Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Völvan 2022: Sigurganga Magnúsar Geirs – barnalán – Steinunn Ólína skrifar bók og veldur usla

Völvan 2022: Sigurganga Magnúsar Geirs – barnalán – Steinunn Ólína skrifar bók og veldur usla

Völvu­blað Mannlífs kom út fyrir ára­mót. Til þess að lesa spá völv­unnar fyrir kom­andi ár í heild sinni er hægt að nálg­ast blaðið hér.

Leiklist

„Það verður afar þungur róður hjá Borg­ar­leik­hús­inu á árinu og fjár­málin standa mjög illa eftir síð­ustu tvö ár. Nýverið óskaði leik­húsið eftir 50 millj­óna króna styrk úr rík­is­sjóði vegna tekju­taps í heims­far­aldr­inum. Mér sýn­ist hins vegar að leik­húsið hafi ekki alveg erindi sem erf­iði þar og muni ekki fá alla upp­hæð­ina. Mér finnst eins og málið verði tafið í ein­hverri skrif­finnsku í kerf­inu – og eins og það verði hugs­an­lega tafið vilj­andi. Þetta verður til þess að leik­húsið þarf að taka stóra fjár­hags­lega áhættu.

Bryn­hildur Guð­jóns­dóttir leik­hús­stjóri er með mikla ábyrgð­ar­til­finn­ingu gagn­vart leik­hús­inu þessi miss­erin, en á sama tíma vill hún brjót­ast út úr kass­anum, verða fyrir inn­blæstri og vera frjáls sem lista­maður. Það mun á næst­unni reyn­ast henni þrautin þyngri að sam­eina lista­mann­inn og leik­hús­stjór­ann. Henni finnst erfitt að vera svona bundin niður eins og raunin hefur orðið í þessu starfi í ófyr­ir­séðum heims­far­aldri.

Að end­ingu mun Bryn­hildur þó halda ótrauð áfram og ná ákveðnu jafn­vægi. Hún verður ein­hvern veg­inn bein­tengd tíð­ar­and­anum og þótt árið verði erfitt verður það á sama tíma spenn­andi. Hún mun gera góða hluti í sam­ræmi við það sem fólk vill sjá akkúrat núna.

Hún fær margar nýjar hug­myndir og mik­inn inn­blástur á seinni hluta árs­ins og mun gera áhuga­verða hluti.

Magnús Geir Þórð­ar­son heldur áfram sig­ur­göngu sinni í Þjóð­leik­hús­inu og þetta verður afar jákvætt og sterkt ár þar á bæ. Vin­sæld­irnar verða miklar og margar sýn­ingar munu njóta hylli lands­manna. Í kjöl­farið mun Þjóð­leik­húsið sópa til sín Grímu­verð­launum, annað árið í röð.

Magnús Geir er almennt séð mjög næmur á tíð­ar­and­ann, en þetta árið verður hann alveg sér­stak­lega mikið með putt­ann á púls­inum. Það er eins og hann sé algjör­lega á réttum stað núna. Allt það sem hann gerir á þessu ári hefur yfir sér orku og álög þannig að breyt­ingar verða til fram­búðar og fót­spor hans mun end­ast og varð­veit­ast. Þetta þýðir að hverjar þær breyt­ingar sem hann kann að gera á þessu tíma­bili verða var­an­legar, eða að minnsta kosti mjög lang­lífar.

Magnús Geir hefur engan áhuga á neinu yfir­borðs­kenndu, heldur vill hann fara á dýpt­ina og það mun end­ur­spegl­ast í verk­efna­vali Þjóð­leik­húss­ins sem og því lista­fólki sem verður valið til starfa við húsið.

Hann hefur mik­inn og djúpan skiln­ing á list­inni en líka á mann­legu eðli og trendum og veit hvað fólkið vill. Þetta er hæfi­leiki sem hann hefur alltaf búið yfir, en hann verður enn betri í því núna – sem mun geta af sér gullöld Þjóð­leik­húss­ins. Þjóð­leik­húsið verður því í algjörri yfir­burða­stöðu á árinu.

Leik­sýn­ingin Ásta mun vinna til ótal Grímu­verð­launa og Birgitta Birg­is­dóttir hreppir verð­laun sem besta leik­kona í aðal­hlut­verki.

Baltasar Kormákur verður áfram á kafi í verk­efnum og mun ganga vel. Hann mun í meira mæli miða á slóð­irnar sem hann var á í Kötlu og er meðal ann­ars að vinna að fram­haldi á þeim þáttum. Ófærð 3 olli von­brigðum og það end­ur­spegl­ast í áhorfi og allri gagn­rýni. Hann lætur þó engan bil­bug á sér finna. Eitthvað virð­ist vera að ger­ast í einka­líf­inu og mér sýn­ist að þau Sunneva Ása Weisshappel muni til­kynna um fjölgun á nýju ári …

Nína Dögg Fil­ipp­us­dóttir skrifar eða leik­stýrir nýju efni á árinu. Þetta eru þættir eða kvik­mynd. Það mun ganga mjög vel og hún mun upp­skera ríku­lega. Hún vinnur til verð­launa fyrir verkið og vekur athygli erlendis.

Þuríður Blær Jóhanns­dóttir verður áber­andi á árinu, bæði í leik­hús­inu og í Reykja­vík­ur­dætrum. Mér sýn­ist að hún gæti fengið tæki­færi erlendis sem lætur hana upp­götva nýja og hrárri hlið á sjálfri sér.

Ástin blómstrar hjá Matth­í­asi Tryggva Har­alds­syni, leik­skáldi og Hatara, og Bryn­hildi Karls­dóttur, sviðs­lista- og tón­list­ar­konu. Þau virð­ast eiga vel saman í lífi og listum og veita hvort öðru mik­inn inn­blástur. Ég ætla að ganga svo langt að segja að það virð­ist vera frjó­semi í kort­unum hjá þeim og ég spái því að ástin muni fjölga sér á nýju ári …

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir er stödd í tíma­bili með mjög háu orku­stigi og villtu yfir­bragði. Þetta gæti falið í sér aukna hvat­vísi og æsing. Mér finnst eins og hún muni skrifa eitt­hvað sem fer öfugt ofan í ansi marga og eft­irá mun hún upp­lifa að hún hafi farið fram úr sér í það skipti. Þetta á sér­stak­lega við í sumar, þá verður mik­ill æsingur í kringum hana. Hún gæti virkjað þessa orku með nýju list­rænu verk­efni sem gæti reynst gjöf­ult. Mér finnst ég þó sjá tölu­vert mikið um skrif hjá henni – það eru jafn­vel nokkrar líkur á því að hún skrifi bók. Það verður þá umdeild bók.

Nýju þætt­irnir Verbúðin slá algjör­lega í gegn og munu hafa ófyr­ir­séð áhrif á sam­fé­lags­um­ræð­una. Þætt­irnir hjálpa almenn­ingi að setja sig inn í flókna sögu lands­ins um fisk og kvóta. Sú skoðun að þjóðin ætti að fá stærri hlut af fiskauð­lind­inni verður útbreidd­ari.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ