Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hjartamagnýl dregur úr dauðsföllum af völdum alvarlegrar lungnabólgu

Hjartamagnýl dregur úr dauðsföllum af völdum alvarlegrar lungnabólgu
Greinin í Journal of Internal Medicine bygg­ist á rann­sókn Krist­jáns Godsk Rögn­valds­sonar sem er dokt­or­snemi við Lækna­deild HÍ og læknir á Land­spít­ala. Magnús Gott­freðs­son er leið­bein­andi hans í verk­efn­inu.

„Gamla lyfið, acetýlsalicýlsýra, sem er betur þekkt sem aspirín, magnýl, eða hjarta­magnýl, virð­ist hafa sterk og töl­fræði­lega mark­tæk vernd­andi áhrif gegn dauðs­föllum meðal þeirra sem grein­ast með alvar­lega lungna­bólgu af völdum algeng­ustu lungna­bólgu­bakt­er­í­unnnar, sem kölluð er Streptococcus pneumon­iae á fag­máli.“

Þetta segir Magnús Gott­freðs­son, pró­fessor í smit­sjúk­dómum við Háskóla Íslands og yfir­læknir á Land­spít­ala, um nið­ur­stöður í nýrri rann­sókn sem unnin er af vís­inda­fólki Háskóla Íslands og Land­spít­ala. Í vik­unni birt­ist grein í hinu virta tíma­riti Journal of Internal Medicine þar sem þessar nið­ur­stöður eru dregnar fram en greinin bygg­ist á rann­sókn Krist­jáns Godsk Rögn­valds­sonar sem dokt­or­snemi við Lækna­deild HÍ og læknir á Land­spít­ala. Magnús Gott­freðs­son er leið­bein­andi hans í verk­efn­inu.

„Þessi vernd­andi áhrif komu strax fram og voru raunar sterk­ust í bráða­fasa sýk­ing­ar­innar, en þá er einmitt veru­lega aukin hætta á ýmiss konar fylgi­kvillum eins og hjarta­bilun og kransæða­stíflu og dán­ar­tíðnin er há. En áhrifin ent­ust í eitt ár og lík­lega lengur sem er afar merki­legt. Þetta á við um þá sem eru að taka lyfið þegar þeir veikj­ast eftir að leið­rétt hefur verið fyrir hugs­an­legum bjögum,“ segir Magnús.

Marktækt betri lifun

„Lifun þeirra sjúk­linga sem voru á hjarta­magnýli við komu var borin saman við lifun þeirra sem voru ekki á lyf­inu við inn­lögn. Leiðrétt var fyrir mun milli hópanna með lík­inda­skori og lifun hópanna borin saman með töl­fræði­legri aðferð sem kölluð er cox-aðhvarfs­grein­ing. Þeir sjúk­lingar sem voru á hjarta­magnýli reynd­ust hafa mark­tækt betri lifun 90 dögum og einu ári eftir sýk­ing­una miðað við ef þeir hefðu ekki verið á lyf­inu. Athygli vekur að mesti mun­ur­inn kom fram á allra fyrstu dög­unum eftir sýk­ing­una,“ segir Kristján.

Hann segir jafn­framt að þessi rann­sókn gefi vís­bend­ingar um vernd­andi áhrif hjarta­magnýls meðal þeirra sem stríða við alvar­lega lungna­sýk­ingu af völdum lungna­bólgu­bakt­ería.

„Mik­il­vægt er þó að slá þann varnagla að hér var ekki um slemb­aða með­ferð­ar­til­raun að ræða og hugs­an­lega er til staðar ein­hver und­ir­liggj­andi þáttur sem skýrir þessi áhrif sem var ekki leið­rétt fyrir. Frekari rann­sóknir þarf því til að stað­festa eða hrekja nið­ur­stöð­urnar.“

Rannsóknarúrtakið náði til heillar þjóðar

Þeir Magnús og Kristján segja það sér­stakt við rann­sókn­ina að hér­lendis hafi verið hægt skoða mjög stóran hóp með alvar­lega sýk­ingu af völdum einnar og sömu bakt­er­í­unnar og fylgja hópnum eftir í langan tíma. Þeir segja að rann­sóknar­úr­takið hafi náð til heillar þjóðar yfir 45 ára tíma­bil og lifun hafi verið könnuð allt að einu ári eftir lungna­bólg­una. Í heild­ina voru í rann­sókn­inni 815 til­vik sýk­ing­ar­innar.

„Með því að fara yfir allar sjúkra­skrár sem til­tækar voru á land­inu var því komið í veg fyrir að sér­stakir und­ir­hópar sjúk­linga væru skoð­aðir en aðrir skildir eftir, sem er algengt í erlendum rann­sóknum, og þá er erf­ið­ara að yfir­færa nið­ur­stöð­urnar á stærri hópa,“ segir Magnús og bætir því við að einnig telj­ist merki­legt að aspirín sé selt án lyf­seð­ils og margir taki það án sam­ráðs við lækni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ