Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Hafsteinn átti varla til orð í Hagkaupum: „Hvernig túlkið þið þetta?“

Hagar eiga meðal annars Hagkaup
Hagar eiga meðal ann­ars Hagkaup

Hafsteini nokkrum blöskraði mjög verðlagið á Íslenskum Ora-vörum í Hagkaup um helgina. Hann langaði til að kaupa sér súrar agúrkur en tók þá eftir því að innfluttar slíkar kosta 620 prósentum minna en Ora-dósin.

Hafsteinn segir frá upplifun sinni í fjölmennu samfélagi á Facebook, Vertu á verði – eftirlit með verðlagi. Hann bendir þá á himinhátt kílóverð á íslensku afurðinni í saman­burði við þá erlendu.

„Hvernig túlkið þið þetta? ORA 2636 krónur kg. EUROSHOPER 425 krónur kg.“

Fjölmargir meðlimir tjá sig undir færsluna. Margir réttlæta verð­muninn með því að benda á að íslenska varan sé mun betri en sú erlenda. Ásdís er til að mynda ein þeirra. „Það er bara ekki hægt að líkja þessu saman! Ora 100× betra, segir Ásdís. Og Áslaug virðist á sama máli. „Kaupir einhver þessar ógeðslegu Euroshopper vörur?,“ spyr hún.

Ninja kemur líka til bjargar Ora. „Þessar gúrkur eru sannarlega fram­leiddar á íslandi og þessi fram­leiðsla er handgerð þar sem þeir eru ekki með vélbúnað í svona fram­leiðslu. Þeir hafa reynt að hætta með þessa vöru oftar en einu sinni en fólk verður svo sárt út í þá af því að þetta er svo mikill hluti af jóla­hefðinni og þessu er eingöngu haldið áfram vegna þessara viðskipta­vina sem sækja það svo fast að fá þessa vöru svona. Ora er með verksmiðju í Kópavogi og fram­leiðir stærstan hluta af vörunum þar, allt annað er bara rógburður,“ segir Ninja ákveðin.

En Ívar lætur ekki bjóða sér þetta. „Íslensk fram­leiðsla er ekki samkeppnisfær í svo mörgum tilfellum. Góður neytandi kaupir ódýrari krukkuna.“

Guðjón stingur upp á aðferð fyrir alla þá sem rökstyðja verð­muninn með Ora-gæðum. „Ég á labrador hund. Einu sinni keypti ég rándýrt korn handa honum, sem honum þótti mjög gott! Næst keypti ég það ódýrasta í Costko, hann var tregur í það, horfði á mig stórum augum. Þá setti ég Costco kornið í pokann utan af þessu dýra, þá hámaði hann það í sig. Hvernig væri fyrir Ora fólkið að prufa þessa aðferð?,“ spyr Guðjón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Fjórar unglingsstúlkur eru í haldi í Malang, grunaðar um aðild að dauða skólastúlku.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli