Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Lyf við ADHD ófáanlegt í 23 daga: „Ótrúlegt að ég skuli vera uppistandandi“

Lyf við ADHD ófáanlegt í 23 daga: „Ótrúlegt að ég skuli vera uppistandandi“

Lyfið Elvanse, sem ávísað er við ein­kennum athygl­is­brests og ofvirkni, hefur verið ófá­an­legt hér á landi síðan í lok jan­úar. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins sem sér um dreif­ingu á lyf­inu segir fram­leiðslu­brest hafa orðið og að fyr­ir­tækið taki stöð­una alvar­lega. Í sam­tali við Mannlíf lýstu nokkrir ein­stak­lingar, sem taka lyfið að stað­aldri, þeim óþæg­indum og í sumum til­fellum alvar­legu ein­kennum sem skort­ur­inn hefur valdið þeim.

Þegar blaða­maður athug­aði málið kom í ljós að Elvanse hefur ekki feng­ist í Lyfju síðan 25. jan­úar. Von er á nýrri send­ingu í dag, þann 17. febr­úar, ef allt gengur eftir. Það sama á við um önnur apó­tek. Þeir verst settu hafa því verið án lyfs­ins í 23 daga þegar send­ingin loks berst í apó­tek.

Geðlæknar geta lítið gert

Margir geð­læknar hafa vart haft undan við að svara fyr­ir­spurnum sjúk­linga sinna um málið. Hendur þeirra eru bundnar, því það eru tvær skammta­stærðir ófá­an­legar af lyf­inu; 30 mg og 50 mg. Auk þess er ekki mælt með því að fá hærri skammta­stærð ávís­aðri og skipta hverri töflu niður í hluta. Lyfið er hannað þannig að hylkið sleppir út jöfnum skammti yfir heilan dag. Læknar hafa því þurft að flytja sjúk­lingum sínum þau tíð­indi að ekk­ert sé hægt að gera í mál­inu annað en að bíða eftir send­ingu.

Sjúk­lingur sem ræddi við blaða­mann sagði lyfja­fræð­ing í apó­teki hafa lýst stöð­unni sem alvar­legri, í ljósi þess að ekk­ert sam­heita­lyf sé til fyrir Elvanse.

Annað lyf á mark­aðnum sem notað er við athygl­is­brest með og án ofvirkni er lyfið Concerta. Það er þó ekki svo að læknar geti skipt Elvanse út fyrir Concertu fyrir sjúk­linga sína eins og ekk­ert sé. Einungis er gefið út lyfja­skír­teini fyrir annað lyfj­anna tveggja, svo sjúk­lingur eigi rétt á nið­ur­greiðslu. Hafi ein­stak­lingur lyfja­skír­teini fyrir annað þeirra hefur hann það ekki fyrir hitt. Það sama gildir um önnur metýlfenídatlyf, eins og Ritalin og Ritalin Uno.

„Get ekki haldið utan um lífið“

Blaða­maður Mannlífs ræddi við fleiri ein­stak­linga sem hafa liðið fyrir skort­inn á Elvanse. Margrét vakti til að mynda athygli blaða­manns á því að þetta væri sann­ar­lega ekki í fyrsta sinn sem þetta gerð­ist.

„Síðast þegar það var skortur keyrði ég alla leið austur á Hvols­völl af því að ég vissi af glasi þar. Núna hef ég verið án þess í fjóra daga og hjálpi mér allir heilagir, það er ótrú­legt að ég skuli vera uppi­stand­andi. Án lyfj­anna er ég ekki heil mann­eskja, ég get ekki haldið utan um lífið. Skólinn situr á hak­anum, heim­ilið situr á hak­anum af því að ég set allt mitt, sem er ekki mikið, í krakk­ana. Það er alveg óþol­andi að þurfa stöðugt að kvíða því að þurfa að ná í lyfin sín.“

Önnur kona lýsti afar slæmri líðan án lyfj­anna. Hún sagði raunar að sér hefði aldrei liðið jafn illa. „Ég fer ekki fram úr rúm­inu, geri ekk­ert af viti. Ég fæ panikkköst upp úr þurru og krassa upp úr fjögur á dag­inn. Sef síðan ekk­ert um nætur.“

„Skort­ur­inn fer mjög illa í mig. Ég hef ekki lent í þessu núna en síð­ast þegar þetta var þá lenti ég mikið í þessu. Þetta voru nokkrir mán­uðir sem þetta lyf var ekki til hér heima og lífið mitt fór svo­lítið úr skorðum þar sem lyfin hjálpa mér svo rosa­lega mikið í öllu í líf­inu,“ sagði Rut. „Ég tek 50 mg en þegar ég lenti í skort­inum þá var mér boðið 30 mg sem virkar ekki nógu vel fyrir mig. Ég tek 30 mg seinni part­inn til að klára dag­inn en yfir dag­inn þarf ég að taka 50 mg og ég má ekki missa úr dag.“

Framleiðslubrestur hjá lyfjafyrirtækinu

Dreif­ing­ar­að­ili Elvanse á Íslandi er Distica. Júlía Rós Atla­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Distica, segir að um sé að ræða sér­fram­leiðslu á lyf­inu fyrir Ísland. Fram­leiðslu­vanda­mál hafi komið upp hjá lyfja­fyr­ir­tæk­inu á Írlandi í des­em­ber sem hafi valdið því að engin send­ing kom af lyf­inu í jan­úar.

„Síðan gátu þau fram­leitt fyrir okkur í jan­úar,“ segir Júlía Rós. Send­ingin var vænt­an­leg með flugi seinni part­inn í gær, klukkan hálf fimm. Það þýðir að lyfið ætti að verða fáan­legt í dag.

Nokkur apó­tek sem blaða­maður Mannlífs ræddi við áttu von á send­ingu á lyf­inu í dag, 17. febr­úar. Aðspurð seg­ist Júlía Rós eiga von á því að það gangi eftir. „Ef það hefur ekk­ert komið upp á, engin hita­stigs­frá­vik eða neitt slíkt.“

„Í svona fram­leiðslu getur bara alltaf eitt­hvað komið upp á,“ segir hún. „Þeir eru alltaf að leita allra leiða til þess að flýta fram­leiðsl­unni en það eru nátt­úru­lega svo stífar gæða­kröfur að það má ekk­ert klikka. Það taka því allir mjög alvar­lega þegar svona kemur upp á.

Júlía Rós segir að Distica fái lyfin send til lands­ins með hrað­send­inga­fyr­ir­tæki. „Þannig að við erum bara búin að vera að vinna þétt með þeim til þess að koma þessu til lands­ins sem fyrst.

Við erum algjör­lega á tánum, eins og alla daga. Hlutverk okkar er nátt­úru­lega að tryggja lyfja­birgðir í land­inu. Þannig að við fylgjum svona mjög vel eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ