Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Eitt hrottalegasta mál Íslandssögunnar: Banaði tvítugri konu á heimili hennar í Keflavík

Eitt hrottalegasta mál Íslandssögunnar: Banaði tvítugri konu á heimili hennar í Keflavík

Eitt hrotta­leg­asta mál Íslands­sög­unnar er þegar Rúnar Bjarki Rík­harðs­son varð tví­tugri konu, Áslaugu Óla­dóttur að bana með því að stinga hana 28 sinnum ásamt því að nauðga fyrrum sam­býl­is­konu sinni en hún var vin­kona þeirrar fyrri.

Hörm­ungin átti sér stað þann 15. apríl 2000 á heim­ili Áslaugar í Keflavík, einnig réðst Rúnar á sam­býl­is­mann hennar með hníf. Rúnar braust inn á heim­ili fórna­lambs­ins að næt­ur­lagi.

„Ákærði bar fyrir dómi að ástæðan fyrir inn­brot­inu hefði verið e.k. hefnd gegn Áslaugu sem átti að fel­ast í því að berja sam­býl­is­mann hennar. Þá kvaðst hann vera svo­lítið reiður henni vegna kæru sem hún lagði fram gegn honum vegna hót­ana sem bár­ust henni með SMS-skila­boðum. Hann hefur neitað að hafa sent þau skila­boð. Áslaug gaf á sínum tíma skýrslu til lög­regl­unnar vegna fyrra kyn­ferð­is­brots hans gegn sam­býl­is­konu sinni.“

Rúnar segir Áslaugu hafa verið með hávaða og að hann hafi haft áhyggjur af því að heyrst myndi til þeirra, þá hafi hann gripið á það ráð að hóta henni með hníf til að þagga niður í henni.

„Í nið­ur­stöðum dóms­ins segir að aðför Rúnars Bjarka að Áslaugu hafi verið til­efn­is­laus, hrotta­leg og heift­úðug. Hafi hann ekki skirrst við að ryðj­ast inn á heim­ili hennar að næt­ur­lagi og stinga hana marg­ít­rekað í höfuð, háls, bringu og víðar í lík­ama hennar þrátt fyrir að hún væri varn­ar­laus, nakin inni á bað­her­bergi og hafi átt sér einskis ills von. Hróp hennar og köll hafi ein­ungis orðið til að efla Rúnar Bjarka við ódæð­is­verk sitt. Komst dóm­ur­inn að þeirri nið­ur­stöðu að Rúnar Bjarki ætti sér engar máls­bætur vegna morðs­ins og nauð­gan­anna.

Við ákvörðun refs­ingar væri þó litið til ungs ald­urs hans og þess að hann hefur ekki áður sætt refs­ingu. Þótti refs­ing hans engu að síður hæfi­lega ákveðin 18 ára fang­elsi. Hann var enn­fremur dæmdur til að greiða fórn­ar­lömbum og aðstand­endum alls um 3,5 millj­ónir króna í bætur með vöxtum. Auk þess allan sak­ar­kostnað, þar með talin þóknun lög­manna fórn­ar­lamba hans og málsvarn­ar­laun verj­anda hans, rúm­lega 1,1 milljón króna.

Til frá­dráttar refs­ingu Rúnars Bjarka kemur óslitið gæslu­varð­hald frá 15. apríl sl. Verjandi hans tók sér lög­bund­inn fjög­urra vikna frest til að ákveða hvort mál­inu yrði áfrýjað til Hæsta­réttar. Að því búnu féllust dóm­arar á kröfu ákæru­valds­ins að Rúnar Bjarki yrði áfram hafður í gæslu­varð­haldi uns mál­inu lyki fyrir Hæsta­rétti, þó eigi lengur en til 14. júní nk.“ Þetta kom fram í frétt Morg­un­blaðs­ins stuttu eftir dóm­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ