Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hildur Björnsdóttir: „Maður er nefnilega svo óskaplega heppinn að fá að vera lifandi“

Hildur Björnsdóttir: „Maður er nefnilega svo óskaplega heppinn að fá að vera lifandi“
Hildur Björns­dóttir

„Sem odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins sæk­ist ég eftir því að verða borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Ég elska borg­ina okkar og brenn fyrir því að gera hana betri fyrir okkur öll. Það vantar aukna vænt­um­þykju fyrir fólk­inu og fram­tak­inu sem býr í Reykja­vík. Borginni ber fyrst og fremst að auð­velda íbú­unum dag­legt líf, veita öfl­uga grunn­þjón­ustu og tryggja sterka inn­viði. Lausn leik­skóla­vand­ans, hús­næð­is­vand­ans og sam­göngu­vand­ans eru mér líka ofar­lega í huga og eru raunar sér­leg for­gangs­mál okkar sjálf­stæð­is­manna.“

Hildur Björns­dóttir hefur verið borg­ar­full­trúi síð­ast­liðin fjögur ár. „Í störfum mínum hef ég lagt ríka áherslu á öfl­uga leik­skóla­þjón­ustu, fjöl­breyttar greiðar sam­göngur, auk­inn stuðn­ing við sjálf­stætt starf­andi skóla og fjöl­skyldu­vænni borg. Heil­brigður fjár­hagur og lægri álögur eru mér líka alltaf hug­leiknar. Mér finnst ekki síst mik­il­vægt að Reykja­vík fái að þró­ast sem græn fram­fara­borg í lif­andi sam­keppni við erlendar borgir um fólk og atgervi. Það á að vera eft­ir­sókn­ar­vert að búa í Reykja­vík fyrir fólk á öllum ævi­skeiðum.“

Neikvæða og ómál­efna­lega umræðan þykir mér svo sér­kenni­leg­ust.

Hildur er spurð hvernig þessi heimur stjórn­mál­anna sé. Hvað gefur hann henni og hvað tekur hann frá henni? Hvað er erf­ið­ast við þetta starf?

„Þetta er auð­vitað svo­lítið sér­kenni­legur heimur. Margt í umhverf­inu þykir mér gam­al­dags. Langir fundir fram á nætur og langar umræður sem gjarnan skila engum ávinn­ingi. Neikvæða og ómál­efna­lega umræðan þykir mér svo sér­kenni­leg­ust. En ég er almennt meira gefin fyrir allt það jákvæða sem fylgir starf­inu. Allt frá­bæra fólkið sem maður kynn­ist, hlut­irnir sem maður lærir og tæki­færin sem maður fær til að hafa jákvæð áhrif á sam­fé­lagið.“

Baráttukona

Hildur er lög­fræð­ingur og segir að ástæðan fyrir því að hún fór svo út í stjórn­mál teng­ist því að hún hafi alltaf verið ákveðin í því að vilja vinna fyrir fólk. „Af þeirri ástæðu fór ég í lög­fræð­ina þar sem almennt gefst tæki­færi til að aðstoða fólk við úrlausn flók­inna mála. Stjórn­málin köll­uðu þó alltaf á mig, ekki síst borg­ar­málin, enda veita þau ein­stakt tæki­færi til að vinna fyrir fólk. Borg­ar­málin snúa að nær­þjón­ust­unni við borg­ar­ana og fjöl­breyttum leiðum til að ein­falda dag­legt líf.“

Hildur var for­maður Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands þegar hún var í lög­fræði­nám­inu þannig að þetta teng­ist ekki bara því að aðstoða fólk við úrlausn flók­inna mála. „Ég er voða­leg bar­áttu­kona í mér. Hef alltaf verið fljót að reka augun í það sem betur mætti fara og finn knýj­andi þörf til að laga það hvort heldur sem er á heim­ili, vinnu­stað eða í sam­fé­lag­inu. Ætli það sé ekki ein ástæða þess að ég elska stjórn­málin. Þau eru hið full­komna tæki­færi til að hafa jákvæð áhrif á sam­fé­lagið og leita lausna við þeim vanda­málum sem blasa við.“

Á end­anum lærir maður jafn­vel að hafa húmor fyrir umræð­unni.

Stjórn­mála­menn þurfa að hafa sterkan skráp svo sem þegar kemur að gagn­rýn­is­röddum. Tekur Hildur gagn­rýni nærri sér? „Maður er ótrú­lega fljótur að byggja upp þykkan skráp gagn­vart gagn­rýni og umtali. Á end­anum lærir maður jafn­vel að hafa húmor fyrir umræð­unni, enda svo ótal­margt sagt sem er í hróp­andi ósam­ræmi við veru­leik­ann. Ég er hins vegar alltaf mjög opin fyrir mál­efna­legri gagn­rýni og hef tamið mér að vera umkringd fólki sem er reiðu­búið að veita upp­byggi­lega ráð­gjöf. En starf­inu fylgja líka svo mörg fal­leg og hvetj­andi orð sem er mik­il­vægt að taka með sér.“

Krabbameinið

Gagn­rýnin kallar á þykkan skráp en hún er kannski næstum því hjóm eitt miðað við áfallið sem Hildur gekk í gegnum á sínum tíma og breytti öllu.

Ætli ég hafi ekki orðið sjálfsör­ugg­ari og hug­rakk­ari.

„Ég greind­ist með eitlakrabba­mein sum­arið 2016, aðeins sjö dögum eftir að dóttir mín fædd­ist. Við tók sex mán­aða ströng lyfja­með­ferð sem bless­un­ar­lega leiddi til þess að ég náði fullum bata. Það hjálp­aði mér mikið á þessu tíma­bili að halda í jákvætt hug­ar­far og umkringja mig öllu því stór­kost­lega fólki sem stóð mér nærri. Ég hef lært af þess­ari reynslu hve lífið er stutt og reyni því að lifa því til fulls. Fresta því ekki að láta drauma mína ræt­ast og stökkva út í allar þær djúpu laugar sem freista og heilla. Ætli ég hafi ekki orðið sjálfsör­ugg­ari og hug­rakk­ari af þess­ari reynslu, sit betur í sjálfri mér og veit betur hvað ég vil. Það hefur áhrif á mig sem mann­eskju, hvort heldur sem er í stjórn­málum eða á öðrum vett­vangi.

Ég vel hins vegar ekki að dvelja í sjálfs­vor­kunn.

Erf­ið­leikar og áföll móta mann sann­ar­lega og ég hef fengið minn skerf af slíku. Ég vel hins vegar ekki að dvelja í sjálfs­vor­kunn en reyni mun fremur að draga lær­dóm af aðstæðum og halda svo áfram með lífið. Maður er nefni­lega svo óskap­lega hepp­inn að fá að vera lif­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ