Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

María upplifði ömurlega reynslu á meðgöngunni: „Allt í einu sagði hún að það væri ekkert barn“

María upplifði ömurlega reynslu á meðgöngunni: „Allt í einu sagði hún að það væri ekkert barn“

María Birigt Gala og sam­býl­is­maður hennar, Tyler Waghorn frá Nýja-Sjálandi, eiga tvö börn og býr fjöl­skyldan í Ástralíu. María varð ófrísk í fyrra­sumar. Allt leit eðli­lega út og blóðprufur sýndu að allt var eins og það átti að vera en um þremur mán­uðum eftir getnað kom í ljós í sónar að ekk­ert fóstur var í belgnum sem stækk­aði þó eins og um þungun væri að ræða. Ekki er vitað hvenær fóst­ur­vísir­inn fór úr lík­am­anum.

„Þetta var ótrú­lega skrýtið. Ég vissi eig­in­lega strax að ég væri orðin ólétt og fann fyrir sömu ein­kennum og þegar ég gekk með syni mína tvo sem eru eins árs og tæp­lega þriggja ára; ég fæ til dæmis vana­lega mikla morg­unó­gleði á með­göngum. Ég fór til læknis og lét taka blóðprufu til að tékka á hvort horm­ónin væru ekki að hækka og það var allt eins og í venju­legri með­göngu. Það gekk allt mjög vel þannig séð.“

Það kom í ljós í són­arnum að belg­ur­inn var að stækka en það var ekk­ert inni í honum

María er með aft­ur­sveigt leg og þegar hún fór í sónar sást ekk­ert fóstur en það hafði líka gerst í með­göng­unum á undan. Hún fór þess vegna aftur í sónar tveimur vikum síðar eins og hún hafði gert í fyrri með­göngu og var hún þá í raun komin um þrjá mán­uði á leið. María fékk mik­inn bak­verk þann dag og seg­ist hún hafa hugsað með sér að það væri eitt­hvað að.

„Það kom í ljós í són­arnum að belg­ur­inn var að stækka en það var ekk­ert inni í honum.“

„Heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn sem sá um són­ar­inn virt­ist vera að flýta sér mikið og ég spurði hvort það væri ekki allt eðli­legt og hún sagði að hún væri að að verða búin og svo allt í einu sagði hún að það væri ekk­ert barn og að hún ætl­aði að gefa okkur nokkrar mín­útur. Og gekk út. Ég vissi ekki hvort ég ætti að gráta eða hvað ég ætti að gera. Ég trúði henni ekki en á sama tíma trúði ég henni. Ég vissi bara ekk­ert hvað var í gangi. Við vorum búin að breyta öllu í lífi okkar af því að við héldum að við værum að fara að eign­ast þriðja barnið. Við vorum til dæmis búin að skoða stærri bíla af því að við þyrftum þrjá bíl­stóla og vorum búin að skoða hvar við gætum búið. Svo gerð­ist þetta.“

María segir að ekki sé vitað um ástæð­una fyrir þessu. Hún segir að hún hafi heyrt að þetta gæti gerst ef móð­irin fær sýk­ingu en að allt hafi komið eðli­lega út í kjöl­farið á útskröpun en eftir það var sýni úr henni skoðað.

„Ég var eig­in­lega í sjokki; ég hafði aldrei heyrt um þetta áður en þetta gerð­ist í mínu til­felli. Ég skrif­aði svo um þessa reynslu á Instagram og það höfðu ótrú­lega margar stelpur sam­band sem höfðu lent í því sama sem mér fannst vera skrýtið af því að mér datt ekki í hug að þetta væri svona algengt.“

Þetta var ömurleg lífsreynsla

María seg­ist hafa hringt í lækn­inn sinn en hann þurfti að skrifa upp á til að hún gæti farið í útskröpun. „Hann gerði eig­in­lega ekk­ert í því og sendi ekki einu sinni beiðn­ina þannig að ég þurfti að bíða í rúma viku til þess að fara í útskröpun,“ segir hún en aðgerðin var gerð í lok sept­em­ber. „Þetta var erf­ið­asta vika lífs míns. Þetta var ömur­legt. Mér leið ógeðs­lega and­lega og lík­am­lega en ég var með svo mikla verki í bak­inu og alls staðar og ég gat varla staðið í fæt­urna. Ég var ótrú­lega þreytt. Ég tel mig vera mjög sterka þegar kemur að öllu svona og ég var í raun­inni ekki sár yfir því að það væri ekki barn en það er eins og horm­ón­arnir geri mann alveg rugl­aðan og maður veit ekk­ert hvernig manni eigi að líða.“

Ég hef ekki lent í neinu sem hefur verið jafn­erfitt og þetta.

„Það var ótrú­lega skrýtið að innst inni vissi ég að það væri best fyrir okkur að vera ekki að eign­ast barn á þessum tíma; þetta er búið að vera strembið hjá okkur síð­asta ár og ég vissi að það yrði ótrú­lega erfitt að vera með þrjú börn undir þriggja ára. Ég vissi innst inni að þetta væri örugg­lega það sem væri best fyrir okkur. Það var ótrú­lega gott að geta hugsað þannig en á sama tíma gerð­ist eitt­hvað innra með mér. Ég var ótrú­lega dauf; ég man ekki einu sinni eftir þessum dögum. Ég vissi ekki hvað var í gangi. Ég hugs­aði samt með mér að ég hefði verið búin að plana líf mitt á vissan hátt og svo allt í einu var það tekið í burtu á einni sek­úndu og ég þurfti allt í einu að fara að hugsa um hvernig ég ætl­aði að lifa lífi mínu næstu mán­uði út af því að ég var búin að plana það allt öðru­vísi. Og það var erfitt. Ég hef ekki lent í neinu sem hefur verið jafn­erfitt og þetta. Í dag, nokkrum mán­uðum síðar, er ég ótrú­lega ham­ingju­söm, ánægð og mér gengur vel. Af því að þetta gerð­ist þá fór ég aftur í vinnu en ég hafði verið heima í rúm þrjú ár bara ólétt og með börn.“

María segir að hún hafi lært margt af þess­ari reynslu.

„Það sem aðal­lega kom út úr þessu var að eftir að ég fór alveg á botn lífs míns reif þetta mig upp til þess að langa að gera meira í líf­inu og langa til dæmis að fara aftur að vinna og langa bara í svo mikið meira fyrir okkur. Mig lang­aði til að verða dug­legri. Ég byrj­aði aftur í rækt­inni og ég byrj­aði ein­hvern veg­inn að lifa líf­inu upp á nýtt. Ég fatt­aði þegar maður fór svona alveg á botn­inn hvað lífið er mik­il­vægt og hvað maður getur haft það gott ef maður bara ákveður að hafa það gott og ef mann langar til að lifa góðu lífi þá er það hægt. Það er allt hægt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ