Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sigga Dögg: „Ungt fólk í dag er með meiri kvíða fyrir því að sofa hjá en eldri kynslóðir“

Sigga Dögg: „Ungt fólk í dag er með meiri kvíða fyrir því að sofa hjá en eldri kynslóðir“

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir, eða Sigga Dögg eins og hún er alltaf kölluð, er í helg­ar­við­tali Mannlífs. Hún hefur verið í þunga­miðj­unni á heitri og oft óvæg­inni sam­fé­lags­um­ræðu und­an­farið. Sú umræða fór af stað eftir að Sigga Dögg hafði sótt nám­skeið um fyr­ir­bæri sem kall­ast „bre­ath play“ og deilt upp­lýs­ingum af nám­skeið­inu sem henni þótti bæði áhuga­verðar og mik­il­vægar, á Instagram-síðu sinni. Hún sagði ung­linga oft spyrja um kyrk­ingar í kyn­fræðslu; eitt af fjöl­mörgum atriðum sem spurt er um á nám­skeiðum hennar og hún stígur inn í með krökk­unum á grund­velli sam­þykkis og fræðslu.

Það fár­viðri sem fór í hönd í kjöl­far þessa náði ákveðnum hápunkti í Kast­ljós­þætti þar sem Sigga Dögg mætti Hönnu Björgu Vil­hjálm­sóttur, sem sak­aði hana um að kenna börnum kyrk­ingar og normalísera ofbeld­is­hegðun.

Kýlin eru bara sprengd

Hvað finnst Siggu Dögg um það að umræðan virð­ist alltaf springa svona í loft upp? Að það verði gjarnan til þessar fylk­ingar og pólarís­er­ing?

„Ég held að þetta sé bara fas­inn sem við erum í sem sam­fé­lag, út af metoo og öllu þessu. Kýlin eru þarna og þau eru bara sprengd. Þannig fjar­lægjum við bólur. Þetta hlýtur að vera okkar lær­dóms­fasi núna; að til að taka á stóru mál­unum, eða litlu öngum stóru mál­anna, þá þurfum við svo­lítið að fara og springa vel og dug­lega, leyfa öllu að flæða út og sjá svo hver staðan sé.

Ég var einu sinni með inn­vortis blæð­ingu og lækn­ir­inn sagði þetta: „Við vitum ekk­ert hvað við erum að díla við, fyrr en við förum inn í þig. Þá kemur margt í ljós.“

Þetta er pínu það. Við erum í svo miklu upp­gjöri og þetta er alltaf þannig að unga og eldri kyn­slóðin tekst á. Ég er mjög tæp á að telj­ast sem unga kyn­slóðin. Ég er að verða fer­tug sko, ég er eitís-krakki. Það er alveg svona stretching it að hafa mig sem ungu kyn­slóð­ina, því ég myndi segja að það væru krakkar sem eru núna í háskól­anum. Það er í raun­inni unga kyn­slóðin, sem er þessi mil­leni­als og er með­vituð um jörð­ina. Ég ólst ekk­ert upp við neitt rosa­lega umhverf­is­með­vit­und.

Ef við horfum á kyn­slóð­ina fyrir ofan mig, þá er það kyn­slóð sem elst upp við ákveðna vel­megun. Hún elst upp við kaup­mátt, að fara til útlanda. Kannski svona fyrsta kyn­slóðin sem er ekki amma og afi sem passa, heldur amma og afi sem djamma og eru í golfi. Það er allt í einu þannig að sex­tíu er nýja fimm­tíu. Það er svo margt breytt á einni kyn­slóð. Þannig að eins og ég upp­lifi það, þá er kyn­slóð for­eldra minna mjög ólík kyn­slóð for­eldra sinna og svo finn ég að mín kyn­slóð og hvernig við til dæmis erum í upp­eldi, er allt öðru­vísi en kyn­slóðin fyrir ofan mig að miklu leyti, sem ól upp mína kyn­slóð. Þannig að þetta eru rosa átök á mjög skömmum tíma; í hug­mynda­fræði, þanka­gangi og nálgun. Alveg eins og mín kyn­slóð pirrar sig á tví­tugum krökkum: „Guð, þau eru svo mikil snjó­korn“ og „þau eru svo kvíðin þessi elsku blóm.“ Maður heyrir þetta – það eru alltaf kyn­slóða­á­tök. Það hefur alltaf verið og mun alltaf verða. Það kemur mér ekki á óvart að það birt­ist líka hér. Eðlilega birt­ist það hér.

„Þau eru meira á brems­unni en fyrri kyn­slóðir“

Það er til töl­fræði um það að mín kyn­slóð og kannski fólk sem er fimm, sex árum eldri en ég, er með frekar háan með­al­fjölda ból­fé­laga. Svo var aldur við fyrstu sam­farir skoð­aður.

Þegar þetta var síðan skoðað aftur hafði aldur við fyrstu sam­farir farið upp á við. Þannig að ung­lingar í dag eru eldri þegar þau stunda fyrst sam­farir en þau voru fyrir 20 til 30 árum síðan. Það er bara þró­unin í vest­rænum heimi; aldur við fyrstu sam­farir fer upp á við, sem er bara jákvætt.

Þegar ég er að kenna, eins og uppi í HR, eða í fram­halds­skólum, þá finnur maður að það er allt önnur stemn­ing í tengslum við kyn­líf. Mér finnst eins og fólk sem vinnur ekki við þetta tali um að unga kyn­slóðin sé svo klám­vædd, sé bara í ein­hverju eins og kyrk­ingum og bara sof­andi hjá úti um allt. Þegar raunin er sú, og við höfum banda­ríska og evr­ópska töl­fræði um það, að ungt fólk í dag á færri ból­fé­laga heldur en eldri kyn­slóðin, er með meiri kvíða fyrir því að sofa hjá og stundar minna kyn­líf en eldri kyn­slóðir, meðal ann­ars út af ótta við ofbeldi. Ótta við það að verða fyrir ofbeldi. Þetta er svo­lítið áhuga­vert. Við ætlum þeim að vera svo klám­vædd og sjúk en þau eru meira á brems­unni en fyrri kyn­slóðir.“

Helg­ar­við­talið við Siggu Dögg má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ