Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Lyfjastofnun Evrópu varar við síendurteknum örvunarbólusetningum: Gæti haft slæm áhrif

Lyfja­stofnun Evrópu (EMA) hefur varað við síendurteknum örvunar­bólu­setningum og segja tíða örvunar­skammta hugsanlega geta haft slæm áhrif á ónæmis­kerfið.

Marco Cavaleri, yfirmaður bólu­efna­rannsókna hjá lyfja­stofnuninni EMA, dregur þörfina fyrir annan örvunar­skammt, eða fjórða heildar­skammt af bóluefni, í efa og segir engar rann­sóknir styðja þá þörf enn sem komið er. Hann segir enn ekki nóg af upplýsingum um Omíkron-afbrigðið fyrir hendi.

Cavaleri sagði á blaðamanna­fundi að síendurteknar bólu­setningar með stuttu millibili væru ekki fýsilegar langtíma­lausnir. Hann sagði að örvunar­skammtur sem hugsanlega væri gefinn á fjögurra mánaða fresti, gæti ofgert ónæmis­kerfi fólks og valdið þreytu (e. fatique).

EMA hugnast ekki áætlanir um örvunar­skammta með stuttu millibili, enn sem komið er. Cavaleri sagði að þörf væri á frekari rann­sóknum til þess að skera úr um það hvort þróa þyrfti bóluefni sérstak­lega fyrir Omíkron-afbrigði veirunnar.

Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunin (WHO) tekur í sama streng hvað varðar endur­tekna örvunar­skammta þegar ný afbrigði af veirunni eru enn að koma fram. Stofnunin spáir því að um helmingur íbúa Evrópu muni hafa smitast af Omíkron-afbrigðinu innan sex til átta vikna. Skila­boðin þaðan eru eftir sem áður þau að það sé vænlegra til árangurs að bólusetja alla heims­byggðina, frekar en að ríkari þjóðir bæti sífellt við sig örvunar­skömmtum.

Ekki komið til umræðu hér

Þessi umræða um síendurtekna örvunar­skammta kemur í kjölfar þess að sumar þjóðir eru þegar farnar að skoða mögu­leikann á öðrum örvunar­skammti. Í Ísrael eru bólu­setningar með öðrum örvunar­skammti meira að segja hafnar fyrir fólk yfir 60 ára.

Þórólfur Guðnason, sóttvarna­læknir, segir málið ekki hafa verið rætt hér á landi eins og sakir standa.

Nýjustu rann­sóknir sýna að bólu­setningar draga verulega úr líkum á alvarlegum veikindum vegna Omíkron-afbrigðisins. Líkurnar minnka enn frekar hjá þeim sem þegið hafa einn örvunar­skammt. Marco Cavaleri lagði áherslu á þá góðu raun sem einn örvunar­skammtur gæfi og hvatti fólk áfram til að þiggja hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá