Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Dómur þyngdur yfir Jóni Páli: Segist hafa litið á samskipti þeirra sem framhjáhald en ekki ofbeldi

Dómur þyngdur yfir Jóni Páli: Segist hafa litið á samskipti þeirra sem framhjáhald en ekki ofbeldi
Jón Páll Eyj­ólfs­son.

Fyrr­ver­andi leik­hús­stjóri Leik­fé­lags Akur­eyrar, Jón Páll Eyj­ólfs­son, var dæmdur í þriggja ára skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir nauðgun.

Lands­réttur þyngdi dóm hér­aðs­dóms um sex mán­uði.

Brotið átti sér stað árið 2008.

Lands­réttur kvað upp dóm sinn í dag; málið var tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í nóv­em­ber árið 2020.

Þar var Jón Páll dæmdur í tveggja og hálfs árs skil­orðs­bundið fang­elsi; jafn­framt dæmdur til að greiða brota­þola 2,5 millj­ónir króna í miska­bætur, en Lands­réttur breytti upp­hæð­inni í tvær millj­ónir króna.

Í árs­byrjun árið 2018 komst málið í hámæli þegar Jóni Páli var sagt upp störfum sem leik­hús­stjóra, en aðeins nokkrum vikum fyrr hafði hann til­kynnt að hann ætl­aði að hætta í mars fyrir þremur árum; vís­aði þá til fjár­hags­skorts hjá LA.

Kom í ljós seinna að hann hafði verið sak­aður um nauðgun einum tíu árum fyrr, og sam­kvæmt dómnum átti atvikið sér stað í ágúst árið 2008 – á hót­el­her­bergi í útlöndum.

Afar grófar lýs­ingar er að finna í dómi af ofbeld­inu sem Jón Páll var kærður fyrir og hann var að lokum ákærður; svo dæmdur fyrir ofbeldi og ólög­mæta nauð­ung.

Í dómi Lands­réttar kemur fram að Jón Páll hafi kastað sér á kon­una þar sem hún lá í rúmi í her­berg­inu og haldið henni fastri.

Jón Páll lagð­ist ofan á hana og hafði við hana kyn­mök án sam­þykkis; og í átökum hafi hún fallið á gólfið; hafi Jón Páll aftrað henni að standa á fætur með því að grípa í fót­legg hennar svo hún skall mjög harka­lega með hné í gólfið og datt á bakið.

Einnig kemur fram að þá hafi Jón Páll sett hné í bringu hennar með þeim afleið­ingum að hún fékk stóran mar­blett.

Förn­ar­lamb Jóns Páls hlaut meðal ann­ars mar­bletti og sár á ýmsum stöðum; rispur og nún­ings­sár og þar að auki sprungu í slím­húð við leg­gangaop.

Daginn eftir leit­aði konan á neyð­ar­mót­töku þar sem myndir voru teknar af áverk­unum.

Í nið­ur­stöðukafla skýrslu læknis segir að hún hafi gefið grein­ar­góða sögu; verið dofin, tætt og aum um allan lík­ama og í kyn­færum.

Leik­hús­stjór­inn fyrr­ver­andi neit­aði sök hjá lög­reglu og fyrir hér­aðs­dómi; kann­að­ist þó við að hafa gist inni á her­bergi kon­unnar umrædda nótt: Sagðist ekk­ert muna vegna áfeng­is­neyslu.

Einnig að hann hafi enga áverka séð á kon­unni morg­un­inn eftir; ekk­ert óeðli­legt hafi verið í fari hennar að hans sögn.

Í skýrslu­tök­unni hjá lög­regl­unni sagð­ist hann muna lítið eftir atvikum næt­ur­innar; myndi til dæmis eftir að þau hefðu legið saman, og svo eftir ein­hverju bram­bolti; þau hafi dottið á milli rúmanna.

Jón Páll seg­ist hafa litið á sam­skipti þeirra um nótt­ina sem fram­hjá­hald en ekki ofbeldi.

Kom fram í gögnum máls­ins að fyrir lágu sam­skipti á Messen­ger milli Jóns Páls og kon­unnar, þar sem hann hafði við­ur­kennt að hafa beitt kon­una ofbeldi og brotið á henni gróf­lega.

Jón Páll sagð­ist hann hafa sótt sér sál­fræði­að­stoðar í kjöl­farið að kröfu fórn­ar­lambs­ins.

Fram­burður hennar fyrir dómi var met­inn trú­verð­ugur og talið að hún hafi verið sam­kvæm sjálfri sér; hefði fram­burður hennar hlotið stoð í gögnum máls­ins, og fram­burði vitna í því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

„Eftir fyrstu kjarnorkuárásina er þriðja heimsstyrjöldin óhjákvæmileg“
Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Innlent

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu