Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leifur Garðars ráðinn sem deildarstjóri unglingadeildar Stapaskóla: „Fólk var varla að trúa þessu“

Leifur Garðars ráðinn sem deildarstjóri unglingadeildar Stapaskóla: „Fólk var varla að trúa þessu“
Mynd / Skjáskot RÚV.

Leifur Garð­ars­son, sem rek­inn var sem körfuknatt­leiks­dóm­ari fyrir að senda óvið­eig­andi skila­boð til ungs kven­kyns körfuknatt­leik­mann hefur nú verið ráð­inn sem deild­ar­stjóri ung­linga­deildar Stapa­skóla í Reykja­nesbæ.

Sjá einnig: Leifur Garð­ars­son hættir sem skóla­stjóri eftir óvið­eig­andi sam­skipti við konu

Samkvæmt áreið­an­legum heim­ildum Mannlífs hefur Gróa Axels­dóttir ráðið Leif sem deild­ar­stjóra ung­linga­deildar Stapa­skóla. Á hann að hefja störf 1. ágúst næst­kom­andi. Leifur starf­aði áður sem knatt­spyrnu­þjálf­ari, körfuknatt­leiks­dóm­ari og skóla­stjóri Áslands­skóla.

Á bingókvöldi körfuknatt­leiksliðar Njarð­víkur í gær­kvöldi kvis­að­ist út sá orðrómur að Leifur hefði verið ráð­inn og sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs var fólk í ákveðnu sjokki enda Leifur afar umdeildur. „Það varð eig­in­lega allt brjálað, þetta gekk mann af manni þarna í bingóinu og fólk var varla að trúa þessu,“ sagði heim­ild­ar­maður Mannlífs. Segir hann enn­fremur að for­eldrar við skól­ann trúi honum ekki fyrr en hann sýni þeim skjá­skot af sam­skiptum við aðila sem kemur að mál­inu, sem stað­festir ráðn­ing­una. Þá hefur Mannlíf eftir áreið­an­legum heim­ildum að for­eldrar barna í skól­anum séu búnir að vera ræða saman og muni ákveða það á fundi á mánu­dag­inn, hvort þau muni til­kynni skóla­stjórn­endum skól­ans það að ef að Leifur Garð­ars­son verði ráð­inn til starfa við skól­ann, taki þau börn sín úr skól­anum.

Árið 2011 var Leifur rek­inn sem þjálf­ari knatt­spyrnu­liðs Víkings eftir að hann sendi fyrir slysni leik­mönnum liðs­ins Excel skjal þar sem hann útli­staði álit sitt á hverjum og einum leik­manni. Þá sak­aði Fotbolti.net hann um að villa á sér heim­ildir á Facebook undir nafn­inu Albert Örn Jónsson, en sá karakter varði Leif í hví­vetna á sam­fé­lags­miðlum. Albert er ekki að finna í þjóð­skrá.

Sjá einnig: Leifur áður verið rek­inn – Sagður hafa varið sjálfan sig með fölsuðum aðgangi á Facebook

Heim­ildir Mannlífs herma að gengið hefði verið frá ráðn­ing­unni og að bæj­ar­stjóra Reykja­nes­bæjar sé kunn­ugt um það en sé ósáttur og muni funda um málið um helg­ina.

Gróa Axels­dóttir, skóla­stjóri Stapa­skóla vildi lítið tjá sig um málið þegar Mannlíf hringdi í hana við vinnslu frétt­ar­innar. „Ég hef í raun ekk­ert um þetta að segja. Ég er ennþá að ganga frá ráðn­ingum þannig að það er allt saman í ferli hjá okkur.“

Hér er skjá­skot frá innri vef Stapa­skóla þar sem Gróa til­kynnir starfs­mönnum skól­ans um ráðn­ing­una:


Þegar blaða­maður Mannlífs hringdi í aðstoð­ar­skóla­stjóra skól­ans, Jón Hauk Haf­steins­son, vildi hann ekki tjá sig um málið. „Ég get engu svarað. Ég ætla ekki að tjá mig við fjöl­miðla, þú verður að heyra í fræðslu­stjór­anum eða skóla­stjóra.“

Hvorki náð­ist í for­stöðu­mann fræðslu­sviðs Reykja­nes­bæjar, Helga Arnarson né Kjartan Má Kjart­ans­son við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi