Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Verðkönnun: Þetta er kostnaðurinn við að fá jólasveina í heimsókn

Verðkönnun: Þetta er kostnaðurinn við að fá jólasveina í heimsókn

Nú þegar jólin nálg­ast fara margir að huga að ýmsu skemmti­legu fyrir börnin á aðvent­unni. Jóla­sveina­heim­sóknir hafa notið tölu­verðra vin­sælda síð­ustu ár, en þá koma svein­arnir í heima­hús, spjalla við börnin (og eflaust þá full­orðnu líka) og skemmta með einum eða öðrum hætti.

Mannlíf fór á stúf­ana (takk) og kann­aði hvað það kostar að fá hina ýmsu sveina í heim­sókn og hvað sé inni­falið í heim­sóknum þeirra.

Jólasveinar.is

Jóla­sveinar.is bjóða upp á margs konar þjón­ustu þegar kemur að jóla­sveina­heim­sóknum. Alla daga í des­em­ber er boðið upp á heim­sóknir í heima­hús. Þá stoppar jóla­sveinn­inn í 5 mín­útur á heim­il­inu, segir sögur af sjálfum sér, syngur lag með börn­unum og útdeilir gjöfum, sé þess óskað. Verð fyrir slíka heim­sókn er 11.000 krónur.

Fyrir þá sem vilja lengri heim­sókn frá jóla­svein­inum er einnig boðið upp á 15 mín­útna heim­sókn. Hann syngur þá 3-4 lög og sprellar lengur. Þessi kostur er sagður vin­sæll til dæmis í stærri fjöl­skyldu­boðum. Þá er verðið 18.800 krónur. Verð fyrir tvo saman er 32.800 krónur.

Á aðfanga­dag er hægt að fá heim­sókn frá jóla­sveini í heima­hús til klukkan 16 og er verðið það sama þann dag og aðra. Sömu­leiðis er í boði að panta heim­sókn á jóla­dag. Þá er 20% álagn­ing á almennt verð.

Skjóða, systir jóla­svein­anna, sem mörg börn þekkja ef til vill úr jóla­skemmt­unum og úr Jóla­daga­tali Hurða­skellis og Skjóðu tekur einnig að sér heim­sóknir af öllum stærðum og gerðum um jólin.

Hjá jóla­sveinar.is starfa lærðir leik­arar og vanir áhuga­leik­arar sem meðal ann­ars koma úr Leik­hópnum Lottu.

Einararon.is

Á síð­unni ein­ar­aron.is er ýmist boðið upp á að fá Askasleiki eða Grýlu (nú, eða mæðginin saman) í heim­sókn. Á síð­unni segir að þau heilsi „upp á börn og full­orðna, ganga á milli fólks, gefa sér góðan tíma fyrir mynda­tökur, eru þaul­vön veislu­stjórnun og stuttum (eða lengri) atriðum fyrir hópa, bæði innan- og utandyra.“

Ef bókuð er heim­sókn frá Askasleiki stoppar sveinn­inn í 7 mín­útur, tekur lagið og getur gefið pakka eða í skó­inn. Verð fyrir þetta er 5.000 krónur.

Skyrgámur.is

Í gegnum síð­una skyrgámur.is er boðið upp á margs konar þjón­ustu frá jóla­sveinum. Hægt er að bóka jóla­sveina í fjöl­skyldu­boð, í heima­hús til að gefa börnum pakka og í aðfanga­dags­heim­sókn, svo eitt­hvað sé nefnt.

Fyrir 10 mín­útna heim­sókn tveggja jóla­sveina þar sem þeir syngja, spjalla og töfra ef til vill eitt­hvað skemmti­legt, ásamt því að koma með pakka fyrir börnin (sem for­eldrar útvega fyrir fram) er verðið 12.500 krónur, en 20% af verð­inu rennur til Hjálp­ar­starfs kirkj­unnar.

Sama verð er fyrir um það bil 10 mín­útna heim­sókn tveggja jóla­sveina á aðfanga­dag.

Askasleikir.is

Á askasleikir.is er hægt að fá heim­sókn þar sem jóla­sveinn eða jóla­sveinar stoppa fyrir utan heima­hús í 5 mín­útur, ræða jólin og geta gefið pakka ef það er und­ir­búið fyrir fram. Verð fyrir einn jóla­svein er 5.000 krónur en 8.000 krónur fyrir tvo.

Viljir þú fá jóla­svein inn um glugg­ann heima hjá þér eða eftir öðrum leiðum geta þeir gert það og stoppað í 10 mín­útur. Þeir taka lagið, spjalla og geta gefið pakka eða í skó­inn hafi það verið und­ir­búið. Fyrir slíka heim­sókn er verðið 10.000 krónur fyrir einn jóla­svein og 15.000 krónur fyrir tvo jóla­sveina.

Fyrir aðfanga­dags­heim­sókn, þar sem einn jóla­sveinn stoppar fyrir utan heima­hús í 7 mín­útur, tekur lagið og getur gefið pakka sé þess óskað, er verðið 6.000 krónur.

Sveinki.is

Sveinki.is er jóla­sveina­þjón­usta sem býður upp á alls kyns mögu­leika. Hægt er að fá jóla­svein til að stjórna jóla­bingói, hann kemur í vinnu­staða­heim­sóknir, á jóla­böll og svo getur hann stjórnað spurn­inga­keppni í svoköll­uðu sveinka-kvissi eða farið með gam­an­mál og spilað á gítar sem partí-sveinki.

Svo eru það auð­vitað hinar hefð­bundnu heim­sóknir í heima­hús og margt fleira. Fyrir heim­sókn tveggja jóla­sveina í heima­hús, þar sem þeir syngja jóla­lög og segja brand­ara, er verðið 12.000 krónur. Fyrir sams konar heim­sókn tveggja sveina á aðfanga­dag, þar sem þeir geta afhent pakka sé þess óskað, er verðið það sama, 12.000 krónur. Þó er tekið fram að hægt sé að óska eftir til­boði ef um er að ræða margar íbúðir í sömu blokk eða mörg hús í sömu götu.

Torfi Guðbrandsson – Bjúgnakrækir

Torfi Guð­brands­son er ein­yrki með jóla­sveina­þjón­ustu. Hann er með Bjúgna­kræki á sínum snærum, sem heyrst hefur að sé jafn­vel óðum að skapa sér orð sem besti Bjúgna­krækir lands­ins. Heimsókn í heima­hús fer þannig fram að jóla­sveinn­inn mætir á svæðið, yfir­leitt út í garð eða birt­ist á glugga og biður um að fá að koma inn. Eftir það er kynn­ing, Bjúgna­krækir sýnir börn­unum staf­inn sinn, sem er úr hrúts­horni, og bjúgun sem hann ferð­ast jafnan með ef hann skyldi verða svangur. Oft er hann með sitt­hvað annað spenn­andi í poka sínum sem hann leyfir börn­unum að skoða. Að því loknu tekur Bjúgna­krækir nokkur lög með þeim og í lokin fá þau yfir­leitt gjöf frá honum, sem gengið hefur verið frá fyrir fram. Oftast endar heim­sóknin á mynda­töku.

Heimsókn Bjúgna­krækis er á bil­inu 20-30 mín­útur og kostar 15.000 krónur.

Verðið á sams konar heim­sókn fyrir jóla­boð eða á aðfanga­dag er 20.000 krónur.

Bókanir hjá Torfa (sem hann kemur áleiðis til Bjúgna­krækis) fara fram á Facebook-síðu hans, net­fang­inu [email protected] og í síma 616-7887.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ