Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Í fréttum var þetta helst – Bálreið í Grafarholti, orðlaus í Hagkaupum, þyngri dómur og Öfgabréf

Í fréttum var þetta helst – Bálreið í Grafarholti, orðlaus í Hagkaupum, þyngri dómur og Öfgabréf

Klara bálreið eftir göngu í Grafarholti – „Ég er mjög hrædd við þá“

Klara nokkur, íbúi í Graf­ar­vogi, lætur ekki bjóða sér það lengur að mæta hundum í lausa­göngu í göngu­ferðum sínum á Reyn­is­vatns­heiði. Hún seg­ist log­andi hrædd við hundana enda hafi hún verið bitin af einum slíkum fyrir nokkru.

Klara opnar á umræð­una í hópi hverf­is­búa á Facebook. Þar segir hún:

„Æ oftar mæti ég fólki sem er með lausa hunda. Hefur það komið fyrir að hundar hafa komið hlaup­andi á móti mér og stokkið upp á mig. Ég er ekki sátt við það þar sem ég hef verið bitin af hundi. Ég hef nefnt það við eig­endur hund­anna að hafa þá í bandi en fengið þau svör að þau mættu hafa þá lausa,“ segir Klara og heldur áfram:

„Eftir að hafa lent í sömu aðstöðu í morgun þá fór ég og kann­aði hvort þetta væri í raun leyfi­legt. Lausa­ganga hunda er leyfð á Reyn­is­vatns­heiði en EKKI á göngu-, reið- og akst­urs­vega­slóðum né einka­lóðum á svæð­inu. Vona ég að hunda­eig­endur virði þessa reglu og hafi hundana sína í ól á göngu-, reið- og akst­urs­vega­slóðum.“

Fjöl­margir íbúar blanda sér í umræð­una og virð­ast flestir þeirra vera á bandi Klöru. Að minnsta kostir er Dagrún það. „Svo inni­lega sam­mála! Mér finnst mjög óþægi­legt að mæta lausum hundum og ég er mjög hrædd við þá,“ segir Dagrún. Og Ragn­heiður er það líka. „Svo sam­mála, allt of oft sem maður rekst á lausa hunda úti um allt og mætir svo dóna­skap og jafn­vel árás­ar­girni af eig­endum ef maður vogar sér að segja eitt­hvað,“ segir hún.

Inga nokkur vill heldur ekki sjá hundana á göngu­stíg­unum. „Við eigum ekki að vera hrædd á göngu­stígum á holt­inu. Ég ótt­ast marga hunda,“ segir Inga. Og Elli hefur líka slæma reynslu. „Gæti ekki verið meira sam­mála!! Ég var svo hrædd síð­asta vetur þegar ég gekk um svæðið og ég var ólétt. Nokkrum sinnum voru hundar að hoppa á móti mér og gelta. Flestir hund­arnir sem ég hef hitt hafa verið góðir en þessir fáu til­teknu hundar gerðu mig bara svo hrædda við þá alla,“ segir Elli.

Sjá alla frétt­ina hér: Klara bál­reið eftir göngu í Graf­ar­holti – „Ég er mjög hrædd við þá“

Hafsteinn átti varla til orð í Hagkaupum: „Hvernig túlkið þið þetta?“

Haf­steini nokkrum blöskr­aði mjög verð­lagið á íslenskum Ora-vörum í Hag­kaupum um helg­ina. Hann lang­aði til að kaupa sér súrar agúrkur en tók þá eftir því að inn­fluttar slíkar kosta 620 pró­sentum minna en Ora-dósin.

Haf­steinn segir frá upp­lifun sinni í fjöl­mennu sam­fé­lagi á Facebook, Vertu á verði – eft­ir­lit með verð­lagi. Hann bendir þá á him­in­hátt kíló­verð á íslensku afurð­inni í sam­an­burði við þá erlendu.

„Hvernig túlkið þið þetta? ORA 2.636 krónur kg. EUROSHOPER 425 krónur kg.“

Fjöl­margir með­limir tjá sig undir færsl­una. Margir rétt­læta verð­mun­inn með því að benda á að íslenska varan sé mun betri en sú erlenda. Ásdís er til að mynda ein þeirra. „Það er bara ekki hægt að líkja þessu saman! Ora 100× betra,“ segir Ásdís. Og Áslaug virð­ist á sama máli. „Kaupir ein­hver þessar ógeðs­legu Euros­hopper vörur?“ spyr hún.

Sjá alla frétt­ina hér: Haf­steinn átti varla til orð í Hag­kaupum: „Hvernig túlkið þið þetta?“

Dómur þyngdur yfir Jóni Páli: Segist hafa litið á sam­skipti þeirra sem fram­hjá­hald en ekki ofbeldi

Fyrr­ver­andi leik­hús­stjóri Leik­fé­lags Akur­eyrar, Jón Páll Eyj­ólfs­son, var dæmdur í þriggja ára skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir nauðgun.

Lands­réttur þyngdi dóm hér­aðs­dóms um sex mán­uði.

Brotið átti sér stað árið 2008.

Lands­réttur kvað upp dóm sinn í dag; málið var tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í nóv­em­ber árið 2020.

Þar var Jón Páll dæmdur í tveggja og hálfs árs skil­orðs­bundið fang­elsi; jafn­framt dæmdur til að greiða brota­þola 2,5 millj­ónir króna í miska­bætur, en Lands­réttur breytti upp­hæð­inni í tvær millj­ónir króna.

Í árs­byrjun árið 2018 komst málið í hámæli þegar Jóni Páli var sagt upp störfum sem leik­hús­stjóra, en aðeins nokkrum vikum fyrr hafði hann til­kynnt að hann ætl­aði að hætta í mars fyrir þremur árum; vís­aði þá til fjár­hags­skorts hjá LA.

Kom í ljós seinna að hann hafði verið sak­aður um nauðgun einum tíu árum fyrr, og sam­kvæmt dómnum átti atvikið sér stað í ágúst árið 2008 – á hót­el­her­bergi í útlöndum.

Afar grófar lýs­ingar er að finna í dómi af ofbeld­inu sem Jón Páll var kærður fyrir og hann var að lokum ákærður; svo dæmdur fyrir ofbeldi og ólög­mæta nauð­ung.

Sjá alla frétt­ina hér: Dómur þyngdur yfir Jóni Páli: Segist hafa litið á sam­skipti þeirra sem fram­hjá­hald en ekki ofbeldi

Öfgar senda Aroni og Eggerti bréf: „Nýtið ykkur for­rétt­inda­stöðu til þess að „styrkja“ ykkar mál“

Bar­áttu­hóp­ur­inn Öfgar sendi frá sér opið bréf til fót­bolta­mann­anna Arons Einars Gunn­ars­sonar og Eggerts Gunnþórs Jóns­sonar vegna yfir­lýs­inga félag­anna um það kyn­ferð­is­of­beldi sem þeir hafa verið sak­aðir um að hafa framið gegn íslenskri stúlku fyrir ell­efu árum í Danmörku.

Öfgar.

Í áður­nefndu bréfi eru Aron Einar og Eggert Gunnþór harð­lega gagn­rýndir; sagðir ráð­ast opin­ber­lega gegn stúlkunni sem sak­aði þá um ofbeldið með yfir­lýs­ingum sínum á sam­fé­lags­miðli:

„Af hverju þurfið þið að ráð­ast svona að henni opin­ber­lega? Af hverju má þol­andi ekki segja frá ónafn­greindum meintum ger­endum og meintu broti sem hún varð fyrir án þess að frá­sögn hennar sé rengd?“

Sagt var frá því í októ­ber að íslensk stúlka hefði kært Aron Einar og Eggert Gunnþór fyrir nauðgun sem sögð er hafa átt sér í Kaup­manna­höfn árið 2010, en bæði Aron Einar og Eggert Gunnþór hafa nú gefið skýrslu hjá lög­reglu vegna rann­sóknar máls­ins. Lögmaður Arons Einars sagð­ist í gær búast við því að málið yrði fellt niður.

Bar­áttu­hóp­ur­inn Öfgar segja að þol­andi meintrar nauðg­unar sé í fullum rétti að kæra meinta ger­endur; að eng­inn þol­andi leiki sér að því að ber­skjalda sig á þennan hátt.

„Það gerir sér eng­inn þol­andi það að leik að kæra meinta ger­endur sína, hvað þá ef þeir hafa völd í sam­fé­lag­inu, eru fyr­ir­myndir, mynd­ar­legir fjöl­skyldu­menn, dýrk­aðir og dáðir.“

Sjá alla frétt­ina: Öfgar senda Aroni og Eggerti bréf: „Nýtið ykkur for­rétt­inda­stöðu til þess að „styrkja“ ykkar mál“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina