Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hvað myndi breytast hjá þér ef þú hlustaðir á hvað kynhvötin þín hefur raunverulega að segja?

Hvað myndi breytast hjá þér ef þú hlustaðir á hvað kynhvötin þín hefur raunverulega að segja?

„Ég ákvað að rann­saka and­lega hlið kyn­lífs svo ég gæti kafað dýpra ofan þessa unaðstengdu kennslu,“ segir Birna M. Gustafs­son, kyn­fræð­ingur hjá Losta, í sam­tali við Mannlíf. Birna fer yfir ýmiss konar tækni tengda kyn­lífi, en segir að lyk­il­at­riðið sé að njóta sín.

„Það getur verið erfitt að ein­beita sér að unaði þegar hug­ur­inn vill vera ann­ars staðar – stundum erum við ekki að hugsa um neitt sér­tækt, en tengslin við lík­amann eru ekki til staðar. Stundum er það ekki hvað við kunnum í kyn­lífi, heldur tengslin við okkar sjálf sem kyn­verur sem er ástæðan fyrir því að kyn­líf okkar er ekki nóg eða full­nægj­andi.“

Losti var opnuð árið 2019 sem vef­verslun með kyn­lífs­leik­föng og veftíma­rit með fræðslu­efni og eró­tískum sögum. Ári síðar var opnuð verslun Losta í Borg­ar­túni, sem hefur verið starf­rækt hvort tveggja sem verslun með leik­tæki ást­ar­lífs­ins og glæsi­legt kyn­lífs­setur.

Samfélagsleg ábyrgð að fræða

„Losti hefur alltaf ein­blínt mjög mikið á fræðslu og mér finnst það per­sónu­lega sam­fé­lags­leg ábyrgð mín að fræða, en ekki bara að selja vörur. Frá upp­hafi var ég einmitt spennt­ust fyrir því að bjóða upp á unaðsmið­aða fræðslu,“ segir Saga Luvia Sig­urð­ar­dóttir, eig­andi Losta.

„Það vita flestir hvernig kyn­líf virkar anató­m­íu­lega séð, svona nokkurn veg­inn, en oft gleym­ist að tala um unað­inn, gefa honum pláss, læra að biðja um og gefa sam­þykki og fjar­lægja skömm­ina sem teng­ist kyn­lífi. Ég þreyt­ist seint á því að segja fólki að það megi fróa sér, kyn­líf má vera gott og þér má líða vel. Þú mátt njóta kyn­lífs!“

Mindful Sexu­ality (með­vituð kyn­hneigð) er nám­skeið sem Birna M. Gustafs­son kyn­fræð­ingur hefur verið að kenna í Losta, en hún seg­ist ein­blína á fræðslu fyrir alls konar kyn­líf. Á nám­skeiðum hennar ræðir hún um unaðstengd mál eins og munn­mök eða pík­unudd, svo ein­hver dæmi séu tekin.

Á nám­skeið­inu eru settar fram æfingar fyrir fólk sem á í erf­ið­leikum með að tengj­ast lík­am­anum. Þátt­tak­endur eru leiddir í gegnum æfing­arnar sem byggðar eru upp á önd­unaræf­ingum, hug­leiðslu og jarð­teng­ingu. Birna gefur góð ráð til að jarð­tengj­ast í dag­legu lífi og hvernig á að nota þessi tækni til að njóta betur kyn­lífs­ins.

„Ég tala líka um hvernig á að nota sjálfs­fróun til að styrkja enn betur jarð­teng­ingu í kyn­lífi, sem er ein­stak­lega hjálp­legt fyrir fólk sem býr jafn­vel að áfalla­sögu tengdri kyn­lífi.“

Hvað hefur kynhvötin þín raunverulega að segja?

Birna ræðir um það hvaða ímynd maður hafi af sjálfum sér sem kyn­veru. Hún telur að oft­ast passi þessi ímynd ekki við það hvernig maður upp­lifir sig í dag­legu lífi. Ert þú að stynja út af unaði, eða til þess að gleðja mak­ann? Hvernig upp­lifir þú raun­veru­lega gott kyn­líf og finnst þér þú vera að ein­blína um of hvernig kyn­líf „á“ að vera? Hvað myndi breyt­ast hjá þér ef þú hlust­aðir á hvað kyn­hvöt þín hefur raun­veru­lega að segja? Þetta eru pæl­ingar hjá Birnu, mál tengd kyn­líf­inu sem hafa gefið henni sjálfri góða reynslu í eigin kyn­lífi og sem kyn­fræð­ingur.

„Snerting er stór partur af Mindful Sexu­ality og hvernig við sköpum unaðs­fulla snert­ingu skiptir máli. Birna talar um tækni til að dýpka and­leg tengsl og snert­ingu. Hún ein­blínir á það hvernig maður nálg­ast lík­ama sinn og snertir hann. Þessar pæl­ingar eru oft­ast hugs­aðar sem sjálf­sagt mál þegar ég útskýri þær, en eru oft­ast stærsta breyt­ingin í kyn­lífi fólks. Næst þegar þú ferð t.d. í sturtu mæli ég með því að þú njótir hverrar ein­ustu snert­ingar, og ekki bara til þess að þrífa lík­amann. Tengsla­myndun við lík­amann og snert­ingu þarf ekki alltaf að vera kyn­lífstengd til þess að skapa unað og vellíðan. 

Á nám­skeið­inu Mindful Sexu­ality fá allir dag­bók með upp­lýs­ingum varð­andi þau verk­efni sem ég vil að þau vinni betur í. Í þess­ari bók eru allar æfing­arnar sem ég fer yfir í tím­anum, plús fleiri til þess að fara með heim og gera til­raunir með uppi í rúmi … skrif­legar æfingar, snert­ing, nudd, og já, – líka sjálfs­fró­unar-tips. Nám­skeiðin eru bæði fyrir ein­stak­linga og pör. Það er alltaf hægt að finna nýja nánd, hvort það sé með sjálfum sér eða öðrum.“

Frábærar viðtökur

„Nám­skeiðin hafa verið ótrú­lega vin­sæl. Við höfum fengið mjög góðar við­tökur og ég er ofboðs­lega ánægð og þakk­lát fyrir það. Fólk er aug­ljós­lega mistil­búið að mæta á svona kyn­lífs­nám­skeið og því miður eru ein­hverjir sem láta feimni og annað slíkt halda aftur af sér. Margir hafa jafn­vel sagt að þeir hafi næstum hætt við að mæta. En enn sem komið er, hefur eng­inn séð eftir því að hafa mætt. Það mik­il­væg­asta er að mæta með opinn hug og dæma ekki fyr­ir­fram. Við leggjum alltaf upp úr því að öllum líði vel og að fólk sé fyrst og fremst að skemmta sér. Fólk er greini­lega mjög for­vitið og hefur gaman af þessu. Það er ótrú­lega mis­jafnt hvað hver og einn tekur með sér heim eftir svona nám­skeið, en það hafa allir gaman af því að kíkja og læra eitt­hvað nýtt.“

Losti kyn­lífstækja­verslun og kyn­lífs­setur er í Borg­ar­túni 3. Nánari upp­lýs­ingar á losti.is og Instagram: losti.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ