Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ingunn og brottrekstur grunaðra: „Er sambærilegt að missa starf og að vera dæmdur í fangelsi?“

Ingunn og brottrekstur grunaðra: „Er sambærilegt að missa starf og að vera dæmdur í fangelsi?“

„Þá sit ég uppi með mann­eskju í fyr­ir­tæk­inu mínu sem hefur að lík­indum sýnt af sér gríð­ar­legan karakter- eða að minnsta kosti dóm­greind­ar­brest. Er það ekki sama dóm­greindin og við­kom­andi notar við aðra ákvörð­un­ar­töku, meðal ann­ars innan fyr­ir­tæk­is­ins míns? Vil ég treysta á þesa dóm­greind? Er þetta líka mann­eskja sem ég treysti fyrir því að byggja upp heil­brigða menn­ingu innan fyr­ir­tæk­is­ins?“ Þetta skrifar lög­fræð­ing­ur­inn Ingunn Agnes Kro í grein sem birt­ist í Lög­manna­blað­inu á föstu­dag­inn.

Hún veltir fyrir sér nokkrum spurn­ingum. Á að byggja ákvarð­anir sem teknar eru innan fyr­ir­tækja á sömu hags­munum og í refsi­málum fyrir dóm­stólum? Er sam­bæri­legt að missa starf og að vera dæmdur í fang­elsi?

Ingunn kom fram í fjöl­miðlum og ræddi þessi mál í kjöl­far þess að ásak­anir á hendur fimm hátt­settum mönnum í íslensku þjóð­fé­lagi komust í hámæli í byrjun jan­úar. Þrír þeirra sátu í stjórnum stórra fyr­ir­tækja en viku frá í kjöl­far þess að ásak­an­irnar, sem Vítalía Lazareva bar á þá, voru umfjöll­un­ar­efni fjöl­miðla.

Í ljós kom að stjórn Ísey útflutn­ings, sem Ari Edwald var fram­kvæmda­stjóri hjá, var með­vituð um ásak­an­irnar áður en þær voru til umfjöll­unar hjá fjöl­miðlum en tekin hafði verið ákvörðun um það í stjórn­inni að ekk­ert yrði aðhafst nema meira kæmi fram um málið.

Ingunn skoðar við­brögð vinnu­veit­enda við ásak­anir sem kunna að vera bornar á hendur stjórn­endum þeirra. Hún situr sjálf í fjölda stjórna fyr­ir­tækja, þar á meðal í stjórnum Sjóvár, HS Orku og Iceland Seafood.

Þolendur segi satt í yfir 90 prósent tilvika

Hún segir að innan lög­fræð­innar sjálfrar sé jafn­strangri sönn­un­ar­byrði ekki beitt ann­ars staðar og gert er í refsi­málum. Stjórn­endur fyr­ir­tækja taki ákvarð­anir um ráðn­ingar og upp­sagnir út frá alls kyns ástæðum.

„Af hverju eiga þeir í erf­ið­ustu mál­unum, þar sem áhrifin á fyr­ir­tækið eru hvað mest, að vísa frá sér ábyrgð­inni og láta annað kerfi, dóms­kerfið, um ákvarð­ana­tök­una? Er það ekki hlut­verk stjórn­enda að taka erf­iðar ákvarð­anir? Er brott­rekstur úr starfi ekki við­skipta­leg ákvörðun?“

Hún skrifar að sér líði ekki illa með þessa nálgun vegna þess að rann­sóknir sýni að rangar sak­ar­giftir séu ein­ungis í 2-10 pró­sent til­vika: Þolendur segi satt í 90-98 pró­sentum til­vika.

„Er ég þá orðin hluti af „dóm­stól göt­unnar“? Kannski. Ég er hins vegar að gera það sem mér er ætlað; að gæta hags­muna fyr­ir­tæk­is­ins með ákvörðun sem er byggð á mjög sterkum líkum.“

Ingunn veltir því upp í grein­inni hvort það sé fyr­ir­tækjum til góðs að halda inni fólki sem hafi verið sakað um brot gegn annarri mann­eskju. Hún bendir á að aðeins um 10 pró­sent brota­þola kæri mál sín til lög­reglu og ekki ákært nema í minni­hluta þeirra mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ