim­sótti ég hann, sér­stak­lega á sumrin, og hélt því alltaf teng­ingu við bæinn og jafn­aldra mína.

Í end­ur­minn­ing­unni er æskan í hólm­inum upp­full af áhyggju­lausu flakki um rólegar götur þar sem allt gat orðið að ævin­týri fyr­ir­vara­laust. Þannig voru sumrin sem ung­lingur þarna líka, bara búið að bæta við skell­inöðrum, bjór og Camel. Mér þykir alveg ofboðs­lega vænt um Stykk­is­hólm. Þó ég hafi alist upp frá 5 ára og upp úr tví­tugu í Mosó þá upp­lifi ég mig alltaf sem Hólmara fyrst, svo Mos­fell­ing. Þar af leiðir að ég er bara gestur í Reykja­vík og má þess­vegna vera dug­legur á flaut­unni í umferð­inni og hafa skoð­anir sem aðrir kannski þora ekki. Glöggt er gests augað og allur sá djass.“

Bragi er sem betur fer ekk­ert líkur Sideshow Bob að innan.

Eins og áður segir hefur allt upp­haf og það sama hlýtur að eiga við um skrifin og áhug­ann á ljóðum. Hvenær kvikn­aði sá áhugi?

„Ég man það ekki alveg sjálfur, en ég var ungur far­inn að læra vísur og semja svo sjálfur afbak­aðar útgáfur af þeim. Fyrsta vísan sem hefur varð­veist eftir mig er frá því ég var þriggja ára. Eftir að for­eldrar mínir skilja er ég mikið í pössun hjá langömmu minni, Dag­björtu Níels­dóttur frá Sellátri á Breiða­firði. Langamma sagði alltaf um mig að ég yrði skáld, sem er mjög steikt að alast upp við. Líklega sagði hún þetta því ég var og er mjög lyg­inn, en það hjálpar gríð­ar­lega í rit­höf­unda­starf­inu. Getur verið til trafala þegar ég hef sett upp blaða­manna­hatt­inn. Þess­vegna kannski eiga pistla­skrif best við mig, því þar er sann­leik­ur­inn mun mót­an­legri. 

Ég var svo alltaf skrif­andi. Í fyrsta bekk stund­aði ég það að stel­ast í fjörgamla Macintosh tölvu móður minnar, þar samdi ég fram­halds­sögu, byggða á Lárusi vini mínum, um strák sem öðl­að­ist ofur­krafta við það að borða lakk­rís, sem er einmitt upp­á­halds nam­mið mitt. Sambó reimar tróna.

Söguna um Lalla lakk­rís prent­aði ég svo út og lét kennar­ann minn, Ingólf Krist­jáns­son, lesa sög­una upp fyrir bekk­inn. Þarna var strax eitt­hvað farið að ger­ast. Ég var svo að semja sögur og ljóð, og alltaf mjög dug­legur að ljúga. Þegar ég fer í gaggó lendi ég á frá­bærum íslensku­kenn­ara, Björk Ein­is­dóttir. Hún hafði það fyrir hefð að alltaf á föstu­dögum voru skap­andi skrif tímar. Þá máttu nem­endur koma með sögur eða ljóð og lesa fyrir bekk­inn og fá end­ur­gjöf frá Björk, þetta var líka algjör­lega frá­bært, og í raun tals­vert fram­sækið fyrir þennan tíma. Í Menntó voru það svo drykkju og dóna­vísur ásamt því sem Morfís var frá­bær far­vegur fyrir skriftir, þó það hafi farið illa með geð­heils­una. Eftir að hafa loks­ins klárað Fjöl­braut í Breið­holti skráði ég mig í Ritlist í Háskól­anum, og á ég henni, Rúnari Helga og Sigurði Pálsyni svo ótrú­lega mikið að þakka. Í Ritlist gafst tæki­færi til þess að skrifa og skrifa, fá stöðugan lestur frá reyndum rit­höf­undum og sam­nem­endum. Þar fór að kvikna sú hug­mynd að kannski gæti ég ein­hvern dag­inn starfað sem rit­höf­undur.“

En hvernig er það með Braga Pál, er hann kominn með vísitölufjölskyldu?

„Ég er í sam­búð með rit­höf­und­inum og alheims­meist­ar­anum Bergþóru Snæ­björns­dóttur. Það er mjög hollt fyrir mig og mitt egó að vera ekki einusinni besti rit­höf­und­ur­inn í fjöl­skyld­unni. Við kynnt­umst einmitt í rit­listi, þar sem ég var mik­ill aðdá­andi hennar. Hún flutti svo til Berlínar eftir nám, en kom til Íslands í ein­hverja heim­sókn að tveim árum liðnum. Ég greip þá gæs­ina, bauðst til þess að skutla henni á Selfoss, þar sem tengda­mamma bjó á þessum tíma, og stalst í sleik. Nú eigum við tvö börn, Úrsúlu sem er sex ára og Eggert sem er tveggja, búum í gamla Vest­ur­bænum, með raf­magns­bíl og Krist­jan­íu­hjól og annað hvert barn sem er með Úu í bekk á for­eldri sem er rit­höf­undur. Það er álíka merki­legt að eiga mömmu eða pabba sem skrifar bækur í Vest­ur­bæj­ar­skóla eins og það var að eiga pabba sem var sjó­maður í Stykk­is­hólmi árið 1988.“

Bragi Páll stundar nú sjó­inn af kappi en hafði um nokk­urt skeið áður unnið sem blaða­maður. Hvað er það minni­stæð­asta úr þeirri vinnu? Þegar Bragi Páll svar­aði þess­ari spurn­ingu er ekki laust að blaða­mað­ur­inn hafi pínu­lítið misst móð­inn við lest­ur­inn. 

„Það allra minn­is­stæð­asta eru kannski þessar stóru opin­ber­anir sem breyttu engu. Þegar Panama­skjölin skol­uð­ust inn til okkar, þar sem var afhjúpað að íslensk elíta kepp­ist við að fela auð sinn fyrir sam­neysl­unni og öllum var skít­sama. Svo þegar upp­reisn-æru málin komu upp, og Björt Framtíð og Viðreisn höfðu hug­rekkið til þess að slíta þeirri rík­is­stjórn, og var verð­launað með löðr­ung og því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var ein­fald­lega kos­inn aftur í rík­is­stjórn. Þarna missti ég soldið áhugan á því að starfa sem blaða­maður, og var hann þó lít­ill fyrir. Þegar þú horfir upp á risa­vaxnar afhjúp­anir skol­ast yfir landið, hver á eftir annarri, án þess að kjós­endur hafi þær í huga í kjör­klef­anum, þá fer maður að spyrja sig til hvers allt streðið sé. 

Annað minn­is­stætt eru svo þessir upp­lif­un­arp­istlar sem ég haft soldið gaman af. Þegar ég fór á íbúa­fund á Kjal­ar­nesi þar sem nokkrir ras­istar voru alveg að pissa á sig yfir því að brúnt fólk sem tal­aði ekki íslensku dirfð­ist til þess að fara í sund­laug­ina þeirra og taka strætó­inn þeirra. Það var fyrsti upp­lif­un­arp­istill­inn. Minn upp­á­halds er samt alltaf þegar ég fór á kosn­inga­skrif­stofu Davíðs Odds­sonar, þegar hann var í fram­boði til for­seta. Hann hafði misst móður sína þennan sama dag og flutti svo fum­lausa en um leið fal­lega ræðu, þar sem honum tókst að flétta full­kom­lega saman sorg og gleði. Þarna sá ég nýja hlið á þessum seníla brjál­æð­ing, sem hefði nátt­úru­lega alltaf átt að fara ein­fald­lega í leik­list. Þannig hefði hann geta hlíft land­anum fyrir þessum við­bjóðs­lega Thatcher/Regan-isma sem öll jakka­fata­börnin éta í morg­un­mat þessa dag­ana – og við sem þjóð hefðum fengið algjör­lega frá­bæran leik­ara í stað­inn. Allt fór þetta sem­sagt á versta veg. Eða nákvæm­lega eins og það átti að fara, eftir því hvern þú spyrð.“

Ekkert alvöru við­tal er án smá drama og spurn­ing­unni um helstu sigra og áskor­anir í líf­inu.

„Ég held að sigrar, áskor­anir og áföll hangi mikið til á sömu spít­unni. Mínir helstu sigrar eru lík­lega unnir á hverjum degi, frá því 20 júní árið 2012, þegar ég fór á sjúkra­húsið Vog og varð þeirrar gæfu aðnjót­andi að taka þeirri leið­sögn og lækn­ingu sem þar bauðst. Allt jákvætt í mínu lífi er bein eða óbein afleið­ing af því að ég hætti að drekka og nota eit­ur­lyf. Þessi sigur er svo bein afleið­ing af mínu mesta áfalli, sem var skiln­aður for­eldra minna þegar ég var fjög­urra ára. Á þeim árum voru engin skiln­að­ar­nám­skeið, eins og eru í boði í dag. Hlut­irnir voru leystir með þögn og áfengi og Stiga sleðum. Þegar þessi frum­ein­ing manns, fjöl­skyldan, er brotin upp og leyst í sundur þá ger­ist eitt­hvað innra með manni. Kemur eitt­hvað högg á sjálfs­mynd­ina sem er erfitt að laga. En allt fór þetta vel að lokum. For­eldrar mínir eru dásam­legt fólk sem ég lít á sem vini mína, engin staðið meira við bakið á mér eða sýnt mér eins skil­yrð­is­lausa ást. Þarna varð samt til ein­hver sárs­auki og þrá­hyggja sem hefur alltaf fylgt mér og ég reynt að lækna með fífla­látum, lit­ríkum bindum og hug­breyt­andi efnum. Í dag reyni ég bara að halda hausnum á mér í þögn í nokkrar mín­útur á dag, ef ég get. Fer með bæn­irnar mínar og geri til­raun til að elska alla þrátt fyrir allt.“

Áður en Bragi Páll hóf að skrifa frum­legar og frá­bærar skáld­sögur gaf hann út ljóða­bæk­urnar Full­komin ljóða­bók, ljóð eða eitt­hvað (Til ham­ingju!) 2012 og Hold árið 2013. Er hann alveg hættur að semja ljóð? Og svo varð blaða­mað­ur­inn að spyrja spurn­ing­una sem ljóð­skáldið Lommi er alltaf að leita svara við, hver er staða ljóðs­ins?

„Nei, alls ekki. Vandinn við ljóð er samt hversu dýr þau eru í fram­leiðslu. Mig minnir að Eiríkur Örn hafi verið að tala um að með því að skrifa ljóð á blað þá fellur blaðið í virði. Það að skrifa og gefa út ljóða­bók er því jafn­gilt því að búa til efna­hags­legt svart­hol sem sogar í sig hag­vöxt. Ég á heilt hand­rit að ljóða­bók sem til stendur að breyta í skáld­sögu eða nóv­ellu, því ég vil ekki hafa það á sam­visk­unni að gera fólk að fátæk­lingum. Ljóð voru fyrsta ástin mín í rit­störfum, þau eru miklu dul­ar­fyllri og dýpri og beitt­ari en skáld­sögur geta nokkurn tíma orðið. Ef ég gæti lifað á því þá myndi ég ein­ungis skrifa ljóð, en nú er ég víst, í sam­starfi við Bergþóru, búinn að búa til tvær mann­eskjur sem þurfa sífellt stærri kulda­skó og hreinar bleyjur og nýtt LOL dót, og þar sem ljóð eru fjár­hags­legt svart­hol þá bara get ég ekki leyft mér þann munað að skrifa eða gefa þau út. Þegar ég vil gera vel við mig þá les ég ljóða­bók og Íslensk ljóð­skáld, ung sem aldin, eru á algjörum heims­mæli­kvarða. Það væri gaman ef almenn­ingur væri með­vit­aður um þetta, og með­vit­aður um að það þarf enga reynslu til þess að lesa ljóð. Þú bara lest þau og svo láta ljóðin þér von­andi líða ein­hvern­veg­inn.

Staða ljóðs­ins er flókin, eins og ég hef verið að segja. Haugur af frá­bærum ljóða­bókum sem koma út á hverju ári, en fólk virð­ist hvorki hafa tíma né hug­rekkið til þess að lesa þær. Ég kenni ljóð­stöfum um. Við eigum ekki að læra ljóð utan­bókar. Við eigum að lesa þau eins og skyndi­bita. Hakka þau í okkur, gubba þeim út aftur. Koma að þeim síðar og éta sama borg­ar­ann aftur. Taka ljóð eftir aðra og skrum­skæla. Leika okkur. Í grunna­skóla var mér kennt að nálg­ast ljóðið eins og það væri heilög ritn­ing, það yrði að umgang­ast af virð­ingu og hátíð­leik, sem er kjaftæði. Ekkert eins hættu­legt fyrir ljóð eða ljóð­skáld að ein­hver fari að koma fram við þau eins og þau séu brot­hætt. Það þarf að þjösnast á þessu. Fyrstu rokk­stjörnur heims­ins voru ljóð­skáldin. Mestu pönk­arar nítj­ándu aldar voru skáldin. Miklir brjál­æð­ingar, drykkju­hrútar og dónar. En í dag sér fólk fyrir sér ein­hverja Shakespear týpu með fjað­ur­penna sem talar í bundnu máli og að það þurfi gráðu í bók­mennta­fræði til þess einusinni að leyfa sér að lesa ljóð. Það er mis­skiln­ingur. Ljóð eru bara eins og hver önnur neyslu­vara, þau bara eru þarna. Fáðu þér. Það þarf ekki að vera lærður kokkur til þess að finn­ast sushi gott. Sama gildir um ljóðin. Þannig að, svo ég svari honum Lomma mínum, í gegnum þig: Staða ljóðs­ins er fín, það eru að koma út frá­bær ljóð á Íslandi og um heim allan á hverju ein­asta ári, en það væri gaman ef fleiri treystu sér til þess að lesa þau.“

Þá veistu það Lommi. En hvaða bók var Bragi Páll að gefa út nú rétt fyrir jól?

„Nýja bókin mín, Arnaldur Ind­riða­son deyr, er víst að fá á sig krimma­stimpil, sem ég hafði bara ekki hugsað neitt út í þegar ég skrif­aði hana. Hug­myndin kom til mín þegar ég var að gefa út fyrstu skáld­sög­una mína, Austur, fyrir tveim árum. Þá var Arnaldur einusinni sem oftar að gefa út sinn árlega krimma og seldi hana í bíl­förmum, en bók sem ég hafði unnið að í þrjú ár og langað til að gefa út enn lengur hvarf í flóð­inu. Þarna um miðjan des­em­ber, þegar ljóst var í hvað stefndi, fór ég að grín­ast við vini mína að næsta bók yrði þannig að í upp­hafi hennar finnd­ist Arnaldur Ind­riða­son myrtur í kjall­ara í Norð­ur­mýri. Þessi brand­ari vatt svo tals­vert upp á sig. Ég var svo að bera undir föður minn nokkrar hug­myndir að skáld­sögum sem ég var að velta fyrir mér að nota rit­launa­tím­ann í að skrifa. Hann sagði að þetta væri lang­mest spenn­andi pæl­ingin, og þarmeð var það ákveðið. Þannig í það minnsta hófst þetta. Ég var svo að berja saman fyrstu kafl­ana á meðan ég sat tíma í Stýri­manna­skól­anum, þar sem ég var að bæta við mig rétt­indum. Þegar ég fór svo að taka út rit­launin mín vann ég alfarið að henni, mest á kvöldin. Þá heim­sótti Uggi Óðinsson, aðal­per­sónan, mig. Klóraði sig inn í heil­ann og sagði mér alls­konar við­bjóðs­lega hluti. Í raun­inni skrif­aði hann bók­ina bara fyrir mig, enda er hann líka rit­höf­undur. Ég var bara fílter fyrir hann til þess að vinna sín helstu verk. Það mætti jafn­vel segja að ég ætti alls ekki að vera skrif­aður fyrir þess­ari bók, heldur hann, en ég er honum jafn­framt mjög þakk­látur fyrir að leyfa mér að vera memm.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ