Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heilsufar er nátengt blóðflokki okkar – Blóðflokkur 0 dregur úr hættu á kórónaveirusýkingu

Heilsufar er nátengt blóðflokki okkar – Blóðflokkur 0 dregur úr hættu á kórónaveirusýkingu

Nú hafa nýj­ustu rann­sóknir leitt í ljós að blóð­flokk­arnir eru afger­andi fyrir það hvort við eigum eftir að veikj­ast af til­teknum sjúk­dómum. Einn til­tek­inn blóð­flokkur gagn­ast betur en allir hinir.

Sumir blóð­flokkar hafa þó löngum vaf­ist fyrir læknum sem allar götur frá árinu 1901 hafa reynt að rýna í hvað blóð­flokk­arnir gefa til kynna um okkur.

Flokkur 0 er konungur blóðflokkanna

Þeir sem eru í blóð­flokki 0 geta töl­fræði­lega séð átt von á að sleppa við krabba­mein, minnis­glöp og hjarta­sjúk­dóma.

Rannsókn leiddi í ljós að fólki í blóð­flokki A, B og AB er 15% hætt­ara við að lát­ast af völdum hjarta- og æða­sjúk­dóma en þeim sem eru í flokki 0.

Auk þess virð­ist blóð­flokkur 0 vernda lík­amann gegn krabba­meini.

Vís­inda­menn telja skýr­ing­una vera fólgna í því að blóð­flokk­arnir A, B og AB fái ónæm­is­kerfið til að erf­iða, með þeim afleið­ingum að lík­am­anum verði hætt­ara við að veikj­ast af krabba­meini, á meðan 0 flokk­ur­inn sé hag­stæð­ari hvað þetta varðar.

13 prósent minni ef þú ert í blóðflokki 0

Fólk í 0 blóð­flokki er ólík­legra til að smit­ast af kór­ónu­ver­unni sam­an­borið við blóð­flokka A, B og AB. Það sýnir stórt danskt rann­sókn­ar­verk­efni frá Árósa­há­skóla og Háskól­anum í Suður -Danmörku.

Vís­inda­menn­irnir hafa rann­sakað 473.654 Dani sem höfðu verið próf­aðir fyrir veirunni og borið þá saman við sam­an­burð­ar­hóp meira en 2,2 millj­óna manna.

Meðal þeirra 7422 sem fengu jákvæða nið­ur­stöðu voru færri sem voru í blóð­flokki 0 og fleiri sem voru í flokkum A, B eða AB.

Nánar til­tekið er hættan á að smit­ast af kór­óna­veirunni 13 pró­sent minni ef þú ert í blóð­flokki 0 – og það er óháð því hvort þú ert rhesus jákvæður eða nei­kvæður.

Blóð­flokkur 0 er samt ekki trygg­ing gegn sýk­ingu og því hvetja vís­inda­menn­irnir þig til að fylgja var­úð­ar­ráð­stöf­unum yfir­valda óháð því í hvaða blóð­flokki þú ert í.

Ekki er enn vitað hvers vegna blóð­flokkur 0 er minna mót­tæki­legur fyrir kór­óna­veiru­sýk­ingu og því er þörf á frek­ari rann­sóknum. Vís­inda­menn­irnir að baki verk­efn­inu vona þó að þessi nýja vit­neskja geti hjálpað að með­höndla og koma í veg fyrir kór­ónu­veiru­sýk­ingu.

A og AB geta valdið alvarlegum einkennum kórónuveirunnar

Þar sem blóð­flokkur 0 getur veitt vernd gegn kór­ónu­veirunnar eru vís­bend­ingar um að blóð­flokkur A og blóð­flokkur AB geti aukið hætt­una ekki aðeins á sýk­ingu heldur einnig á alvar­legum COVID-19 sjúk­dóms­ein­kennum. Þetta kemur fram í kanadískri rann­sókn sem hefur rann­sakað 95 alvar­lega veika COVID-19 sjúk­linga.

Að sögn vís­inda­mann­anna þurftu sjúk­lingar með blóð­flokk A eða blóð­flokk AB oftar að fara í önd­un­ar­vél, sem getur bent til þess að þeir hafi orðið fyrir meiri skemmdum á lunga­vef vegna sýk­ing­ar­innar.

Sjúk­lingar með A eða blóð­flokk AB höfðu einnig hærri tíðni nýrna­bil­unar og almennt voru þeir lengur á gjör­gæslu­deildum en sjúk­lingar með blóð­flokk 0 eða B.

Ný banda­rísk rann­sókn hefur rann­sakað blóð­flokk A og kom­ist að því að SARS-CoV-2 er með prótín, RBD, sem virð­ist kjósa þennan blóð­flokk.

Kór­óna­veiran notar pró­tínið til að bind­ast frumum og í sam­an­burði við aðra blóð­flokka binst pró­tínið oftar við frum­urnar í önd­un­ar­vegi  hjá fólki í blóð­flokki A.

Hér að ofan má sjá í köku­riti hvernig blóð­flokk­arnir fjórir deil­ast á heims­vísu. Þess má þó geta að svæð­is­bundnar sveiflur koma fyrir og í Suður-Ameríku eru t.d. margir í flokki 0 á meðan flestir Norð­ur­landa­búar eru í flokki A

Íslend­ingar skera sig þó úr meðal Norð­ur­landa­þjóð­anna, því hér eru um 56% í blóð­flokki O, 32% í blóð­flokki A, 10% í B og ein­ungis 3% í blóð­flokki AB.

Til sam­an­burðar þá er A flokk­ur­inn algengastur hjá frændum okkar Norð­mönnum, þar sem 49% til­heyra þeim flokki, 39% eru í O flokki, 8% í B og 4% Norð­manna eru í AB blóð­flokknum.

Blóðflokkur AB getur leitt af sér minnisglöp

Önnur athygl­is­verð rann­sókn gaf til kynna að fólki í blóð­flokki AB væri alls 82% hætt­ara við vanda­málum í tengslum við minnið en þeim sem til­heyra öðrum blóð­flokkum.

Vís­inda­menn­irnir skýra þetta á þann hátt að blóð­flokk­ur­inn ákvarði hvernig og hve auð­veld­lega blóðið storkni og að blóð til­tek­inna flokka storkni betur en ann­arra, með þeim afleið­ingum að litlir blóð­tappar mynd­ist og erf­ið­ara reyn­ist að muna.

Rh-jákvætt eða -neikvætt

Kerfið sem aðal­flokk­arnir fjórir skipt­ast eftir, kall­ast „AB0“ og grund­vall­ast á því að yfir­borð sumra blóð­korna er þakið ólíkum mótefna­vökum, ellegar sykrum sem nefn­ast A eða B, á meðan sum blóð­korn hafa enga mótefna­vaka (0).

Samkvæmt öðru blóð­flokk­un­ar­kerfi, Rhesus, flokk­ast blóð­flokk­arnir í grófum dráttum í þá sem fela í sér mótefna­vak­ann D (Rh-jákvæðir) og þá sem ekki hafa hann (Rh-nei­kvæðir). Fyrir bragðið er yfir­leitt talað um átta blóð­flokka, þ.e. A, B, AB og 0 sem ann­að­hvort eru Rh-jákvæðir eða Rh-nei­kvæðir.

Mik­il­vægt er fyrir fólk að vita hvort það er Rh-jákvætt eða -nei­kvætt, því blöndun þess­ara flokka getur haft í för með sér alvar­legar afleið­ingar fyrir þá sem eru Rh-nei­kvæðir.

Heim­ildir:

Gorm Plamgren og Anne Lykke. 2021, 04.08. Heilsa okkar ræðst af blóð­inu. Lifandi vís­indi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ