Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Skátahöfðinginn Harpa Ósk Valgeirsdóttir: „Er alltaf með fæðingatöskuna í skottinu“

Skátahöfðinginn Harpa Ósk Valgeirsdóttir: „Er alltaf með fæðingatöskuna í skottinu“
Harpa Ósk Val­geirs­dóttir

„Það eru mörg verk­efni sem mig langar til að koma til leiðar og sem skáta­höfð­ingi er ég for­maður stjórnar Banda­lags íslenskra skáta og hef þá betra tæki­færi til þess að ýta á eftir þessum verk­efnum,“ segir Harpa Ósk Val­geirs­dóttir sem var kjörin nýr skáta­höfð­ingi Íslands fyrr í þessum mán­uði. „Ég tel mig líka hafa yfir­grips­mikla þekk­ingu á starfi okkar og hvar megi bæta stöð­una og er til­búin að leggja mig fram til að gera skáta­starfið að kröft­ugu æsku­lýðs­starfi sem sé í boði fyrir alla krakka sem hafa áhuga.“

Skáta­æv­in­týrið er með því skemmti­legra sem hægt er að taka þátt í.

Hverju vill hún koma til leiðar varð­andi skát­ana?

„Skáta­hreyf­ingin veitir börnum og ungu fólki ein­stakt tæki­færi til að efla sig á sviði leið­toga­þjálf­unar, verk­efna­stjórn­unar, lýð­ræðis­vit­undar og í nyt­sam­legri færni á ýmsum sviðum. Þessi þjálfun fer fram í gegnum athafna­nám úti í nátt­úr­unni í góðra vina hópi með stuðn­ingi full­orð­inna eftir því sem við á. Allir eru vel­komnir til starfa sama hvaða aldur, kyn, kyn­þáttur eða upp­runi. Það er eng­inn vara­manna­bekkur, allir geta fundið verk­efni við hæfi og skáta­æv­in­týrið er með því skemmti­legra sem hægt er að taka þátt í; þetta er áhuga­mál sem end­ist út ævina. Skáta­hreyf­ingin er alþjóð­leg hreyf­ing og það eru miklir mögu­leikar í boði fyrir ungt fólk á alþjóða­vett­vangi skáta eins og þátt­taka á alheims­mótum, í alþjóð­legum skáta­mið­stöðvum og í ýmiss konar hjálp­ar­starfi.“

Nýr skáta­höfð­ingi Íslands er spurður út í áherslur hans.

„Í stuttu máli vil ég skerpa sér­stöðu skáta­hreyf­ing­ar­innar, efla ungt fólk til ábyrgðar, fram­kvæmda og lýð­ræð­is­legrar hugs­unar og vera til staðar fyrir þá skáta og for­ingja sem þurfa stuðn­ing eða hvatn­ingu í sínu starfi. Ég vil að skáta­hreyf­ingin sé aðgengi­leg börnum og ung­mennum um allt land óháð búsetu, getu eða upp­runa.“

Harpa Ósk segir að skáta­starfið gefi henni mjög mikið. „Ég nýt þess að starfa í hópi með ungu fólki og læri stöðugt af því. Skáta­starfið gefur mér líka tæki­færi til að eiga sam­eig­in­legt áhuga­mál með allri fjöl­skyld­unni; mömmu, systrum mínum, mann­inum mínum og krökk­unum mínum.“

Hvað eru skát­arnir í huga nýs skáta­höfð­ingja?

„Mín önnur fjöl­skylda og lífs­stíll­inn minn.“

Ólík færni

Harpa Ósk segir að móðir sín hafi upp­haf­lega kynnt sig fyrir skát­unum þar sem hún var starf­andi sveit­ar­for­ingi á Akranesi þegar Harpa Ósk var lítil. „Ég byrj­aði á því að fara fjögur sumur í röð í sum­ar­búðir skáta á Úlf­ljóts­vatni og fékk þar góða kynn­ingu á skáta­starf­inu og öllum ævin­týra­heim­inum í kringum skát­ana. Ég byrj­aði svo sjálf að taka þátt í viku­legu starfi í Ægisbúum, í Vesturbæ Reykja­víkur, þegar ég var 12 ára árið 1993.“

Það er reynsla og kunn­átta sem fylgir manni alla ævi.

Hvað er eft­ir­minni­leg­ast frá fyrstu árunum? Hvað lærði Harpa Ósk og hvernig breytti skáta­starfið henni?

„Fyrstu árin fannst mér spenn­andi að kynn­ast allri þess­ari ólíku færni sem var verið að kenna, stjörnu­merkin, skyndi­hjálp, að læra að útbúa sig fyrir úti­legur og þekkja veðrið og læra að gera hnúta til að búa til stórar bygg­ingar án ham­ars og nagla. Svo held ég að það hafi verið sjálf­stæðið sem kom með allri þess­ari þekk­ingu sem fékk mig til að halda áfram. Ég varð for­ingi 13 ára eins og flestir gerðu á þeim tíma og þá fékk maður ákveðna ábyrgð í hendur og lærði verk­efna­stjórn og að hafa yfir­sýn yfir verk­efnin. Það er reynsla og kunn­átta sem fylgir manni alla ævi.“

Verk­efnin hafa verið mörg.

„Ég hef verið bæði í æsku­lýðs­starf­inu sem sveit­ar­for­ingi og var svo félags­for­ingi Ægisbúa; að vinna með krökkum og fara í úti­legur. Svo fór ég að kenna á leið­toga­nám­skeiðum og stjórn­aði vin­sælum ung­linga- og ung­menna­nám­skeiðum um ára­bil. Síðustu ár hef ég verið að horfa á umgjörð skáta­starfs­ins og fara á dýpt­ina í inni­haldið í starf­inu okkar. Ég kláraði nýlega með góðum hópi að vinna starfs­grunn­inn okkar í aðgengi­legt form og það stuðn­ings­efni fá félögin svo fyrir haustið. Ég býst við að það muni auka kraft­inn í skáta­starf­inu til muna.“

Harpa Ósk er gift Óskari Þóri Þrá­ins­syni og eiga þau þrjú börn. Svo á fjöl­skyldan hund­inn Pílu sem er af teg­und­inni Smooth Collie.

„Skáta­starfið og úti­vist er fjöl­skyldu­á­huga­málið okkar en sjálf sit ég og smíða víra­virki þegar ég þarf að taka mér pásu frá ysi og þys hvers­dags­ins.“

Rúmlega 300 börn

Skáta­höfð­ingi Íslands starfar sem ljós­móðir.

„Ég lærði í gegnum skáta­starfið að vera ávallt við­búin að hjálpa öðrum. Þegar ég fór að velta fyrir mér háskóla­námi komst ég að þeirri nið­ur­stöðu að mig lang­aði að vera til staðar fyrir fólk þegar það þyrfti helst á stuðn­ingi að halda og akkúrat þar starfa ljós­mæður; í hjarta mik­il­væg­ustu reynslu fólks á ævinni. Mér finnst eft­ir­minni­leg­ast í hjúkr­un­ar­nám­inu hvað það nám er yfir­grips­mikið og fjöl­breytt og sem ljós­mæðra­nemi lærði ég hvað sam­skipti skipta miklu máli, hvert orð og snert­ing hefur áhrif og það er svo mik­il­vægt að vanda sig þar.“

Harpa Ósk vinnur hjá Björk­inni sem veitir sam­fellda ljós­mæðra­þjón­ustu á Fæð­ing­ar­stof­unni Síðumúla og í heima­fæð­ingum auk þess að veita heima­þjón­ustu í sæng­ur­legu og bjóða upp á nám­skeið og ráð­gjöf fyrir verð­andi for­eldra.

Það mynd­ast miklu dýpri tengsl.

„Ljós­mæðra­bekk­ur­inn minn útskrif­að­ist rétt eftir banka­hrunið og það var ráðn­ing­ar­bann á Land­spít­al­anum. Við stofn­uðum þá Björkina sem okkar starfs­vett­vang. Ég fór svo að vinna úti á landi, svo á vöku­deild­inni og í Hreiðr­inu og kom aftur í Björkina þegar við hófum und­ir­bún­ing­inn við að opna fæð­ing­ar­heim­ilið okkar í Síðumúla. Það er nú búið að vera starf­andi í fimm ár og þar hafa nú fæðst yfir 300 börn og sumar fjöl­skyldur eru að koma til okkar í annað og þriðja sinn. Við erum einnig að sinna fjöl­skyldum í heima­fæð­ingum og sam­tals eru þetta yfir 1.000 fjöl­skyldur sem hafa verið hjá okkur í þjón­ustu á með­göngu, í fæð­ingu og í heima­þjón­ustu eftir fæð­ingu síðan við opn­uðum fæð­ing­ar­heim­ilið 2017. Það er ein­stakt tæki­færi að fá að vinna í þess­ari sam­felldu þjón­ustu, að fá að kynn­ast fólki á með­göng­unni og kynn­ast bara nokkuð vel, vera svo til staðar fyrir þau í fæð­ing­unni og fylgja þeim fyrsta spöl­inn með litla barnið. Það mynd­ast miklu dýpri tengsl og mér finnst ég geta gefið meira af mér í þess konar þjón­ustu­formi.“

Hverjir eru helstu kostir og svo ókostir heima­fæð­inga?

„Helstu kost­irnir eru að fjöl­skyldan er á heima­velli, konan sem er að fæða er umkringd sínu eigin dóti með fólki sem hún þekkir og treystir og þannig virka fæð­ing­ar­horm­ónin svo vel.  Helstu ókost­irnir eru að þetta hentar ekki öllum, við mælum með að konur séu hraustar í grunn­inn, í eðli­legri með­göngu og engir áhættu­þættir til staðar.“

Ljós­móð­ur­starfið gefur skáta­höfð­ingj­anum mikið.

„Það eru auð­vitað bara mikil for­rétt­indi að fá að upp­lifa fæð­ingu barns og að sjá for­eldra verða til þegar þau taka á móti barn­inu sínu. Þetta er ein­stök stund og alltaf svo sér­stök upp­lifun þó maður sé að fara í aðra eða þriðju fæð­ing­una þann dag­inn  Þetta hefur líka svo mik­inn sam­hljóm með skáta­starf­inu; að vera ávallt við­búin því ég er alltaf með fæð­inga­tösk­una í skott­inu, til­búin í næsta útkall.“

Þá sé mik­il­vægt að halda ró og ganga örugg­lega til verks.

Stundum koma upp krefj­andi aðstæður og segir Harpa Ósk að þá sé mik­il­vægt að halda ró og ganga örugg­lega til verks. „Með góðri þjálfun, þekk­ingu og góðum sam­starfs­að­ilum er alltaf hægt að ljúka þeim verk­efnum.“

Umræðan um mis­tök við fæð­ingar hefur verið áber­andi að und­an­förnu og segir Harpa Ósk að það sé auð­vitað erfitt þegar slíkar umræður fara af stað. „Á sama tíma er mik­il­vægt að allir fái rými til að tjá sig um erf­iða upp­lifun og stuðn­ing til að vinna úr því. Og ég held að allar ljós­mæður sem ég þekki séu til­búnar til að hlusta.“

Hvaða lífs­reynsla hefur mótað skáta­höfð­ingj­ann og ljós­móð­ur­ina mest?

„Að vera ljós­móðir sem starfar utan hátækni hef ég lært mjög mikið af bæði sam­starfs­konum mínum og fjöl­skyld­unum sem ég hef sinnt og svo að vera til staðar þegar fólk er að ganga í gegnum krefj­andi lífs­reynslu og að læra að vera til staðar fyrir konu bæði and­lega og lík­am­lega þegar hún er að fæða barnið sitt. Það sem ég hef lært í þessu starfi hefur áhrif á sam­skipti mín við alla í kringum mig, að læra að fólk á alls konar sögu og hefur upp­lifað ýmis­legt um ævina og það er mik­il­vægt að mæta öllum þar sem þeir eru.“

Hverjir eru fram­tíð­ar­draum­arnir?

„Stór og öflug skáta­hreyf­ing sem hefur áhrif á sam­fé­lagið sitt til góða og stuðlar að betri heimi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ