Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Guðrún gagnrýnd fyrir að villa á sér heimildir: „Þú hangir með þessu liði á kvöldin“

„Ertu eitt­hvað illa gefin?,“ sagði Guðrún Ágústa Ágústs­dóttir, upp­eldis- fíkni- og fjöl­skyldu­fræð­ingur við blaða­mann Mannlífs fyrr í vik­unni áður en hún sleit sím­tal­inu. Rétt er að geta þess að Guðrún lauk einnig námi við Sátta­miðl­ara­skól­ann og er á skrá sem sátta­miðl­ari inn á vef Sáttar. Hefur Guðrún verið sökuð um brot í starfi sínu sem ganga meðal ann­ars út á alvar­leg brot á trún­aði.

Guðrún hefur orðið fyrir tölu­verðri gagn­rýni á sam­fé­lags­miðlum síð­ustu daga vegna meintra brota í starfi og hefur hlut­leysi, fag­mennska hennar verið dregin í efa. Þá hefur verið vakin athygli á því að hún hafi nýverið borið vitni í for­sjás­máli og frá­sögn hennar talin hafa haft áhrif á nið­ur­stöðu dóms­ins.

Mannlíf fjall­aði um málið en vegna skemmd­ar­verka á vef Mannlífs á föstu­dag hefur því miður ekki tek­ist að end­ur­heimta fyrri frétt um málið.

Guðrún óskaði eftir því að tjá sig um málið eftir að fyrri frétt birt­ist og hafði blaða­maður sam­band við hana. Vert er að taka fram að ítrekað hafði verið reynt að ná í Guðrúnu fyrr um dag­inn án árang­urs.

„Hvað erum við að tala um, um hvað snýst þetta eig­in­lega?,“ sagði Guðrún í upp­hafi sím­tals­ins og óskaði eftir því að fá upp­lýs­ingar hverjir sendu ábend­ingar til Mannlífs.
Blaða­maður sagð­ist bund­inn trún­aði með slíkar upp­lýs­ingar.

„Ert þú í ein­hverjum af þessum hópum, öfgar eða líf án ofbeldis og þessu dóti öllu?,“ spurði Guðrún og bætti við við að meiri­hluti þess sem birt­ist í frétt­inni væri bull.
Aðspurð hvort hún væri ráð­gjafi hjá barna­vernd sagði Guðrún svo vera.
„Já, ég er það, ég er ekki að starfa, ég vinn ekki sko, ég er ekki á launum þar, ég er verk­taki“.

Kann­að­ist Guðrún ekki við að hafa nafn­greint mann­eskju í tengslum við hennar starf og þannig brotið trúnað. Þá krafð­ist hún þess að fá að vita hvaða sam­tal um væri að ræða. Í annað sinn var henni tjáð að blaða­maður væri bund­inn trún­aði og gæti ekki gefið upp slíkar upp­lýs­ingar.
„Hvað held­uru að ég sé þá í barna­vernd­ar­máli sem að fer fyrir dóm?,“ sagði Guðrún þá.
Blaða­maður spurði þá hvort hún gæti sagt að hún hafi aldrei brotið siða­reglur að henni vit­andi.
„Það er bara þannig, ég er ekki að nafn­greina mína skjól­stæð­inga nein­staðar útí bæ.“
Blaða­maður: „og ekki for­eldra skjól­stæð­inga heldur?“
Guðrún: „nei, nei“
Blaða­maður: „þú hefur aldrei gert það?“
Guðrún: „bara nei“.

Í gögnum sem Mannlíf hefur undir höndum eru meðal ann­ars skjá­skot af sam­skiptum Guðrúnar við aðra mann­eskju sem ekki teng­ist mál­inu.
Þar nafn­greinir hún móður barns sem var hennar skjól­stæð­ingur, segir frá sam­skiptum þeirra og lýsir aðstæðum. Guðrún segir gagn­rýn­ina á sam­fé­lag­smiðum ein­elti í sinn garð.

strokað hefur verið yfir nafnið á skjá­skot­inu

„Þetta ein­elti gegn mér sem er búið að vera í gangi núna af hendi öfga,líf án ofbeldis og þetta lið allt þarna, sem þú ert örugg­lega hluti af, ég heyri það“.
Bætti hún við að blaða­maður væri kom­inn á band ofbeld­is­fólks með umfjöllun sinni. Þegar blaða­maður hugð­ist svara fyrir bætti Guðrún við:
„Þetta eru allt vin­konur þínar, þú hangir með þessu liði á kvöldin ég heyri það bara hvernig þú talar að þú ert með sama lingóið og þessar kell­ingar þarna“.
Blaða­maður sagði svo ekki vera og hélt áfram að spyrja en end­aði Guðrún þá sam­talið með eft­ir­far­andi orðum:
„Hlustaðu á það sem ég segi, ertu illa greind eða hvað er málið?“.

Guðrún birti myndir af skír­teinum á Facebook síðu sinni á dög­unum. Um er að ræða próf­skír­teini en eitt þeirra er frá Skóla SÁÁ fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk. Á mynd­inni má aðeins sjá brot af skír­tein­inu.

Myndina birti Guðrún á Facebook síðu sinni

Mannlíf hafði sam­band við Ingunni Hans­dóttur, yfir­sál­fræð­ing SÁÁ sem sagði áfengis- og vímu­efna­ráð­gjafa lög­verndað starfs­heiti. Námið tæki þrjú ár og að því loknu væri útgefið starfs­leyfi frá land­lækni.
„Það sem ég get stað­fest, þá er þetta hluta­próf sem hún er að birta þarna, ekki fulln­ustu­próf,“ sagði Ingunn og bætti við að hafi Guðrún starfað hjá SÁÁ sem ráð­gjafi þá hafi hún verið undir hand­leiðslu sem ráð­gjafa­nemi.

Mannlíf hafði aftur sam­band við Barna­vernd til þess að ganga úr skugga um það hvort Guðrún væri mögu­lega verk­taki.
„Hún er ekki starfs­maður hjá Barna­vernd og ég kann­ast ekki við það að hún sé verk­taki heldur,“ sagði starfs­maður Barna­verndar.
Aðspurð sagði starfs­mað­ur­inn að fólk væri ekki starfs­menn eða verk­takar Barna­verndar þó svo þau greiði þjón­ustu þeirra.
„Alls ekki, við nátt­úru­lega greiðum alls­konar þjón­ustu fyrir fólk eins og þú segir,“ sagði hún kann­að­ist ekki við störf Guðrúnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ