Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Besti dómari Íslandssögunnar – Sigmundur Már: „Skammirnar fara á búninginn sem fer svo í þvott“

Besti dómari Íslandssögunnar – Sigmundur Már: „Skammirnar fara á búninginn sem fer svo í þvott“

Það er á engan hallað þegar full­yrt er að Sig­mundur Már Her­berts­son sé besti körfu­bolta­dóm­ari Íslands fyrr og síðar.

Um það vitnar sú ótrú­lega stað­reynd að hann hefur fjórtán sinnum verið val­inn dóm­ari árs­ins, en þessi topp­maður setti nýtt met í leik Stjörn­unnar og Tinda­stóls í Subway-deild karla í körfu­bolta í síð­asta mán­uði; Sig­mundur Már dæmdi þá sinn 2054. leik fyrir Körfuknatt­leiks­sam­bands Íslands; KKÍ segir frá því að með þessu sé Sig­mundur orð­inn leikja­hæsti dóm­ari sög­unnar í leikjum á vegum KKÍ; sló met Rögn­valdar Hreið­ars­sonar sem dæmdi 2053 leiki fyrir KKÍ áður en hann lagði flaut­una á hill­una eftir síð­asta tíma­bil.

Þá var Sig­mundur Már FIBA dóm­ari til árs­ins 2018, en varð þá að hætta vegna ald­urs þótt hann hafi sjaldan eða aldrei verið betri en einmitt nú; alls dæmdi Sig­mundur Már 233 alþjóð­lega leiki; hann varð fyrsti íslenski dóm­ar­inn til að dæma á EuroBasket, gerði það árið 2015.Heið­urs­mað­ur­inn Sig­mundur Már er í Kvöld­við­tali Mannlífs.

Besti dóm­ar­inn árið 2021, í fjórt­ánda sinn! Hannes Sig­ur­björn Jónsson for­maður KKÍ með Simma á mynd­inni

Hver er Sig­mundur Már? Segðu mér aðeins frá sjálfum þér.

„Ég hef alltaf átt heima í Njarðvík og ólst upp á Holts­götu 41. Fæddur 1. ágúst 1968 og for­eldrar mínir eru Herbert Svav­ars­son húsa­smíða­meist­ari og Margrét Karls­dóttir ljós­móðir sem bæði eru látin. Ég er giftur Sig­ur­björgu Eydísi Gunn­ars­dóttur leik­skóla­kenn­ara og jóga­leið­bein­anda barna. Synir okkar eru Herbert Már og Gunnar Már“ segir Sig­mundur Már sem dags­dag­lega starfar sem umsjón­ar­maður fast­eigna í Njarð­vík­ur­skóla.

Sig­mundur Már byrj­aði að æfa körfu­bolta ungur að árum og „fyrsti þjálf­ar­inn minn var Ted Bee sem spil­aði þá með Njarðvík og á þessum tíma var gríð­ar­legur körfu­bolta­á­hugi í bæj­ar­fé­lag­inu og það hafði áhrif á að við vin­irnir fórum að æfa.

Ég spil­aði í yngri flokkum með Njarðvík og einnig á ég nokkra leiki með meistar­flokki. Þá á ég einnig tvo Evr­ópu­leiki gegn Bayer Leverku­sen árið 1989. Ég æfði og spil­aði einnig með Víði Garði, Reyni Sand­gerði og Ung­templ­ara­fé­lag­inu Hrönn. Á ferli mínum var ég ágætis þriggja stiga skytta og fór helst ekki inn fyrir þriggja stiga lín­una.“

Sig­mundur Már segir aðspurður að það hafi eig­in­lega verið til­viljun að hann byrj­aði í dóm­gæsl­unni:

„Þetta var árið 1994 – vinnu­fé­lagi minn á þessum tíma sem er úr Grinda­vík og heitir Jón Emil Hall­dórs­son hvatti mig til þess að prófa dóm­gæsl­una. Hann var við­loð­andi körfu­bolt­ann í Grinda­vík og þá vant­aði dóm­ara til að dæma fyrir félagið. Á þessum tíma þurftu félögin að útvega dóm­ara sem dæmdu á vegum félags­ins. Þetta vakti áhuga minn á því að fara á dóm­ara­nám­skeið en það varð þó úr að ég fór á nám­skeiðið fyrir mitt félag, Njarðvík.

En þess má geta að sú breyt­ing varð fyrir nokkrum árum að allir dóm­arar eru ófé­lags­bundnir.“

Og þá er spurt, hvað eru leikirnir sem þú hefur dæmt orðnir margir?

„Ég byrj­aði að dæma í efstu deildum árið 1995. Í dag er ég að kom­inn með rúm­lega tvö þús­und skráða KKÍ leiki, en þá eru ekki taldir með æfinga­leikir og æfinga­mót. Árið 2003 tók ég FIBA dóm­ara­rétt­indi og hef ég dæmt yfir tvö hund­ruð leiki í fjöl­mörgum Evr­ópu­löndum. Hápunkt­ur­inn í dóm­gæsl­unni hjá mér var árið 2015 þegar ég var val­inn af FIBA til að dæma á Eurobasket karla í Riga í Lett­landi. Þar dæmdi ég fjóra leiki.“

Stundum er sagt að dóm­arar fái ekk­ert nema skít og skammir fyrir vel unnið og nauð­syn­legt starf – þú ert búinn að vera lengi að, hver er gald­ur­inn og hvað færðu út úr starf­inu, hvað veitir dóm­gæslan þér?

„Fyrir mér er dóm­gæslan lífs­stíll og hefur verið það frá upp­hafi. Gald­ur­inn er að koma alltaf vel und­ir­bú­inn í leiki, lík­am­lega og and­lega. Það er virki­lega skemmti­legt og gef­andi að vera hluti af þess­ari íþrótt sem ég hef ástríðu fyrir. Þetta er líka félags­legt og mikið sam­starf milli dóm­ara. Það hefur líka gefið mér mikið að leið­beina yngri dóm­urum sem eru að stíga sín fyrstu skref á ferl­inum. Góður dóm­ari lætur ekki skít og skammir sem koma úr stúkunni hafa áhrif á sig. Hann heldur ein­beitn­ingu. Skamm­irnar fara á bún­ing­inn sem fer svo í þvott.“

Hvað hefur breyst í dóm­gæslu og í leiknum sjálfum á þeim langa tíma síðan þú varst að spila og byrj­aðir að dæma?

„Það er orðið miklu meira um fag­legan und­ir­bún­ing dóm­ara. Mjög margir leikir eru í beinni útsend­ingu í sjón­varpi sem gefur okkur kost á að skoða okkar leiki. Að loknum leik getur maður greint leik­inn, farið yfir vafa­at­riði og lært af þeim mis­tökum sem maður gerir. Umfjöll­unin og beinar útsend­ingar hjá Stöð 2 Sport er meira en gengur og ger­ist í öðrum löndum í Evrópu.

Það hefur vakið áhuga og undrun erlendra dóm­ara sem ég þekki. Við gerum okkur ekki grein fyrir því hér á landi hvað við fáum að sjá mikið af beinum útsend­ingum af íslenskum körfu­bolta og mikla umfjöllun. Það er ekki sjálf­gefið og ber að þakka.

En stærsta breyt­ingin inni á vell­inum hjá okkur dóm­urum varð þegar við fórum yfir í þriggja dóm­ara kerfið sem að mínu mati gerir dóm­gæsl­una og leik­inn betri. Leik­ur­inn sjálfur er orð­inn miklu hrað­ari og meiri íþrótta­mennska hjá leik­mönnum í karla-  og kvenna­bolt­anum en áður var.

Fleiri leik­menn hafa gerst atvinnu­menn erlendis og held ég að stytt­ist í að við eign­umst aftur leik­mann í NBA.”

Hvernig heldurðu þér við sem dómari?

„Lík­am­legi þátt­ur­inn er stór og felst meðal ann­ars í því að hlaupa og gera styrkta­ræf­ingar, og við dóm­arar tökum  þrek­próf tvisvar á ári,“ segir Sig­mundur Már og bætir við:

„Matar­æðið skiptir máli bæði fyrir lík­am­lega og and­lega líðan og þá er fag­legi und­ir­bún­ing­ur­inn  af  ýmsum toga. Við körfu­bolta­dóm­arar á Íslandi erum þátt­tak­endur í ung­verskum vef ásamt nokkrum öðrum þjóðum þar sem við þurfum að taka próf á tíu daga fresti. Það eru reglu­próf, víd­eó­próf og próf varð­andi stað­setn­ingar á leik­velli.

Einnig þurfum við að dæma út frá „klippum“ sem eru settar inn á ung­verska vef­inn þar sem val­mögu­leik­arnir eru nokkrir, og fáum við nið­ur­stöður innan nokk­urra daga. Þetta er gert til að sam­ræma dóm­gæslu í Evrópu. Einnig hef ég alltaf skoðað mína leiki mjög vel og hlustað á fag­leg ráð frá öðrum.“

Eru einhver aldurstakmörk í dómgæslunni?

„Á Íslandi eru engin ald­urs­tak­mörk varð­andi það hvenær dóm­ari þarf að hætta vegna ald­urs. Aftur á móti hefur FIBA þær reglur að dóm­arar þurfa að hætta að dæma þegar þeir verða fimm­tugir.“

En hvernig fer Sig­mundur Már að því að sam­eina dóm­gæsl­una, hvers­dag­inn og fjöl­skyldu­lífið?

Fallega fjöl­skyldan hans Sig­mundar Más

„Það hefur alltaf gengið upp því ég á mjög skiln­ings­ríka fjöl­skyldu sem hefur alltaf stutt mig í öll þessi ár.

Fjar­ver­urnar að heiman hafa oft verið miklar í gegnum tíð­ina, bæði hér heima og erlendis.

Oft hef ég fórnað ýmsu fyrir dóm­gæsl­una en með sam­þykki fjöl­skyld­unnar. Því tengt má til gam­ans geta að við fjöl­skyldan ætl­uðum öll saman á Eurobasket í Berlín 2015. Um leið og ljóst var að Ísland myndi taka þátt þá bók­uðum við flug, gist­ingu og keyptum miða á alla leiki Íslands. Nokkrum mán­uðum síðar hringdi ég í eig­in­kon­una og sagð­ist bæði vera með góðar og slæmar fréttir. Ég sagði henni að ég hefði verið val­inn af FIBA til að dæma á Eurobasket í riðl­inum sem fram fór í Riga í Lett­landi á sama tíma. Þannig að hún fór ein með strák­ana okkar til Berlínar en ég til Riga.

Án stuðn­ings fjöl­skyld­unnar í gegnum árin hefði ég ekki getað náð svona langt á þessu sviði,“ segir Sig­mundur Már sem næst er spurður hvort honum finn­ist að dóm­arar í bolta­í­þróttum eigi að fá að tjá sig eftir leiki eins og þjálf­arar og leik­menn gera ef eftir því er leitað.

„Að minu mati er ekki gott að tjá sig strax eftir leik, því það er gott að geta skoðað betur ýmis atvik og svarað þá ef þörf er á. Það hefur ekki tíðkast að dóm­arar tjái sig um og eftir leiki og ég er ekki viss um hvort það sé rétta leiðin.“

Að lokum, hver eru helstu áhugamál þín og hvernig verðu frítíma þínum?

Dómgæsla, körfu­bolti og að horfa á margar aðrar íþróttir eru mín helstu áhuga­mál. Ég hef mik­inn áhuga á að halda mér í góðu lík­am­legu formi; bæði með því að fara í rækt­ina, stunda úti­hlaup og göngu­ferðir úti í nátt­úr­unni með hund­inn okkar hann Skugga. Ferðalög inn­a­lands og erlendis eru alltaf skemmti­leg.  

Áhugi minn á elda­mennsku hefur auk­ist og mér finnst gaman að elda góðan mat fyrir fjöl­skyldu og vini.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ