Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Refsiþyngingu beitt í sérlega grófu nauðgunarmáli – Sakborningur þarf þó aldrei að sitja í fangelsi

Í nýjasta tíma­riti Mannlífs er fjallað um skil­orðs­bind­ingu nauðg­un­ar­dóma og þá stað­reynd að sak­born­ingar í grófum kyn­ferð­is­brotum þurfa í mörgun til­fellum ekki að sitja af sér dóma sína hér á landi. Farið er yfir nýlegt mál þar sem brotið þótti svo gróft að refsi­þyng­ing­ar­á­kvæði var beitt, en dóm­ur­inn var þrátt fyrir það skil­orðs­bund­inn að fullu.

Í grein­inni er málið reifað og íslenska dóms­kerfið borið saman við það sænska, hvað varðar kyn­ferð­is­brota­mál og refs­ingar. Einnig er rætt við nokkra álits­gjafa.

Löng málsmeðferð

Í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik var nýverið fjallað um brotala­mir á máls­með­ferð kyn­ferð­is­brota í rétt­ar­kerf­inu. Einn brota­þol­inn sem steig fram með sögu sína í þætt­inum lýsti því hvernig með­ferð á nauðg­un­ar­máli hennar hefði tekið sex ár í heild­ina, á tveimur dóm­stigum. Málið end­aði með sak­fell­ingu – en dóm­ur­inn var skil­orðs­bund­inn að fullu. Ástæða þess var sögð löng máls­með­ferð og að ekki væri hægt að kenna sak­born­ingi um það. Sama skýr­ing var gefin á skil­orðs­bind­ingu dóms­ins yfir Jóni Páli Eyj­ólfs­syni.

Það brot átti sér stað á hót­el­her­bergi erlendis árið 2008. Árið 2018 hóf lög­regla frum­kvæð­is­rann­sókn á mál­inu, sem end­aði með ákæru. Dómur Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, sem féll þann 30. nóv­em­ber árið 2020, lýsir grófu ofbeldi Jóns Páls á hendur brota­þola. Þar segir meðal ann­ars að hann hafi kastað sér á kon­una þar sem hún lá í rúmi á hót­el­her­berg­inu og haldið henni fastri. Hún hafi barist um og átökin endað með því að konan féll í gólfið. Þar hafi Jón Páll komið í veg fyrir að hún gæti staðið á fætur með því að grípa í fót­legg hennar, svo hún skall harka­lega með hnéð í gólfið og datt á bakið. Þá hafi hann sett hné sitt í bringu hennar með þeim afleið­ingum að hún hlaut stóran mar­blett af.

Þar segir meðal ann­ars að hann hafi kastað sér á kon­una þar sem hún lá í rúmi á hót­el­her­berg­inu og haldið henni fastri.

Eftir þetta hafi kon­unni tek­ist að skríða aftur upp í rúm sitt en þangað hafi Jón Páll elt hana, lagst ofan á hana og haft við hana sam­ræði án sam­þykkis hennar. Skýrslur frá neyð­ar­mót­töku, sem konan leit­aði til dag­inn eftir, við kom­una til Íslands, sýna að hún hefði meðal ann­ars hlotið marga mar­bletti og sár á ýmsum stöðum, rispur og nún­ings­sár auk sprungu í slím­húð við leg­gangaop. Allt var þetta talið sam­ræm­ast sögu hennar. Myndir voru teknar af áverk­unum á neyð­ar­mót­töku.

Í nið­ur­stöðukafla skýrslu læknis segir að brota­þoli hafi gefið grein­ar­góða sögu þegar hún leit­aði á neyð­ar­mót­töku og gekkst undir skoðun. Hún hafi verið dofin, tætt og aum um allan lík­ama og í kyn­færum.

Meðal gagna í mál­inu voru skrif­leg sam­skipti Jóns Páls og brota­þola þar sem Jón Páll gekkst afdrátt­ar­laust við brot­inu. Fram­burðir vitna fyrir dómi voru taldir auka trú­verð­ug­leika fram­burðar brota­þola en draga úr trú­verð­ug­leika fram­burðar Jóns Páls. Brota­þoli var sagður hafa verið sam­kvæmur sjálfum sér um meg­in­at­riði máls­ins frá upp­hafi og fram­burður því tal­inn trú­verð­ugur.

Hún hafi verið dofin, tætt og aum um allan lík­ama og í kyn­færum.
Jón Páll Eyj­ólfs­son.

Skilorðsbinding jafnar refsiþyngingarákvæði við jörðu

Jón Páll var sak­felldur fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. almennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/1940 með því að hafa án sam­þykkis haft sam­ræði við brota­þola, með því að beita hana nánar til­greindu ofbeldi og ólög­mætri nauð­ung svo að hún hlaut áverka af.

Í hér­aðs­dómi beitti hér­aðs­dóm­ar­inn Barbara Björns­dóttir refsi­þyng­ing­ar­á­kvæð­inu (195. gr. almennra hegn­ing­ar­laga), sem er ein­ungis beitt þegar ofbeldið er „stór­fellt og sér­lega sárs­auka­fullt og meið­andi“. Þannig er ákvæðið almennt ein­ungis notað í til­felli nauð­gana sem taldar eru sér­lega ofbeld­is­fullar og alvar­legar. Þrátt fyrir þetta var sú ákvörðun tekin að skil­orðs­binda refs­ing­una, sem svo var stað­fest af Lands­rétti. Með öðrum orðum; Jón Páll Eyj­ólfs­son þarf aldrei að sitja í fang­elsi fyrir brot sitt.

Í augum hins almenna leik­manns getur það ekki annað en vakið undrun að refsi­þyng­ing­ar­á­kvæði sé beitt í máli sem þessu, en dóm­ur­inn svo skil­orðs­bund­inn að fullu. Þarna má segja að skil­orðs­bind­ingin, refsi­leysið, jafni refsi­þyng­ing­ar­á­kvæðið við jörðu.

Með öðrum orðum; Jón Páll Eyj­ólfs­son þarf aldrei að sitja í fang­elsi fyrir brot sitt.

Hér­aðs­dóm­ari lagði til grund­vallar skil­orðs­bind­ingu dóms­ins að langt væri liðið frá því brotið var framið og að rann­sókn hefði dreg­ist á lang­inn.

Þegar málið er skoðað í sam­hengi við þá skýr­ingu kemur ýmis­legt í ljós sem dregur úr rétt­mæti hennar.

Þegar málið var kært var um ára­tugur lið­inn frá brot­inu. Kyn­ferð­is­brot þar sem þyngsta refs­ing varðar meira en tíu ára fang­elsi fyrn­ast á fimmtán árum. Rannsókn máls­ins tók um 14 mán­uði, sem er ekki lengra en gengur og ger­ist í þessum mála­flokki. Auk þess var það ekki ákvörðun brota­þola að kæra málið, heldur hóf lög­regla frum­kvæð­is­rann­sókn á mál­inu, eins og fram kemur í dómnum og rétt­ar­gæslu­maður brota­þola hefur bent á. Aug­ljós­lega þótti lög­reglu því full ástæða til að rann­saka brotið og færa það svo inn á borð ákæru­valds­ins, enda er um að ræða sér­lega ofbeld­is­fulla árás.

Greinina má í heild sinni lesa í vef­út­gáfu blaðs­ins. Einnig má nálg­ast ókeypis ein­tak af tíma­rit­inu í Hagkaup, Bónus og á N1.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ