Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Embla og Valgerður eru nýgiftar og hafa þurft að þola fordóma: „Við erum par – ekki systur“

Embla og Valgerður eru nýgiftar og hafa þurft að þola fordóma: „Við erum par – ekki systur“
Embla og Val­gerður þegar Val­gerður gekk með son þeirra.

Embla Guðrúnar Ágústs­dóttir er tals­kona Tabú, meist­ara­nemi í félags­fræði, stunda­kenn­ari við Háskóla Íslands, nýgift og á tveggja ára gamlan son. Hún er líka einn af stofn­endum NPA mið­stöðv­ar­innar, en NPA stendur fyrir not­enda­stýrða per­sónu­lega aðstoð. Hún er með hreyfi­hömlun og hefur alla tíð upp­lifað for­dóma sem særa mikið.

Embla er við­mæl­and­inn í helg­ar­við­tali Mannlífs sem lesa má hér.

Embla kynnt­ist ást­inni í lífi sínu árið 2015. Hún var þá búin að kaupa rúm­góða íbúð í Hafn­ar­firði, var með aðstoð­ar­konur í gegnum NPA og naut þess að lifa sjálf­stæðu lífi.

„Þarna var Tinder frekar nýlega byrjað og ég hafði mikla for­dóma gagn­vart því. Mér fannst hall­æris­legt að fólk væri að velja út frá myndum og „swipea“ til hægri eða vinstri. Svo ákvað ég að prófa þetta sjálf en hafði ekki miklar vænt­ingar. Af því að ég var svona skept­ísk þá var ég ekk­ert að velja bara fínar myndir af mér; ég setti inn alls konar myndir og skrif­aði smá­texta um mig til að athuga hvað myndi ger­ast. Ég rakst nokkrum dögum síðar á kon­una mína, Valgerði, á Tinder,“ segir Embla sem hafði komið út úr skápnum þegar hún var 14 ára. „Við fórum að tala saman. Við áttum báðar ketti og gátum talað heil­lengi um kett­ina okkar. Mér leist vel á hana en var ekk­ert á því að fara að hitta hana. Mér fannst óþægi­legt að vera að tala við ein­hverja konu á net­inu. Maður getur á Tinder séð hvað fólk er langt í burtu og það var svo skrýtið að það kom fram að hún væri í tæp­lega tveggja kíló­metra fjar­lægð. Ég hugs­aði „shit, hún á heima hérna rétt hjá“. Það var líka stressandi ef þetta hefði ekki gengið upp og við værum nágrannar. Ég ætl­aði að taka þessu rólega en svo ræddi ég um þetta við vin­konur mínar og þær hvöttu mig til að hitta hana til að athuga hvort það væri eitt­hvað varið í þetta í stað þess að eyða mörgum mán­uðum í að tala við hana í gegnum netið.

Við ákváðum að fara á deit í Reykja­vík en ekki Hafn­ar­firði; við vorum hræddar um að hitta ein­hverja sem við þekktum. Við fórum á stefnu­mót og síðan höfum við verið saman.“

Embla segir að það sem hafi heillað sig við Valgerði hafi verið hvað hún var opin og tal­aði tæpitungu­laust um hlut­ina. „Hún hafði reynslu af félags­mála­starfi, hafði verið í póli­tík og hafði metnað fyrir mann­rétt­indum. Það heill­aði mig líka að finna eld­móð­inn hjá henni. Við töl­uðum heil­mikið saman og það varð ekk­ert vand­ræða­legt. Það var gott merki til að byrja með; við ræddum um kett­ina þegar við höfðum lítið til að tala um.“

Hún hafði reynslu af félags­mála­starfi, hafði verið í póli­tík og hafði metnað fyrir mann­rétt­indum

Það kom í ljós að Val­gerður bjó með kett­inum sínum í kjall­ar­anum í húsi for­eldra sinna í næstu götu og það leið ekki á löngu þar til hún og kisan Matt­hildur voru fluttar inn. „Það var eig­in­lega kött­ur­inn sem flutti á undan en svo kom Val­gerður aðeins seinna. Við tókum okkar tíma í að deita og kynn­ast en mér fannst vera erfitt að hún myndi flytja inn af því að ég var búin að eyða svo miklum tíma í að berj­ast fyrir sjálf­stæði og mér fannst lífið vera svo þægi­legt eins og það var; ég var loks­ins komin á þann stað að geta gert það sem mig lang­aði til að gera á mínum for­sendum. Mér fannst vera ógn­vekj­andi að bæta nýrri mann­eskju inn í líf mitt. Ég upp­lifði fyrstu mán­uð­ina í sam­band­inu ekki á bleiku skýi eins og margir tala um. Ég var að reyna að finna út hvernig ég gæti haldið mínu sjálf­stæði og jafn­framt aðlagað okkar líf saman. Það var gagn­legt að við ræddum um þetta frá byrjun og fljót­lega varð þetta auð­veld­ara. Val­gerður fet­aði þennan veg með mér. Við fundum mjög góða milli­lend­ingu og við höfum náð að skapa líf okkar saman mjög vel, sér­stak­lega síð­ustu ár. Við erum með lítið barn og vegna Covid þá erum við eig­in­lega alltaf saman,“ segir Embla en Val­gerður er nem­andi í þjóð­fræði við Háskóla Íslands og hefur tekið þátt í póli­tík eins og þegar hefur komið fram. „Hún tók þátt í kosn­inga­bar­átt­unni og var á lista VG í haust.“

Ég var að reyna að finna út hvernig ég gæti haldið mínu sjálf­stæði og jafn­framt aðlagað okkar líf saman

Embla er spurð hvort þær hafi fundið fyrir for­dómum þar sem annar aðil­inn í sam­band­inu er fatl­aður.

„Já. Val­gerður lendir oft í því að það er talað yfir mig og við hana. Hún er til dæmis spurð hvort ég geti gengið þegar við erum á flug­völlum og það er komið að því að fara um borð. Hún var auð­vitað ekki vön þessu og verður yfir­leitt reið­ari en ég. Þetta er eitt­hvað sem hefur alveg haft áhrif á líf okkar svo sem eins og áður en við giftum okkur í sumar. Fólk gerir ekki ráð fyrir að við séum par, bæði út af því að við erum sam­kyn­hneigðar og líka út af fötlun minni. Þegar við fórum að skoða hringa þá vorum við til dæmis iðu­lega spurðar hvor okkar væri að fara að gifta sig en ef við hefðum verið gagn­kyn­hneigt par þá hefði verið gert ráð fyrir því að við værum par nema að annað hefði komið fram.“

Þetta særir auð­vitað líka.

„Já, algjör­lega. Algjör­lega. Stundum langar mann til að öskra á fólk eða halda á skilt­inu sem við vorum með í druslu­göng­unni þar sem stendur „Við erum par – ekki systur“ þegar maður situr til dæmis á kaffi­húsi. Það er mis­jafnt hvernig áhrifin eru en maður er alltaf var um sig. Maður þarf alltaf að vera dálítið til­bú­inn að díla við þetta. Þegar við vorum búnar að vera saman í tvö ár fórum við saman til útlanda og á leið­inni inn í vél­ina sneri flug­freyja sér að Valgerði og spurði hvort hún vildi fá lita­bók fyrir mig. Ég spurði flug­freyj­una hvað hún héldi að ég væri gömul. Hún sagði að lita­bókin væri fyrir alla. Ég sagði að svo væri ekki; ég sæi að það væru til nokkur ein­tök fyrir börnin í vél­inni. Þá sagði hún að það hefðu allir gaman af því að lita.

Stundum langar mann til að öskra á fólk eða halda á skilt­inu sem við vorum með í druslu­göng­unni þar sem stendur „Við erum par – ekki systur“ þegar maður situr til dæmis á kaffi­húsi

Svo sett­umst við Val­gerður niður mjög reiðar. Hvað getur maður gert? Þetta er ótrú­lega erfitt. Í augum fólks er ég ein­hver sem Val­gerður er að hugsa um en ekki konan hennar. Við vorum búnar að ákveða að ef flugreyjan myndi labba fram hjá okkur þá myndum við fara í svaka sleik en þessi kona kom aldrei þannig að það gerð­ist ekki. En maður er alltaf að fá þessa áminn­ingu um að maður sé álit­inn barn að eilífu og fólk lítur ekki á mann sem full­gildan þjóð­fé­lags­þegn. Það er ótrú­lega lýj­andi.“

Embla er í meist­ara­verk­efni sínu að rann­saka fötlun og kyn­líf sem og kyn­vit­und. „Ég er sér­stak­lega að skoða við­horf til kyn­ver­undar fatl­aðs fólks. Þetta er svo athygl­is­vert af því að við erum alltaf föst í þessu að vera álitin börn að eilífu og það hefur svo mikil áhrif á þennan þátt lífs­ins. Það er ekki gert ráð fyrir að fatl­aðir muni eiga maka og börn. Ég hef heyrt að ófatl­aðar vin­konur mínar séu undir pressu við að eign­ast maka og börn en ég hef aldrei verið undir slíkri pressu. Það er ekki þessi pressa á fatlað fólk og fólk verður frekar hissa þegar við eign­umst maka. Fólk fær jafn­vel skila­boð um að það eigi að vera þakk­látt fyrir maka sinn af því að hann sé svo góður að vilja vera með manni. Það er alls konar svona sem ég veit að fatlað fólk þarf að glíma við. Rótin er alltaf sú sama, það er ekki álitið að við séum að leggja neitt til. Eins og við séum alltaf þiggj­endur og makar okkar séu að þessu af góð­mennsku. Eins og þeir séu ein­hver líkneski. Það er hins vegar ekki horft á okkur sem tvær mann­eskjur sem séu jafn­ingjar og séu í sam­bandi eins og allir aðrir.“

Rótin er alltaf sú sama, það er ekki álitið að við séum að leggja neitt til

Embla og Val­gerður á brúð­kaups­dag­inn.

 

Helg­ar­við­talið við Emblu má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ