Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Öfgar senda Aroni og Eggerti bréf: „Nýtið ykkur forréttindastöðu til þess að „styrkja“ ykkar mál“

Öfgar senda Aroni og Eggerti bréf: „Nýtið ykkur forréttindastöðu til þess að „styrkja“ ykkar mál“
Aron Einar Gunn­ars­son og Eggert Gunnþór Jónsson

Bar­áttu­hóp­ur­inn Öfgar sendi frá sér opið bréf til fót­bolta­mann­anna Arons Einars Gunn­ars­sonar og Eggerts Gunnþórs Jóns­sonar vegna yfir­lýs­inga félag­anna um það kyn­ferð­is­of­beldi sem þeir hafa verið sak­aðir um að hafa framið fyrir ell­efu árum síðan í Danmörku gegn íslenskri stúlku.

Í áður­nefndu bréfi eru Aron Einar og Eggert Gunnþór harð­lega gagn­rýndir; sagðir ráð­ast opin­ber­lega gegn stúlkunniu sem sak­aði þá um ofbeldið með yfir­lýs­ingum sínum á sam­fé­lags­miðli:

„Af hverju þurfið þið að ráð­ast svona að henni opin­ber­lega? Af hverju má þol­andi ekki segja frá ónafn­greindum meintum ger­endum og meintu broti sem hún varð fyrir án þess að frá­sögn hennar sé rengd?“

Sagt var frá því í októ­ber að íslensk stúlka hefði kært Aron Einar og Eggert Gunnþór fyrir nauðgun; sögð hafa átt sér í Kaup­manna­höfn árið 2010, en bæði Aron Einar og Eggert Gunnþór hafa nú gefið skýrslu hjá lög­reglu vegna rann­sóknar máls­ins: Lögmaður Arons Einars sagð­ist í gær búast við því að málið yrði fellt niður.

Bar­áttu­hóp­ur­inn Öfgar segja að þol­andi meintrar nauðg­unar sé í fullum rétti að kæra meinta ger­endur; að eng­inn þol­andi leiki sér að því að ber­skjalda sig á þennan hátt.

„Það gerir sér eng­inn þol­andi það að leik að kæra meinta ger­endur sína, hvað þá ef þeir hafa völd í sam­fé­lag­inu, eru fyr­ir­myndir, mynd­ar­legir fjöl­skyldu­menn, dýrk­aðir og dáðir.“

Málið hefur vakið mikla athygli á Íslandi, og sam­fé­lagið er í sárum eftir að mörg hneyksl­is­mál komu upp varð­andi núver­andi og fyrr­ver­andi lands­liðs­menn; KSÍ lagð­ist nán­ast á hlið­ina og ljóst er að þessi mál eru hvergi nærri búin.

Öfgar.

Bréf Öfga í heild sinni er hér fyrir neðan:

Opið bréf til Arons Einars & Eggerts Gunnþórs:

Í maí á þessu ári steig hug­rökk kona fram og sagði frá kyn­ferð­is­broti sem hún hafði orðið fyrir árið 2010, hópnauðgun af hendi tveggja lands­liðs­manna á þeim tíma.

Þessi frá­sögn varð til þess að KSÍ málið stóra fór af stað og opn­aði á gríð­ar­lega mörg mál sem hingað til hafa þrif­ist í þögn­inni. Það er nefni­lega stór hluti lands­liðs­manna sem komu Íslandi á EM 2016 bendl­aðir við meint ofbeldi.

Lið sem þú, Aron Einar, hefur leitt sem fyr­ir­liði.

Við sem stöndum utan vallar veltum því eðli­lega fyrir okkur hvers konar menn­ing hefur skap­ast innan þessa liðs, hvers konar bro code eru menn komnir með þegar þeir meint hópnauðga saman, hvað þá þegar nán­ast helm­ingur gull­kyn­slóð­ar­innar eru meintir ger­endur.

Í fyrstu yfir­lýs­ingu þinni, Aron, kallar þú kon­una með óbeinum orðum óheið­ar­lega vegna þess að hún nafn­greinir þig ekki.

Þessi kona skuldar þér ekk­ert, og eins og þú veist sjálfur þá má hún ekki, sam­kvæmt lögum, nafn­greina þig.

Af hverju bendlar þú þig við þetta mál ef þú ert blásak­laus og konan hefur ekki nafn­greint þig?

Eins og þið segið sjálfir þá hefur þol­andi hvergi nafn­greint meinta ger­endur sína heldur ein­ungis sagt sína sögu og leitað réttar síns, sem hún fékk ekki að gera á sínum tíma.

Þið hljótið að skilja það að þol­andi meintrar hópnauðg­unar er í fullum rétti á að kæra meinta ger­endur sína.

Af hverju þurfið þið að ráð­ast svona að henni opin­ber­lega? Af hverju má þol­andi ekki segja frá ónafn­greindum meintum ger­endum og meintu broti sem hún varð fyrir án þess að frá­sögn hennar sé rengd?

Það leikur sér eng­inn þol­andi að því að ber­skjalda sig með þessum hætti, enda höfum við séð í gegnum árin að þegar þolendur stíga fram þá missa þau mann­orð sitt, fjöl­skyldu, vini og hrekj­ast burt.

Það gerir sér eng­inn þol­andi það að leik að kæra meinta ger­endur sína, hvað þá ef þeir hafa völd í sam­fé­lag­inu, eru fyr­ir­myndir, mynd­ar­legir fjöl­skyldu­menn, dýrk­aðir og dáðir.

Í sömu yfir­lýs­ingu sakar Aron Einar KSÍ um útskúfun en þegar ein­stak­lingur situr undir lög­reglu­rann­sókn er það eðli mála að við­kom­andi sé sendur í starfs­leyfi. Við sjáum það gert á flestum vinnu­stöðum.

Að þú, Aron Einar, hafir „fórnað“ þér svona dug­lega fyrir íslensku þjóð­ina og leikið 97 leiki fyrir Íslands hönd gefur þér ekk­ert til­kall til þess að spila fyrir lands­liðið á meðan rann­sókn stendur yfir.

Þau for­rétt­indi sem þú hefur sem fyr­ir­liði íslenska lands­liðs­ins fylgir ábyrgð, ábyrgð sem þú virð­ist kannski ekki hafa getað staðið undir.

Það er vitað mál að lög­reglu­rann­sókn tekur langan tíma hér á Íslandi. Það geta liðið margir mán­uðir áður en meintir ger­endur eru kall­aðir inn í skýrslu­töku og þeir jafn­vel vita ekki að lög­reglu­rann­sókn standi yfir fyrr en sím­tal um boðun í skýrslu­töku berst.

Það er svo sem ekk­ert undra­vert að þið hafið ekki verið kall­aðir inn strax. Þetta vita ykkar lög­menn líka full­vel, sem und­ir­strikar sterk­lega hvað yfir­lýs­ing­arnar eru ein­beitt aðför að æru og trú­verð­ug­leika þol­and­ans.

Því miður er mála­flokkur kyn­ferð­is­of­beldis mjög brot­inn, töl­fræðin segir okkur það. Einungis 17% til­kynntra mála ná til dóm­stóla og þar af eru ein­ungis 13% sem ná til sak­fell­ingar.

Rétt­ar­kerfið end­ur­speglar því ekki sak­leysi meintra ger­enda á neinn hátt. Það sem hins vegar styrkir mál þol­anda í þessu til­felli er að lög­reglan end­ur­opnar ekki rann­sókn á 11 ára gömlu máli sem átti sér stað í Kaup­manna­höfn nema að rík ástæða þyki til.

Það er skrít­inn „mis­skiln­ingur“ hjá ykkur báðum að halda því fram að hægt sé að óska eftir því að gefa skýrslu hjá lög­reglu um meint sak­leysi sitt. Það er lög­reglan sem kallar til skýrslu­töku, ekki öfugt.

Annað hvort eruð þið for­rétt­inda­firrtir með öllu eða, þetta er enn eitt útspilið til að reyna að þyrla upp ryki og mála upp slæma mynd af þol­anda, fyr­ir­mynd­ar­menn­irnir sem þið nú eruð.

Þið bætið svo í þetta með því að leggja mat á að þetta verði nú af öllum lík­indum fellt niður en það sannar hvergi sak­leysi ykkar í þessu máli.

Þið nýtið ykkur for­rétt­inda­stöðu ykkar til þess að „styrkja“ ykkar mál á opin­berum vett­vangi og setjið þol­anda í enn við­kvæm­ari stöðu með þessum aðferðum, sem þið hljótið að vera með­vit­aðir um.

Sam­fé­lagið okkar trúir síður konum, sér­stak­lega ef þær eru þolendur ofbeldis. Það virð­ist vera auð­veld­ara að trúa því að konur ljúgi frekar en að þær séu beittar ofbeldi.

Þessar yfir­lýs­ingar þýða ekki neitt, ekk­ert annað en að þið stígið fram og nafn­greinið ykkur sjálfa með alla þjóð­ina á bak við ykkur.

Það er ekk­ert nýtt að meintir ger­endur nýti sér valda­stöðu sína með þessum hætti og það er ekk­ert nýtt að meintir ger­endur, sér­stak­lega ef þeir eru í valda­stöðu, veit­ist svona að þolendum. Það er engin ný aðferð að lög­menn taki þátt í slíkum aðförum og jafn­vel mæli með þeim.

Það er ekk­ert nýtt að meintir ger­endur neiti sök í kyn­ferð­is­brota­málum. Það er ekk­ert nýtt að lík­urnar á nið­ur­fell­ingu séu sterkar.

Þið end­ur­takið sög­una með öllum hinum meintu ger­end­unum.

Það sannar hins vegar aldrei neitt sak­leysi, rann­sóknir og töl­fræði er þolendum í hag.

Heim­ildir:

Er 13% rétt­læti nóg?ÁRSSKÝRSLA 2019 – blað­síður 43-48, 49-50, 66, 71-72,FRUM­NIЭUR­STÖЭUR­Árs­skýrsla 2020 – blað­síða 7, 17-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina