Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Klara bálreið eftir göngu í Grafarholti – „Ég er mjög hrædd við þá“

Klara nokkur, íbúi í Grafar­vogi, lætur ekki bjóða sér það lengur að mæta hundum í lausa­göngu í göngu­ferðum sínum á Reynis­vatnsheiði. Hún segist lifandi hrædd við hundana enda hafi hún verið bitin af einum slíkum fyrir nokkru.

Klara opnar á umræðuna í hópi hverfisbúa á Facebook. Þar segir hún:

„Æ oftar mæti ég fólki sem er með lausa hunda. Hefur það komið fyrir að hundar hafa komið hlaupandi á móti mér og stokkið upp á mig. Ég er ekki sátt við það þar sem ég hef verið bitin af hundi. Ég hef nefnt það við eigendur hundana að hafa þá í bandi en fengið þau svör að þau mættu hafa þá lausa,“ segir Klara og heldur áfram:

„Eftir að hafa lent í sömu aðstöðu í morgun þá fór ég og kannaði hvort þetta væri í raun leyfilegt. Lausa­ganga hunda er leyfð á Reynis­vatnsheiði en EKKI á göngu, reið og aksturs­vega/-slóðum né einka­lóðum á svæðinu. Vona ég að hunda­eigendur virði þessa reglu og hafi hundana sína í ól á göngu, reið og aksturs­vegaslóðum.“

Fjölmargir íbúar blanda sér í umræðun og virðast flestir þeirra vera á bandi Klöru. Að minnsta kostir er Dagrún það. „Svo innilega sammála! Mér finnst mjög óþægilegt að mæta lausum hundum og ég er mjög hrædd við þá,“ segir Dagrún. Og Ragn­heiður er það líka. „Svo sammála, allt of oft sem maður rekst á lausa hunda út um allt og mætir svo dónaskap og jafnvel árásar­girni af eigendum ef maður vogar sér að segja eitthvað,“ segir hún.

Inga nokkur vill heldur ekki sjá hundana á göngu­stígunum. „Við eigum ekki að vera hrædd á göngu­stígum á holtinu. Ég óttast marga hunda,“ segir Inga. Og Elli hefur líka slæma reynslu. „Gæti ekki verið meira sammála!! Ég var svo hrædd síðasta vetur þegar ég gekk um svæðið og ég var ólétt. nokkrum sinnum var hunda hoppa á móti mér og gelta. Flestir hundarnir sem ég hef hitt hafa verið góðir en þessir fáu tilteknu hundar gerðu mig bara svo hrædda við þá alla,“ segir Elli.

Telma er vonsvikin með umræðuna því hvergi líði dýrunum betur en lausum á heiðinni. „Maður sér dýrin ekki jafn hamingjusöm eins og á hlaupum um heiðina. Getur fólk plís hætt að kvarta og pirra sig á öllu. Hvernig á ég að geta þjálfað hundinn minn í t.d. innkalli þegar hún fær aldrei að æfa sig? Þessi heiði er einn af bestu stöðum landsins fyrir hunda að fá að vera hundar. Þið hin sem eruð hrædd getið farið annað, segir Telma ákveðin.

Ögmundur slær á létta stengi. „Hundafólk! Þetta er ekki flókið. Þú prentar út kort sem sýnir göngu- og reiðstíga, þú sýnir hundinum þínum kortið og útskýrir mjög vel fyrir honum að hann megi alls ekki fara inn á þessa stíga! Það gæti jafnvel hjálpað að þú horfir í augun á honum og hleypir aðeins í brýrnar, til þess að hundurinn skilji alvarleika málsins!!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Fjórar unglingsstúlkur eru í haldi í Malang, grunaðar um aðild að dauða skólastúlku.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli