Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sögukennari Fjölbrautar í Garðabæ sakar blaðamenn um glæp: „RÚV skipulagði byrlun og þjófnað“

Sögukennari Fjölbrautar í Garðabæ sakar blaðamenn um glæp: „RÚV skipulagði byrlun og þjófnað“

„RÚV skipu­lagði byrlun og þjófnað. Það eru alvar­legir glæpir. Yfir­stjórn RÚV reynir núna að hindra fram­gang rétt­vís­innar. Það er líka glæpur,“ skrifar Páll Vil­hjálms­son, sögu­kenn­ari við Fjöl­braut­ar­skól­ann í Garðabæ, um síma­mál Páls Stein­gríms­sonar, skip­stjóra og skæru­liða Samherja, sem skipu­lagði rógs­her­ferð á hendur til­teknum fjöl­miðla­mönnum ásamt félögum sínum í svo­nefndri Skæru­liða­deild. Pistill­inn, sem ber yfir skrift­ina RÚV birti ekki fréttir, en framdi glæp­inn, var birtur á vef Morg­un­blaðs­ins í dag.

Páll sögu­kenn­ari hefur ritað fjölda greina um málið þar sem hann hefur raka­laust haldið því fram að skip­stjór­anum hafi verið byrlað eitur og síma hans stolið. Hann hefur þó ekki áður gengið svo langt fyrr að saka starfs­fólk RÚV um að hafa byrlað nafna sínum eitur. Hann hefur aftur á móti haldið því ítrekað fram að eitrað hafi verið fyrir Páli af ein­hverjum nákomnum án þess að útskýra það nánar. Mannlíf bar það undir Pál skip­stjóra hver hefði byrlað honum og hvort það sner­ist um skiln­að­ar­mál en hann snéri út úr spurn­ing­unni og vildi ekki svara efn­is­lega.

Páll Stein­gríms­son, skip­stjóri og skæru­liði Samherja.

„Páli var byrlað eitur kvöldið 3. maí. Aðfara­nótt 4. maí var hann sendur með sjúkra­flugi frá Akureyri á gjör­gæslu í Reykja­vík. Yfir­stjórn RÚV vill fella niður lög­reglu­rann­sókn á glæpnum og beitir fyrir vagn sinn stjórn­mála­mönnum og fjöl­miðlum,“ skrifar Páll sögu­kenn­ari.

Páll vísar til þess aðStefán Eiríks­son útvarps­stjóri og Heiðar Örn Sig­ur­finns­son frétta­stjóri hafi sent frá sér yfir­lýs­ingu til stuðn­ings sínu fólki.

„Stefán útvarps­stjóri og Heiðar frétta­stjóri RÚV birta yfir­lýs­ingu í gær um mik­il­vægi þess að fjöl­miðlar fái óáreittir að birta fréttir. RÚV birti ekki fréttir úr stolnum einka­gögnum Páls skip­stjóra, það gerðu Kjarninn og Stundin. Verk­skipt­ingin gekk út á að grunur félli ekki á RÚV ef upp kæm­ist að gögnin væru illa fengin. Þetta var var­úð­ar­ráð­stöfun,“ skrifar Páll.

Kristinn Þor­steins­son, skóla­meist­ari FG, umber óhróður starfs­manns síns og kvittar þannig upp á sögu­skýr­ingar hans.

Kristinn Þor­steins­son, skóla­meist­ari Fjöl­braut­ar­skól­ans í Garðabæ, hefur sýnt sögu­kenn­ara sínum stuðn­ing. Páll fór mik­inn á sínum tíma og sagði að Helgi Seljan frétta­maður væri geð­veikur. For­eldrum nem­enda skól­ans og öðru starfs­fólki var ofboðið vegna for­dómanna en Kristinn stóð með und­ir­mann sínum. Óljóst er hvaða augum skóla­meist­ar­inn lítur þá yfir­lýs­ingu kenn­ar­ans að starfs­menn RÚV hafi skipu­lagt að eitra fyrir Páli Stein­gríms­syni.

Morg­un­blaðið hýsir skrif Páls Vil­hjálms­sonar og hefur gjarnan gert honum hátt undir höfði í skoð­ana­dálkum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ