Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Mansal – íslensk kona ákærð fyrir að vera með stjúpbörn sín í þrælkunarvinnu

Mansal – íslensk kona ákærð fyrir að vera með stjúpbörn sín í þrælkunarvinnu

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur ákært konu fyrir man­sal en hún er sögð hafa haft fjögur stjúp­börn sín í nauð­ung­ar­vinnu þegar þau voru börn að aldri. Stjúp­móð­irin er sögð hafa látið þrjú barn­anna vinna allt að 13 klukku­stundir á dag, 6 til 7 daga vik­unnar og það fjórða í allt að tvær klukku­stundir á dag, þrjá daga vik­unnar.

Konan er í ákærunni sögð að hafa nýtt hluta af launum barn­anna til að láta reisa fyrir sig hús erlendis. Þetta er í fyrsta skipti í ára­tug sem ákært er fyrir man­sal hér á landi.

Konan, sem er íslensk en hefur sterk tengsl við erlent land, er einnig ákærð fyrir brot í nánu sam­bandi og brot gegn barna­vernd­ar­lögum.  Hún er sögð hafa ítrekað og á alvar­legan og sér­stak­lega sárs­auka­fullan hátt gert lítið úr börn­unum og frammi­stöðu þeirra, kallað þau aum­ingja og öskrað á þau vinnu­stað þeirra og heim­ilum þeirra.

Þá er hún sögð hafa bannað þeim að stunda tóm­stundir og hitta vini sína, neitað elstu börn­unum að fara í fram­halds­skóla að grunn­skóla­námi loknu og haft í hót­unum um að senda þau aftur til heima­lands síns.

Notaði fjármagn til byggingu húsnæðis erlendis

Konan er sömu­leiðis er ákærð fyrir pen­inga­þvætti með því að hafa leynt ávinn­ingi af brotum sínum, rúm­lega 16 millj­ónum.  Tæplega 11 millj­ónir er hún sögð hafa umbreytt í erlendan gjald­eyri sem hún fluttu síðan úr landi og notað var til að fjár­magna bygg­ingu hús­næðis í eigu hennar.

Samkvæmt ákærunni krefja börnin fjögur stjúp­móður sína um 29 millj­ónir.

Sak­sókn­ari telur að með þess­ari hátt­semi hafi konan mis­boðið börn­unum, van­rækt þau and­lega og lík­am­lega og ógnað heilsu og vel­ferð þeirra. Hún hafi sýnt af sér van­virð­andi hátt­semi, yfir­gang, rudda­legt og ósið­legt athæfi í þeirra garð.

Ákæran var þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­ness í þessum mán­uði. Í henni er konan sögð hafa verið gift föður barn­anna, flutt þau hingað til lands, hýst þau og útvegað þeim vinnu hjá fyr­ir­tæki þar sem hún var verk­stjóri og stýrði dag­legum rekstri.

Henni er gefið að sök að hafa nýtt laun barn­anna, rúmar 16 millj­ónir, í eigin þágu.  Þetta er hún sögð hafa gert með því að milli­færa pen­ing­inn út af reikn­ingum þeirra yfir á eigin reikn­inga og greiðslu­kort eða látið þau taka fjár­muni út úr hrað­bönkum og afhenda sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ